Verkamannafélagið Hlíf 30 ára


Verkamannafélagið Hlíf 30 ára - 09.01.1937, Qupperneq 6

Verkamannafélagið Hlíf 30 ára - 09.01.1937, Qupperneq 6
6 VERKAMANNAFÉLAGIÐ HLÍF JÖN JÓNSSON, Dvergasteini. karlmenn. Það varð því fyrsta verkefni félagsins, að reyna að rétta við kaup kvennanna, og var krafan 18 aura um tímann. Baráttan fyrir þessari kröfu varð mjög ströng og lauk með því, að konur fengu 15 aura um tímann. Þetta var fyrsta áhlaupið, og það var ekki til einskis. Oft hafa þær endurminning- ar vaknað hjá mér, hve aðdá- anlega vel var staðið saman í þessari deilu. Konurnar sýndu í henni mikinn skilning og viljafestu, og um ungu stúlk- urnar vil eg segja þetta: Minn- ingin um þessar konur ætti að vera ofarlega í huga ykkar, því að hefðu þær ekki háð sína baráttu, þá væru kjör ykkar allt önnur nú. Eftir þennan fyrsta bardaga sem félagið háði, varð hver sóknin á fætur annari háð, og allt af vannst eitthvað á. — Þeirri sögu þarf ekki a ð lýsa, hún er svo kunn. Verkamenn hafa nú unnið í verklýðsmálum í 3 áratugi og alltaf unnið eitt- hvað á í hvert sinn. Nokkru eftir að félagsskap- urinn var stofnaður og árang- urinn af samtökunum fór að koma í ljós, fóru menn að tala um það, að sjálfsagt væri, að verkamenn hefðu einnig sam- tök um að fá íhlutun í stjórn bæjarfélagsins. Verkamönnum var það ljóst, að þeir þurftu að eiga sína eigin fulltrúa, sem þeir gætu rætt við um sín eig- in mál, og hagsmuni bæjarfé- lagsins sem heild. Verkamenn munu hafa fyrst stillt upp sjálfstæðum lista ár- ið 1914, og 1926 tókst okkur að ná hreinum m eirihluta í bæjarstjórninni — honum höf- um við haldið síðan, og Emil okkar Jónsson, sonur eins brautryðjandans í verklýðs- málunum, Jóns í Dvergasteini, vann þingsæti bæjarins með glæsilegum meirihluta eins og kunnugt er, árið 1934. Eg veit það, að þó að á þess- um hættulegu kreppuárum gangi margt illa, þá viður- kenna verkamenn almennt, að margt myndi öðruvísi hér, ef samtakanna, bæði í verklýðs- málum og stjórnmálum, hefði ekki notið við. Þegar eg lít yfir þessi 30 ár, þá finnst mér að eg hafi lifað á merkilegum tímum, tímum, þegar fátæk alþýða reis upp og heimti sinn rétt, og skapaði sér lýðræðislegt jafnrétti við þær stéttir, sem áður voru drottn- arar. — Og nú er að skapa lýðræði í atvinnumálum og fjármálum! fiísli JÓGSSOD verkamaðir. GÍSLI JÓNSSON. Gísli Jónsson verkamaður, sem nú er aldraður, var frenrur fáolrið- ur ium aðdragandann að stofnun vierkamannafélagsins. Hann er einn af öruggustu Hlífarfélögun- um iog einn af stofnendunum, „Við stofnuðum félagið, af því að það mátti til. Það var svo mik- il nauðsyn að myinda einhver samtök með fólkinu, því að at- vmnurekendur réðu og regeruðu alveg einir, og enginn þorði í raun iog veru að æmta undara boðum þcirra eða bönnum. Við réðumst í þetta fyrst og fremst til að hjálpa kvenfólkinu, því að þó að kjör okkar verka- mannanna væru slæm, þá voru kjör þeirra enn þá verri. Enda var byrjað með því að gera kröf- ur fyrir þess hönd og töluvert vanst á. Verkamenn fetigu trú á Liðni tíminn og viðfangsefni hans. Eftir Gunnlaug T JANOARMÁNUÐI 1906 komu nokkrir menn síaman í Hafn- arfirði og töluðu urn að stofna verkamannafélag- Þegar farið var að ræða málið við verkamenn, voru hjá þeim skiftar skoðanir. Nokkrir