Aðventfréttir - 01.01.1988, Side 6
6
SAFNAÐARSYSTKININ Á
AKUREYRI
Helgina 23. til 25. október 1987
heimsótti ég undirritaður, Solveig
konan mín og börnin okkar
safnaðarsystkinin á Akureyri. Við
flugum til Akureyrar seinnipart
föstudags og að loknu þægilegu
flugi lentum við á Akureyrar-
flugvelli. Þar tók á móti okkur
Ómar Torfason og ók okkur heim
til Skúla, Ellu og telpnanna
þriggja Kristínar, Gyðu og
Theódóru. Um kvöldið röbbuðum
við saman um starfið á íslandi
og höfðu þau gaman af að frétta
af því sem var að gerast fyrir
sunnan.
Á Akureyri hittast safnaðar-
systkinin alltaf á hvíldardögum
og hafa hvíldardagsskóla. Þessi
hvíldardagsskóli er alltaf heima
hjá Ellu og Skúla. Þá koma
einnig Ó nar, Gyða, Hreiðar
Jónsson og Soffía og Hreiðar
Hreiðarsson og Elsa konan hans
og börnin þeirra tvö Hreiðar og
Alma. Að þessu sinni voru sjö
börn til staðar og var því
ákveðið að hafa barnahvíldar-
dagsskóla fyrir börnin. En fyrst
sungum við saman fáeina sálma
Aðventfréttir 1. 1988
og lék Skúli undir á harmo-
níkuna sína. Á meðan fullorðna
fólkið fór yfir lexíuna fóru
börnin með Ellu og Solveigu í
barnahvíldardagsskólann þar sem
þau sungu sína söngva og voru
síðan sagðar sögur með aðstoð
filtmynda. Að lokinni yfirferð
lexíunnar flutti undirritaður
stutta frásögn og var síðan
endað með bæn.
Öllum var síðan boðið til
hádegisverðar og á meðan hann
var útbúinn var fólkinu boðið að
sjá myndband með tónlist og tali
með Samuele Bacchiocchi (ræðu-
maðurinn frá mótinu í sumar), en
aðrir ræddu saman uppi í stofu.
Vorum við síðan saman fram eft-
ir degi og nutum samverunnar.
Um kvöldið var okkur boðið að
skoða tannlæknastofu Skúla og
sjúkraþjálfunarstöð Ómars í
Sunnuhlíð 12. Er þar um að ræða
glæsilega aðstöðu hjá báðum.
Skúli hefur sína aðstöðu niðri en
Ómar er á efri hæð. Á meðan við
skoðuðum þessa skemmtilegu að-
stöðu sýndi Skúli mér óinnréttað
herbergi þar sem hann sagði mér
Örkin hans
Nóa
Geimfarinn James Irwin, sem eitt
sinn gekk á tunglinu, hefur um
margra ára skeið haft áhuga á að
finna leifarnar af örkinni hans
Nóa á Araratfjalli. Hann hefur
staðið fyrir mörgum leiðöngrum
þangað. Nú álíta sumir að nýleg,
langvarandi hitabylgja þar um
slóðir hafi brætt ísinn umhverfis
örkina. Þess vegna hefur James
Irwin nú sótt um leyfi hjá
tyrkneskum yfirvöldum til að
fljúga yfir Ararat og gera
þannig enn eina tilraun til að
finna örkina.
Allt frá fyrstu öldum kristninnar
hafa ferðalangar fullyrt að þeir
hafi séð örkina. Frá 1950 hafa
um 70 leiðangrar freistað þess að
finna hið fræga skip. Hvort
nýjasta ferð James Irwin bætist
í þann hóp árangurslausra
leiðangra mun nánasta framtíð
leiða í ljós. •
að hann vildi innrétta sem sal
þar sem söfnuðurinn gæti hist í
framtíðinni og gæti það verið
byrjunin að vexti safnaðarins á
Akureyri. Hann talaði um að
hann vildi gera þetta einhvern
tíma á árinu 1988. Hann hafði
áhuga á að þarna gætu einnig
verið haldin námskeið, bindindis-
námskeið, streitunámskeið,
Daníelsbókarnámskeið, og
Opinberunarbókarnámskeið svo
eitthvað sé nefnt. Ég sagði
honum að námskeið í Opinberun
Jóhannesar væri væntanlegt í
byrjun árs 1988 og varð hann
mjög spenntur í að byrja að nota
það. Hann sagðist einnig eiga sér
þann draum að geta boðið kristnu
fólki úr öðrum trúfélögum til sín
í alþjóðlegu bænavikunni. Syst-
kinin á Akureyri hafa tekið þátt