Dagfari - 15.04.2005, Qupperneq 11

Dagfari - 15.04.2005, Qupperneq 11
fótbrotnað? Hvað segirðu, tvisvar farið tir liði unt öklann? Ekkert vit fyrir þig að ganga lengra en úr Hafnarfirði! Já, halló, það er Gangan! Hraustur? Ha, spengdan sköfnung? í hæsta lagi úr Kópavogi, helzt ekki lengra en af öskjuhlíðinni!” Eitt aðalstarf okkar var að halda aftur af fólki, sem vildi ganga alla leið, en var ekki heilt heilsu. Óðfluga hlóðust upp skráðar og óskráðar heilbrigðisskýrslur: allir vissu orðið allt um heilsufar vina sinna og vinavina; ef einhver var með plattfót, afhöggnar tær, ristarbólgu, hnjámús, æðahnúta, hafði verið á hæli, nýlega skorinn upp, þjáðist af nýrnasteinum, næringarskorti, var talinn of gamall eða of veikgerður almennt, var hann afskrifaður fyrirfram.“ Að göngulokum „Hér lýkur að segja frá lengstu og eftirminnilegustu mótmælagöngu, sem farin hefur verið á íslandi. Hún ýtti við mörgum, sem fallinn var í værðarmók andvaraleysis,stæltiviljamannaogmetnað. Hún fékk íslenzkum hernámssinnum ærið umhugsunarefni. “Vísir nnin ekki hlæja daginn eftir gönguna,” hafði einhver sagt. Það sannaðist rækilega. í blaðinu hafa birzt tugir æsingagreina um gönguna, þar af hátt í tíu leiðarar. Hinum erlendu vígamönnum á Miðnesheiði er ekki heldur rótt. Þeir leggja sig nú í framkróka um að vingast við hina innbornu, eru farnir að láta ljósmynda sig með æruverðugum peysufatakonum og bjóða þeim á hersýningar! Dýrmætast var þetta framtak göngumönnum sjálfum vegna þeirrar reynslu, sent það færði íslenzkum hernámsandstæðingum: að ekkert er eins vel til þess fallið að eyða misklíð, samstilla hugina og jákvæð athöfn, er allir góðir menn geta átt hlut að með stolti - notað til að sýna vilja sinn í verki, sýna mannslund sína, staðfastan ásetning sinn að vera hvað sem yfir dynur: m e n n.“ Einar Bragi www.fridur.is

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.