töldu nauðsynlegt að félag væri stofn- að; aðrir töldu það óþarft eða jafnvel hættulegt, því að kauþ- mennirnir mundu ekki vilja það. Það var og orð að sönnu, að svo var það um þá suma. I febrúar fór ég utan og kom ekki heim til Hafnarfjarðar fyr en eftir ár, og vissi þá ekki hvað gerðist í fjarveru minni, en þegar ég kom heim í febrúar 1907, þá var búið að s'tofna verkamannafélagið Hlíf, og þá félausskapnum. þegar hann fór að sýna sig, enda hækkaði kaupið smátt og smátt og kjörin bötn- uðu ár frá ári meðan atvinna var nóg. En síðan fór bærinn að stækka of ört, einstaklingarnir að draga saman seglin með atvinnurekstur- ínn. Þróun þjóðfélagsins komst á annað stig — og nú er atvinnu- leysið sem þjáir alla, ek!ki ein- göngu hér, því að hér hefir margt verið gert, heldur verkamenn um land alt. Og nú virðist mér að nýtt tímabíl verði að hefjast. Ég veit það, að bág væru kjör okkar alþýðufólksins nú, ef aldrei hefði verið stofnað til samtaka. Það getum við gömlu mannirnir bezt dæmt um, sem þekkjum tvenna tímana. Atvinnurekendur tóku félags- skapnum okkar illa. Sigfús Berg- mann, sem var forstjóri hér fyrir milljónafélagið, bannaði skipstjór- unum á sínum skipum að táka nokkurn mann í skipsrúm,, siem iværi í félaginu. Þieir urðu nú að láta í minni pokann með það eins og fleira, blessaðir, þegar tímiar liðu. Ég fluttist hingað til bæjarins um aldamótin. Þá voru bvgða- leyfislögin rikjandi og mér var stefnt fyrir að flytja í hreppinn. Það hefir svo sem margt á dag- aua drifið hjá mér eins og fleiri alþýðumönnum, en ég mun aldrei sjá eftir því að hafa verið einn af þeiiu, sem reið á vaðið með að stofna verkamannafélagið Hlíf. V. S. V. Kristmundsson. GUNNL. KRISTMUNDSSON. var byrjuð barátta fyrir kaup- hækkun. Hér í Hafnaríirði var þá lítið um vetrarvinnu. Á vertíðinni voru fles'tir vaxnir karlmenn á fiski- sikútum, og höfðu flestir hálf- drætti. Sumir áttu róðrarbáta og situnduðu hrognkelsaveiði og réru til fiskjar, ef aflaðist á grunnmiðum. Kaupgjald var oft- ast í landi fyrir karlmenn 25 áurar, en kvennakaup 121/2 cyrir um hverja klukkustund, og þótti það æði djarft, að ætla að setja kaupið hærra. Vinnuveitendur voru kaupmenn og verkalaunin greidd með vöruúttekt frá verzl- un þeirra. Á sumrum leituðu menn burtu frá heimilum sínum. Sumir réð- ust til heyvinnu í sveitum, aðrir unnu að vegavinnu og sumir fóru til Ausífjarða. Sumarkaupið var ekki hátt, en kröfumar voru þá færri en nú, gjöldin lægri og oft var sparað og ódýrt lifað. Kven- fólk, sem heima var á sumrum, vann að fiskverkun. Kaupmenn keyptu fiskinn og létu verka hann. Allir munu þeir hafa verzl- að við verkafólk sitt og greitt kaupið í vörum. Þegar ég kom alkominn til Hafnarfjarðar haustið 1914, var. alt viðhorf breytt, stríðið var skollið á, kaupiö var hækkað, peningar voru komnir í veltu, út- gerðin var að breytast. Fiskiskút- umar voru að hverfa, en togarar og mótorbátar að koma. Nú réðu menn sig ekki upp á aflahiut, heldur upp á kaup. Skilgreiningin vex með ári hverju sem líður, milli vinnuveitanda og vinnu-

x

Verkamannafélagið Hlíf 30 ára

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamannafélagið Hlíf 30 ára
https://timarit.is/publication/972

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.