Aðventfréttir - 01.01.1988, Qupperneq 4

Aðventfréttir - 01.01.1988, Qupperneq 4
4 RÁÐSMENN GUÐS í öllum samskiptum Guðs við mannkynið finnum við gegnum- gangandi meginreglu. Guð setti okkar fyrstu foreldra í aldin- garðinn Eden. Hann setti um- hverfis þau allt sem þau gátu óskað sér og bað þau um að muna að hann, skaparinn, ætti alla hluti. í garðinn setti hann tré, sem voru falleg á að líta og báru ljúffenga ávexti, en hann gerði eina undantekningu. Af öllum trjám í garðinum, nema þessu eina, máttu Adam og Eva borða að vild. Á þennan hátt vildi Guð reyna trúmennsku þeirra við Guð sinn. Á sama hátt hefur Herrann gefið okkur bestu gjafir himinsins - framleiðslu jarðarinnar, uppsker- una og ríkidæmi í silfri og gulli. Allt eru þetta gjafir frá Guði. Hús og heimili sem við búum í, jörðin sem við búum á, maturinn sem við neytum, og fötin sem við klæðumst hefur hann gefið okkur til eignar, en hann biður okkur um að minnast sín sem þess sem gaf okkur allt þetta. En til að reyna trúmennsku okkar hefur hann haldið eftir einum tíunda hluta handa sjálfum sér. Á sama hátt og Adam og Eva máttu ekki borða af þessu eina tré í aldin- garðinum Eden, megum við ekki taka tíunda hluta Guðs okkur til ráðstöfunar. "Færið alla tíundina í forðabúið til þess að fæðsla sé til í húsi mínu, og reynið mig einu sinni á þennan hátt - hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóð- gáttum himinsins og úthelli yfir yður yfirgnæfanlegri blessun." Mal. 3,10. Þessi boðskapur hefur ekki misst styrkleika sinn og kraft. Hann á jafn vel við í dag eins og þá. Við tökum jú enn við gjöfum Guðs í ríkum mæli. Kærleikur hans, gjafmildi og loforð eru ekki gengin úr gildi. Hann biður um þennan hluta, sem hann hef- ur sett til hliðar fyrir sig, og gefur okkur leyfi til að nota það sem eftir er. TILGANGURINN MEÐ TÍUNDARGREIÐSLUM "Til þess að fæðsla sé til í húsi mínu." Þetta voru rök Malakía. Þessi rök eiga enn við í dag. Hlutverk það sem Jesús hefur gefið okkur, er að færa heiminum andlega fæðu - fagnaðarerindið. Til þess að gera þetta er þörf fyrir fjármuni. Hér er nauðsyn- legt að muna að tíundin er fjár- munirnir. Guð notar mennina til að breiða út boðskapinn hér á jörðinni. Hann hefði getað notað engla. Þeir hefðu örugglega geta gert þetta mikið betur en við, en Guð elskar mannkynið svo mikið, að hann gaf sinn eingetinn son fyrir okkur. Til þess að við getum öðlast lyndiseinkunn sem líkist lyndiseinkunn skapara okkar, þ.e. vera óeigingjörn og kærleiksrík, höfum við þörf fyrir að sýna trúmennsku okkar við hann. TÍUNDARGREIÐSLUR Hvenær? Postulinn Páll hvetur oft hina kristnu til að gefa kerfisbundið, til dæmis í 1. Kor. 16,2: "hvern fyrsta dag vikunnar skal hver yðar leggja í sjóð heima hjá sér það, sem efni leyfa... Þetta átti við um samskot og gjafir, en það á jafn mikið við um tíundargreiðslur. Að gefa gjafir og greiða tíund ætti ekki að vera tilviljunar- kennt. Við erum hvött til að koma með frumburð jarðarinnar. "Þetta kennir okkur ekki, að við getum notað fjármuni okkar fyrir okkur sjálf og komið með afganginn til Guðs, þrátt fyrir að um einlæga tíund sé að ræða. Nei setjum fyrst hluta Guðs til hliðar." R&H 9. maí 1893. "Við ættum ekki að helga það sem eftir er af tekjum okkar honum, eftir að öllum okkar nauðsynlegu og ónauðsynlegu þörfum er fullnægt, heldur áður en nokkuð verður notað, ættum við að leggja til hliðar það sem Guði tilheyrir." R&H 16. maí 1882. Hvar? "færið alla tíundina í forðabúrið..." Mal. 3,10a. Tíundin er heilög, sett til hliðar af Guði fyrir starfsmenn fagnaðar- erindisins sem viðurkenning okkar á hversu mikið við eigum undir Guði komið. Tíundinni er skilað til safnaðargjaldkera í lokuðu umslagi þar sem á er skrifað nafn og upphæð, og að því búnu gefur safnaðargjald- kerinn kvittun fyrir greiðslunni. (í sumum tilfellum er einnig hægt að skila tíund á skrifstofu Samtakanna). Hvernig skal reikna tfund? "Sér- hver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu, ekki með ólund eða með nauðung, því að Guð elskar glaðan gjafara." 2. NÝ DÖNSK BÓK Nýlega kom út hjá bókaforlagi aðventista f Danmörku, (Dansk- Bogforlag) bókin "Hvem kommer til at regere verden?" ( Hver mun stjórna heiminum?), eftir Pierre Lanarés. Bókin fjallar um spádómana og uppfyllingu þeirra á okkar dögum. Bókin er 240 blaðsíður og kostar danskar kr. 89,50. Hægt er að panta bókina beint frá Dansk Bogforlag, Börstenbindervej 4, 5230 Odense M, Danmark. . AÖventfréttir 1. 1988

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.