Aðventfréttir - 01.01.1988, Blaðsíða 5
5
Kor 9.7. Þessi leiðbeining er
grundvöllurinn fyrir tíundar-
greiðslum. Sem reiknireglu fyrir
tíundargreiðslum er okkur sagt
"af öllum tekjum þínum." Þegar
sagt er "öllum tekjum þínum" er
átt við tekjur áður en nokkuð
annað er greitt. Þetta er hin eina
almenna regla. Samt sem áður er
spurningin um trúmennsku í
tíund ekki spurning um fjármuni,
heldur trúmennsku við Guð og
verður hver og einn að gera það
upp við sig og sinn Guð af hvaða
upphæð hver og einn reiknar
sína tíund.
í rammanum hér til hliðar við
greinina er dæmi um útreikning
á tíund launþega annars vegar
og einstaklings í eigin atvinnu-
rekstri hins vegar.
BLESSUN FYLGIR EF
ÁFORMUM GUÐS ER FYLGT
Boðskapurinn í Malakí 3.10 er:
"... reynið mig einu sinni á
þennan hátt - segir Drottinn
allsherjar -, hvort ég lýk ekki
upp fyrir yður flóðgáttum him-
insins og úthelli yfir yður
yfirgnæfanlegri blessun." Hefur
þú reynt hvort Guð stendur við
loforð sín? Það eru margir
Sjöunda dags aðventistar hér á
íslandi sem hafa í gegnum mörg
ár greitt tíund trúfastlega og
reynt blessanir Guðs. Það væri
áhugavekjandi ef einhverjir
myndu vilja deila þessum reynsl-
um með okkur í Aðventfréttum.
"Guð er þess megnugur að veita
yður allar góðar gjafir ríkulega,
til þess að þér í öllu og ávalt
hafið allt sem þér þarfnist og
getið sjálfir veitt ríkulega til
sérhvers góðs verks." 2. Kor. 9.8.
Megi Guð blessa okkur öll sem
trúfasta ráðsmenn hans.
Jóhann E. Jóhannsson •
DÆMI UM ÚTREIKNING
Á TÍUND
1. LAUNÞEGI
Mánaðarlaun 60,000.00
Tíund 6,000.00
9/10 til eigin nota: skatta, framfærslu gjafa og annarra útgj. 54,000.00
2. EINSTAKLINGUR í EIGIN ATVINNUREKSTRI
t.d. lögfræðingur, læknir, iðnaðarmaður.
Tekjur:
Tekjur yfir mánuðinn 400,000.00
Rekstrarkostnaður:
Húsaleiga 40,000.00
Laun skrifstofumanns 54,000.00
Rannsóknarstofa 28,000.00
Hiti, rafmagn, vatn 8,000.00
Ferðalög 5,000.00
Bif reiðarkostnaður 4,000.00
Ýmis kostnaður 12,000.00
Útgjöld alls 151,000.00
Nettótekjur 249,000.00
Tíund 24,900.00
9/10 til eigin nota: skatta, framfærslu, gjafa og annarra útgjalda 224,100.00
(Þessar tölur eru lauslega miðaðar við bandarískar tölur)
•
Aðventfréttir 1. 1988