Verkamannafélagið Hlíf 30 ára


Verkamannafélagið Hlíf 30 ára - 09.01.1937, Qupperneq 3

Verkamannafélagið Hlíf 30 ára - 09.01.1937, Qupperneq 3
VERKAMANNAFÉLAGIÐ HLIF 3 Verkamannafélagið Hlíf og áhrif pess í bæjarfélaginu. Eftir Emil Jónsson, bœjarstfóra UPP úr aldamótunum síðustu hefir vöxtur Hafnarfjarðar Yerið hvað örastur. Á árunum frá 1902—1908 fjölgar fólkinu um jþað bil um 1000 manns, úr 500 «pp í 1500 eða um 200% á 6 árum. Flytur þá fólk til Hafn- arfjarðar svo að segja hvaðan- æfa að af landinu, en líklega mest þó úr nærliggjandi sveitum Gullbringusýslu og Ámessýslu. Orsakir þessara fólksflutninga ▼om hinar alkunnu: Breyttar vinnuaðferðir við fiskveiðamar og stórkostleg aukning 'þeirra. Um þetta sama leyti fer fólki feinnig að fækka í sveitunum, sem áður hafði heldur farið fjölgandi eða að minsta kosti staðið í stað. Fólkið leitaði til verstöðvanna, í hina nýju og að sumu leyti arð- vænlegri atvinnu, og Hafnar- fjörður var þá ein sú álitlegasta. Mörg veiðiskip, bæði innlend og útlend, lögðu þá afla sinn á land þar, og þangað safnaðist því ifólkið. Á síðustu ámm þessa tímabils gerðust tvéir atburðir, sem að langmestu leyti voru afleiðing af Jjessum breyttu atvinnuháttum: Hafnarfjörður fær kaupstaðar- réttindi og verkamannafélagið Hlíf er stofnað. Þetta skeði með -eins árs millibili, og hefir sjálf- sagt þótt ólíkt merkilegri atburð- ur þá að fá kaupstaðarréttindi, heldur en verkamannafélagið. En sú hefir þó orðið raunin, að fyrir hafnfirzka verkamenn og yfir- gnæfandi meirihluta Hafnfirðinga má nefna því nafni, hafa að vísu báðir þessir atburðir haft úrslita- þýðingu, og hinn síðamefndi ■engu minni en sá fyrri, og sjálf- sagt miklu meiri. Saga félagsins og saga kaup- s'taðarins em annars svo sam- tvinnaðar, sérstaklega hin síðari ár, að ógemingur er að gera þar alveg upp á milli. Einmitt þetta télag, verkamannafélagið Hlíf, hefir mótað svo alla stjóm kaup- staðarins, að enginn einn félags- skapux hefir haft þar ti^ líka þau áhrif, enda er það eðlilegt, þar sem bæjarbúar em að svo mi'klu leyti verkamenn, eins og áður er sagt. Ég ætla ekki hér að fara að nékja hvorki sögu félagsins né kaupstaðarins, en ég vil aðeins benda á hvemig þróunin hefir gengið í stómm dráttum. Sögu félagsins má skifta í tvo ólíka kafla. Fyrri hlutinn nær frá stofn- un félagsins og fram til ársins 1926, en síðari kaflinn frá 1926 og síðan. Fyrra tímabilið er mót- að af baráttu, fyrst og fremst auðvitað við atvinnurekendur, og einnig, og engu síður, við stjóm- arvöld bæjarins, sem alt fram til ársins 1926 vom að meiri hluta andstæðingar verkalýðssamtak- anna. A þessum árum voru margir bardagar háðir, og margir sigr:{i< unnir. Kaupgjaldið var hækkað stórkostlega, 'úr 16 aurmn um klst. eins og það mun hafa verið þegar félagið var stofnað upp í EMIL JÓNSSON. það, sem það nú er. Aðbúnaður allur hefir verið bættur mjög Minningarljóð á 30 ára afmæli V.M.F. Hlíf (La rj: Vormenn íslands) 'EJTÉR er vígið! Við oss talar -*■ -*viðkvæm reynsla um liðna tíð: Gegnum þrautir grárrar malar, gegnum þrjátíu ára stríð, félag vort var brautarbending, benti á nýtt og fyllra líf, Þar var ætíð þrautar lending. Þar var fólksins trausta HLÍF. II Hversu brjóstið var sveitt, hversu bakið var þreytt, og hið bugandi strit allri lífsgleði sneytt. Allt, sem dýpst hafði seitt, það var svívirt og meitt og hið sannasta og bezta í hjörtunum deytt. Það var