Aðventfréttir - 01.05.1995, Blaðsíða 14
ferð að velta því fyrir þér hvað sé á
seyði! Þú færir kannski að velta því
fyrir þér hvort að hún/hann elski þig
lengur eða yfirhöfuð þyki vænt um
þig-
Þannig er það milli Guðs og okkar.
Við getum ekki sagt við hann, „ég
elska þig Drottinn en ekki koma.
Mér finnst þú dásamlegur en ég vil
helst ekki hitta þig. Eg tilbið þig sem
hinn mikla skapara og endur-
lausnara, en mér þykir í raun ekki
vænt um þig."
Ef við þekkjum Guð sem vin
munum við þrá að vera með honum.
Við munum þrá að hann komi til
þess að sækja okkur. Við munum þrá
að eyða allri eilífðinni í nærveru
hans. Og þegar hann kemur
munum við ekki vera óttaslegin
vegna þess að við vitum hvernig
hann er. Það er nákvæmlega ekkert
að óttast. Við munum ekki líta á það
sem ónæði þegar hann kemur inn í
líf okkar og áform, lífsáætlun okkar
og vonir, því að hann er hin mikla
von okkar. Við munum ekki vilja
hafna honum heldur munum við líta
upp og segja, „sjá, þessi er vor Guð,
vér vonuðum á hann, að hann
myndi frelsa oss" (Jes 25.9).
Ef við á hinn bóginn óskum að
vera aðskilin frá Guði mun hann að
vísu gefa okkur frelsi til að velja, en
við ættum ekki að láta blekkjast hvað
varðar afleiðingar þess. Guði er ein-
faldlega ómögulegt að hjálpa þeim
sem hafna honum. Því að það myndi
leiða til áframhalds á hinu illa og
þjáningunni sem syndin veldur. Ef
við veljum að hafna Guði mun Guð
að lokum ekki eiga annars úrkostar
en að hafna okkur þrátt fyrir þann
óumræðilega sársauka sem það
veldur honum. Ef við fyrirverðum
okkur fyrir Guð mun hann fyrir-
verða sig fyrir okkur (sjá Mk 8.32).
Ef þetta verður ofaná hjá okkur
mun endurkoma Jesú verða ógn-
vænlegur dauðadómur yfir okkur
Ljós dýrðar Guðs mun
veröa hinum vantrúaða
sem reiði, en gleði og
fögnuður þeim sem trúir.
og við munum hrópa á fjöllin og
klettana: „Hrynjið yfir oss og felið
oss fyrir ásjónu hans sem í hásætinu
situr og fyrir reiði lambsins; því að
komin er dagurinn, hinn mikli
dagur reiði þeirra, og hver mun geta
staðist? " (Opb 6.16,17). Ljós dýrðar
Guðs mun verða hinum vantrúaða
sem reiði, en gleði og fögnuður þeim
sem trúir. Jesús segir við þá sem
elska hann og bíða komu hans,
„hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á
Guð, trúið á mig... ég (fer) burt að
búa yður stað. Þegar ég er farinn
burt og hef búið yður stað, kem ég
aftur og tek yður til mín svo að þér
séuð þar sem ég er" (Jh 14.1-3).
En Tómas efaðist og hann spyr,
„Herra, vér vitum ekki hvert þú ferð,
hvernig getum vér þá þekkt
veginn?" (5. vers).
Og Jesús svarar honum: „Eg er
vegurinn, sannleikurinn og lífið.
Enginn kemur til föðurins, nema
fyrir mig. Ef þér hafið þekkt mig,
munuð þér og þekkja föður minn.
Héðan af þekkið þér hann og hafið
séð hann" (6. og 7. vers).
Seinna í samræðunum segir Jesús
við lærisveina sína: „Eg kalla yður
ekki frama þjóna, því þjónninn veit
ekki hvað Herra hans gjörir. En ég
kalla yður vini" (Jh 15.15).
Hvers vegna? Vegna þess að þeir
höfðu tekið þátt í áformum hans og
vonum. Og á sinn mannlega og
ófullkomna hátt elskuðu þeir hann.
Shakespeare ritaði: „Ferðir enda í
ástvinafundum." Þess vegna mun
Jesú koma á ný. Hann elskar okkur
með ódauðlegri ást sinni og við
elskum hann vegna elsku hans. Og
það er engin uppgerðar ást, engin
yfirborðskennd tilfinning. Frekar ást
sem er sterk og sönn. Það er
kærleikur sem knýr okkur til að
fylgja honum. Það er ást sem efast
ekki lengur, „komdu Drottinn minn,
Guð minn, vinur minn! Komdu fljótt
og taktu mig heim til þín."
Hvers vegna kemur Jesús aftur?
Hann kemur til þess að sækja þig.
Hann býður þér nú að verða vinur
hans og taka honum sem Drottni
lífs þíns. Hver eru viðbrögð þín?
Jonathan Gallagher er ritari Suður-
Englands Samtakanna
Þýð. Eric Guðmundsson
THE DIRECTOR QF AOMISSIONS
WRITE NOW TO NEWBOLD COLLEGE, BRACKNELL, BERKSHIRE, RG42 4AN, ENGLAND
TELEPHONE: +44 1344 54607. FAX: +441344 861692
í/i/c/a /ðo
'oœ
NEWBOLD FRÉTTIR
Ný baðherbergis og salernisaðstaða fyrir Newbold College
Það veitir Newbold College mikla ánægju að geta tilkynnt að
nýrri salernis og baðherbergiseiningu hefur verið komið fyrir í
drengjavistinni á Newbold, Keough House. Starfsfólk og
nemendur skólans óska að nýta þetta tækifæri til þess að þakka
innilega öllum þeim safnaðarmeðlimum, fyrrum nemendum og
vinum skólans sem gáfu af örlæti þannig að þetta mætti verða
raunveruleiki.
Þessi nýja aðstaða gefur nemendum Newbold skólans aðgang
að glæsilegri aðstöðu sem vel má una við. „Þetta er allt annað líf“
segir Jerry Hartman einn íbúa Keough House. „Að hægt sé að
ganga að nýju og hreinu baðherbergi og skella sér í sturtu sem
virkar er ólýsanleg tilfinning eftir það sem á undan er gengið!“
Fyrir hönd Newbold College
CQME TO NEWBOLD
' SUMMER SCHOOL
IN ENGLISH
27JUNE-24JULY1996
NEWBOLD COLLEGE
SCHOOL OF ENGLISH
also offers longer English Language Courses
SPRING TERM: 25 MARCH1996-7 JUNE1996
AUTUMN TERM: 23 SEPT1996 -12 DEC1996
WINTER TERM: i 6 JAN1997 1-14 MARCH1997
i
14
AðventFréttir 5,1995