Aðventfréttir - 01.01.1988, Page 7

Aðventfréttir - 01.01.1988, Page 7
Ella Jack, Skúli Torfason og börnin Gyða Thoroddsen og Ómar Torfason. Kristin, Theódóra og Gyða í alþjóðlegu bænavikunni í nokk- ur undanfarin ár, en hafa ekki haft aðstöðu til þess að bjóða öðrum til sín. Við fórum svo að ræða möguleikann á því að hrinda þessu í framkvæmd sem fyrst og jafnvel að reyna að ljúka innréttingum fyrir bæna- vikuna í lok janúar 1988. Við héldum síðan heim til Ellu og barnanna og röbbuðum saman til miðnættis og Skúli og Ómar telfdu nokkrar skákir, en ekki skal rakinn gangur þeirra hér. Við flúgum heim á sunnudags- morgun og þökkuðum fyrir ánægjulega dvöl með systkinum okkar á Akureyri. Stuttu eftir þessa heimsókn fréttist af því að nú væri farið að vinna af krafti í salnum í Sunnuhlíð. Smiðir, rafvirkjar og síðast en ekki síst Skúli og Ómar sjálfir sem máluðu salinn og gerðu fleira sjálfir. Og takmarkið náðist. Salurinn var tekinn í notkun 23. janúar 1988 og gátu systkinin á Akureyri nú í fyrsta sinn boðið til sín kristnu fólki úr öðrum söfnuðum í alþjóðlegu bænavikunni. í næsta blaði Aðventfrétta verður nánar greint frá þeirri athöfn í máli og myndum. Á síðasta hausti samþykkti stjórn Samtakanna að auka þjónustu við dreifða safnaðarmeðlimi safnaðar okkar. Hefur þetta meðal annars verið gert með auknum heim- sóknum, með því að oftar hafa makar starfsmanna farið með í þessar heimsóknir, með auknum fréttaflutningi frá starfinu, úr söfnuðunum og frá landsbyggð- inni, og með því að styðja við bakið á þessum systkinum okkar sem best. Einnig er mjög já- kvætt að sjá hvað einstaklings- framtakið getur gert og hve leikmenn geta starfað hver á sinn hátt í sínum byggðarlögum. Dreifðu safnaðarsystkinin eru lifandi vitnisburður í því byggðarlagi sem þau búa og þar sem eitt eða fleiri systkini búa er mikið jákvæðara viðhorf til okkar safnaðar en þar sem eng- inn safnaðarmeðlimur er. Eins og fram hefur komið áður hefur Sigríður Níelsdóttir "laugardags- skóla" á Reyðarfirði, og Björk og Óli hafa hvíldardagsskóla á Reykhólum. Og nú hefst nýtt átak einstaklinga á Akureyri. Við minnumst þess að starfið okkar hefur alltaf byrjað með litlum hópi sem hefur vaxið og orðið að söfnuði. Söfnuðurinn á Suður- nesjum byrjaði á heimili Rósu Teitsdóttur og Ólafs Ingimundar- sonar, en þar er nú öflugur söfnuður með sitt eigið safnaðar- heimili. Einnig er okkur minni- stætt að fyrst um sinn hittust systkinin I Árnessýslu að Kumbaravogi og síðar í safnaðar- heimili þjóðkirkjunnar í Hvera- gerði. Þau eignuðust síðan sitt eigið safnaðarheimili fyrir dugnað og einkaframtak. Einnig þar er nú sterkur söfnuður. Megi saga og reynsla annarra safnaða okkar á íslandi verða systkinunum á AÐVENTFRGTTIR 51. árg. - áður BRÆÐRABANDIÐ Útgefendur Ritstjóri og ábyrgðarmaður S.D.AÐVENTISTAR Á ÍSLANDI ERLING B. SNORRASON Aðventfréttir 1. 1988

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.