auðvaldið feitt, sínu óhófi skreytt, sem hvern einstakan króaði og geð hans fékk bleytt. Engum óskum var skeytt, aðeins skætingi hreytt, — inn að skyrtunni í laumi var stétt okkar reitt. Loks var okkur svo heitt, að til áhlaups var þe.ytt: Merkið upp! Þessi tvístringur stoðar ei neitt! Þá var sviðinu breytt, — sterkum samtökum beitt. Þá var svarist til dauðans í bræðralag eitt. Svo var orkunnar neytt. — Oft um nöf hefir freytt, marga nýjung til sigurs við höfum þó leitt, höfum hugina spreytt, höfum hnefana steitt, höfum hamingjuskeiðinni áleiðis fle.ytt. En þó margt sé nú breytt og úr mörgu sé greitt, allt það mesta þó bíður — og enn er oss heitt: Enn skal samtökum beitt, unz það vald er oss veitt, .sem er verklýðsins mark. Allir eitt! Allir eitt! Jóhannes úr Kötlum. verulega, sömuleiðis fyrir at- beina félagsins. En á sviði bæjar- málanna gélék allt erfiðlegp. Atvinnubótavinna frá bæjar- stjórn þekkist ekki. Þegar verka- menn höfðu gengið svo lengi at- vinnulausir á vetrum, að þeir gátu ©kki lengur, urðu þeir að taka til sinna ráða. Féla_gið tók að sér fiskreitalagningar o. þ. h. fyr- ir félaga sína, til að bæta úr brýn- ustu þörfunum. Jafnvel útgerð hefir félagið farið út í af sörnu éstæðum. Gefur að skilia hve erf- itt slíkt hefir verið fyrir févana félag, sem samanstóð af fátækum einstaklingum. En um annað var ekki að ræða. Ef félagið ekki tók þessi mál í sínar hendur, hefði ekki lorðið úr framkvæmdum, að minsta kosti ekki af hálfu bæjar- stjórnar. Síðari hluta þessa tímabils þekki ég ekki af eigin raun, og fyrrihlutann aðeins sem hálfþrosk aður unglingur, en það hefi ég fyrir satt, að þó að stundumf hafi gefið á bátinn, og erfiðleik- arnir virst ósigrandi, þá hafi mark víst verið unnið af óeigingjömum, sístarfandi forvígismönnum og öruggri fylkingu allra verkamann- anna, sem á bak við stóðu, til- búnir til að fylgja fast eftir ef þörf gerðist. Á þessu tímabili er félagið eina verldýðsfélagið í bænum. Verka- konur og sjómenn og verkamenn voru þá öll í félaginu. Hlíf var þvi þá allsverjarverklýðssamtök bæjarins, hin einu. — Ot á við tók félagið einnig virkan þátt í baráttunni, þar sem það stmx í uqphafi var með í stofnun Al- þýðusambands Islands, og hefir tekið þátt í störfum þess ávalt síðan. Allt starf, bæði inn á við og út á við þetta tímabil er því mótað af baráttu, baráttu, sem allir, sem eitthvað þekkja til verklýðshreifingarinnar, iog flestir skilja nú orðið. En svo hefir það ekki verið frá upphafi. Byrjunar- örðugleikarnir voru geysilegir, þar eins og annarsstaðar, og þeim mun meiri, sem málefnið var stærra. sem um var deilt. En fyr- ir ósleitilega forstöðu brautryðj- endanna og síðari forvígismanna, og fyrir ötult fylgi, trú á málefn- ið, þrautseigju og festu hjá öllum almenningi, endaði barátta þessi með fullum sigri. Hvað þessi bar- átta hefir kostað af tíma og kröft- um fórnfúsra manna, um fé vpr ekki að tala, vita þeir einir, er þátt hafa tekið í henni, og þektu ástandið eins og það var og þekkja það eins og það þó er nú. Það væri holl lexía fyiir þá, sem veiku augnabliki kunna áð efast um gildi verklýðssamtakanna að kynna sér þessa baráttutíma, elkki einasta Hlífar, heldur einnig veik-

x

Verkamannafélagið Hlíf 30 ára

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamannafélagið Hlíf 30 ára
https://timarit.is/publication/972

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.