Aðventfréttir - 01.01.1988, Side 2
2______________
STJÓRNARFUNDUR
Þann 15. desember s.l. var
haldinn fundur í stjórn Sjöunda
dags aðventista á íslandi. Þetta
var síðasti fundur stjórnarinnar
á árinu. í tilefni af ári æsk-
unnar sem þá var að ljúka var
æskulýðsleiðtoganum Þresti B.
Steinþórssyni boðið að sitja
fundinn ásamt fulltrúum frá ung-
mennafélögunum. Af þeim sátu
þessi fundinn: Elías Theódórs-
son og Harpa Theódórsdóttir frá
Reykjavík, Ella Björk Björns-
dóttir frá Árnessöfnuði og Davíð
Ólafsson og Magnús Jónsson frá
Suðurnesjasöfnuði.
Á fundinum voru eftirfarandi mál
afgreidd:
BIBLÍULEXÍUR Yerð á lexíun-
um var rætt og ákveðið að niður-
greiða þær talsvert. Verð á einni
lexíu (einn ársfj.) var ákveðið
kr. 350 og skyldi innheimt með
gíróseðli tvo ársfjórðunga í einu
(kr. 700). Einnig var ákveðið að
hvetja fjölskyldur til að kaupa
fleiri en eina lexíu, þannig að
hjón t.d. hefðu hver sína lexíu.
Ákveðið var að verð fyrir hverja
lexíu umfram eina á heimili yrði
aðeins 50% af fullu verði. Þannig
gæti heimili fengið tvær lexíur á
kr. 525 en það er nákvæmlega
kostnaðarverð einnar lexíu.
BARNASTARF Á REYKHÓLUM
Hjónin María Björk Reynisdóttir
og Ólafur Þóroddsson hafa haft
með höndum talsvert barnastarf
þar sem þau búa að Reykhólum.
Um 12 - 15 börn sækja barna-
hvíldardagsskóla hjá þeim. Vegna
fjölda barnanna hefur þau vantað
tilfinnanlega stóla fyrir börnin.
Þau sóttu því um til stjórnar-
innar um fjárveitingu til að
kaupa 10 barnastóla sem að
sjálfsögðu væru eign safnaðarins.
Samþykkt var að veita kr. 11.000
Aðvenífréttir 1. 1988
til þessa verkefnis.
GJÖF TIL STARFSINS Gjöf
barst til starfsins frá hjónunum
önnu Karlsdóttur og Birni Gunn-
laugssyni, Kumbaravogi, að upp-
hæð kr. 110.000, til ráðstöfunar í
það verkefni sem Samtökin teldu
æskilegast. Samþykkt var: "að
þakka innilega þessa höfðinglegu
gjöf og að veita henni til útgáfu
á námskeiðsflokknum um Opin-
berun Jóhannesar sem gefinn
verður út I byrjun árs 1988."
JÓLAGJÖFIN í desember ár
hvert renna guðsþjónustugjaf-
irnar einn hvíldardaginn til
starfsins innanlands. Að þessu
sinni fóru gjafirnar til æskulýðs-
deildarinnar í tilefni af ári
æskunnar. Samþykkt var að ráð-
stafa fórninni: 1. til útgáfu á
æskulýðssönghef ti sem
ungmenna-félögin munu standa
að og 2. til uppbyggingar
skátastarfsins og til kaupa á
tjöldum og bak- pokum.
SAFNAÐARBLÖÐIN Þá var
samþykkt að ritstjóri
Fréttabréfsins, sem nú hefur litið
dagsins ljós og heitir
AÐVENTFRÉTTIR, verði
forstöðumaður Sjöunda dags
aðventista. Ennfremur að rit-
stjórn ársfjórðungsblaðsins verði
þannig skipuð:
Þröstur B. Steinþórsson rit-
stjóri og ábyrgðarmaður, Eric
Guðmundsson og Erling B.
Snorrason.
Fyrsti fundur stjórnarinnar á
nýbyrjuðu ári var haldinn 10.
janúar. Sá fundur var fjármála-
fundur fyrir árið 1988. Fulltrúi
Norður-Evrópudeildarinnar var
gjaldkerinn John Muderspach.
Fyrri hluta dags var sameigin-
legur fundur stjórnarinnar og
skólanefndar Hlíðardalsskóla.
Eins og ætíð byrjaði fundurinn
með ritningarlestri, stuttri
hugvekju og bænastund.
HLÍÐARDALSSKÓLI Fyrst var
rædd staða Hlíðardalsskóla, en
hún er á ýmsan hátt mjög erfið.
Engin samþykkt var gerð að svo
stöddu. Þá var samþykkt ráðning
Heiðars Smárasonar sem húsvörðs
og viðhaldsmanns að Hlíðardals-
skóla til vors. Bjóðum við hann,
Hrafnhildi konu hans og litla
drenginn þeirra, Eyþór, hjartan-
lega velkomin til starfa að
Hlíðardalsskóla.
FJÁRHAGSÁÆTLUN 1988 Þá
var tekin fyrir fjárhagsáætlun
Samtakanna fyrir 1988. Hún var
vel undirbúin bæði frá hendi
launanefndar og gjaldkera. Var
hún rædd ítarlega og síðan
samþykkt.
FOSSVOGSBYGGINGIN Fyrstu
teikningar frá arkitekti lágu
fyrir og voru ræddar. Ákveðið
var að leggja þær fyrir Norður-
Evrópudeildina til umsagnar áður
en lengra yrði haldið. Niðurstöðu
deildarinnar er nú beðið.
AKUREYRI Rætt var um opnun
samkomusalar á Akureyri í eigu
Skúla Torfasonar, tannlæknis,
sem hann hefur m.a. ætlað til
afnota fyrir safnaðarsystkinin og
starfið. Fram kom mikil ánægja
yfir þessu framtaki og þakklæti
vegna hins mikla og óeigingjarna
starfs sem þau hjónin Skúli og
Ella Jack hafa unnið við að koma
up þessari aðstöðu. Samþykkt var
að vinna að því að 10 - 15
manna hópur færi til Akureyrar
í tilefni af þessum tímamótum.
AÐVENTFRÉTTIR Lokasam-
þykkt þessa fyrsta stjórnar-
fundar var svo nafnið á nýja
fréttabréfinu. 18 tillögur bárust
og fékk nafnið AÐVENT-
FRÉTTIR langflest stig í fyrstu
umferð og var síðan einróma
samþykkt. •