Aðventfréttir - 01.05.1995, Qupperneq 8

Aðventfréttir - 01.05.1995, Qupperneq 8
Sumarmótið að Hlíðardalsskóla r rlegt sumarmót safnaðarins var haldið 4. - 7. ágúst s.l. að Hlíðardalsskóla. Enn á ný gátum við notið samverunnar sem systkini á þessum dásamlega stað í veðurblíðu sumarsins á hefðbund- inni fjölskylduhátíð safnaðarins. í tilefni þess að árið 1995 hefur verið tileinkað aðvent-konunni var Dr. Andreu Luxton boðið að vera aðalræðumaður mótsins og er það fyrsta sinn að kona þjónar því hlut- verki. Andrea starfar í Bretlandi þar sem hún, auk þess að vera skóla- stjóri Stanborough School og hvíldardagsskóla- og menntamála- ritari Breska Sambandsins, er í for- svari fyrir Kvennastarfinu í Breska Sambandinu. Kjörorð Andreu á mótinu var: „Förum sameinuð fram“ og var hver ræða hennar byggð upp kringum ferðalag í sögu Guðs barna, svo sem „Inn um hlið Edensgarðsins", „Á leiðinni til Kanaanslands“ og „Hann tók stefnu á Jerúsalem" svo nokkur efni séu nefnd. Þannig fjallaði Andrea um markmið lífs okkar og samskipti okkar við hvert annað og umheiminn. Boðskapur hennar var frábær og einkenndist af djúpri visku og mikilli hlýju. Mótið hófst að vanda föstudags- kvöldið kl. 19:00 með kvöldverði. Opnunarsamkoman var kl. 20:30 og hófst hún með söngstund undir stjórn Reynis Guðsteinssonar við undirleik Sólveigar Jónsson. Eftir samkomuna það kvöld var sérstök söngstund á sal fyrir unga fólkið en mótið einkenndist af ríkulegri dags- krá fyrir alla aldurshópa. Má þar nefna, auk hefðbundinna liða sem barna- og unglingahvíldardagsskóla og barnaguðsþjónustu, sporleik, sund, reiðtúr fyrir fleiri aldurshópa og föndur, að ógleymdum hinum hefðbundna varðeldi eftir sólarlag á laugardagskvöldi. Hvíldardagsskóli fullorðinna var í höndum Davíðs West og var skipulagður í smáhópum á sama hátt og gert var í fyrra og tókst með ágætum. Mikil tónlist setti svip sinn á mótið allt að vanda en tón- listarmálin voru í höndum Karenar Sturlaugsson og Esterar Ólafsdóttur. Karen hafði einnig að þessu sinni tekist að koma saman hljóm- sveit sem lék undir á guðs- þjónustunni, öllum til óblandinnar ánægju. Margt annað mætti nefna varðandi framvindu mótsins, svo sem samkomur á vegum Kvennastarfsins, bæði síð- degis á hvíldardeginum og einnig á sunnudagsmorgni, þegar konur voru boðnar til sérstaks bænamorgun- verðar, sem tókst afar vel og var mörgum til mikillar blessunar. Einnig má nefna að flutt var skýrsla frá ráð- stefnu Aðalsamtakanna, sem haldin var fyrr í sumar, en skýrsluna fluttu fulltrúar starfsins á íslandi á ráð- stefnunni, Steinþór Þórðarson og undirritaður. Einnig var starfsemi ADRA kynnt í máli og myndum. Ekki má gleyma vel heppnaðri æskulýðs- samkomu á laugardagskvöldi undir stjórn Æskulýðsdeildarinnar og svo ferðalags í Krýsuvík og í Stranda- kirkju undir stjórn Björgvins Snorra- sonar í glampandi sólskini síðdegis á sunnudeginum. Á sunnudags- kvöldi var síðan kvikmyndin Skuggalendur sýnd á sal og síðan var farið í leiki eftir kvöldhressingu undir stjórn Einars Valgeirs Ara- sonar. Að lokum skal öllum þeim fjöl- mörgum þakkað sem tóku þátt í mótinu og gerðu það ánægjulegt og ólgeymanlegt. Sigríður Hjartardóttir annaðist húsmóðurstörf af röggsemi og samviskusemi. Karen Arason og Laila Guðmundsson báru ábyrgð á eldhúsverkum við miklar vinsældir að vanda. Fjölmargir tóku þátt í barna- og unglingadagskrá sem var sérlega fjölbreytt og íburðarmikil eins og áður segir. Einnig ber að þakka hinum fjölmörgu sem komu fram í tengslum við tónlistarflutning og samkomuhald. Að lokum skal enn þakkað Ólöfu og Pétri sem sáu um að skreyta salinn fyrir mótið af Andrea Luxton 8 AðventFréttir 5,1995

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.