Aðventfréttir - 01.05.1995, Síða 17

Aðventfréttir - 01.05.1995, Síða 17
endurskoðun hlutverks Hlíðardals- skóla í þágu safnaðarins og þjóð- félagsins. Þessi starfshópur skal skila skýrslu til stjórnar Samtakanna í byrjun nýs árs 1996. Þrátt fyrir þetta mun aðstaðan að Hlíðardalsskóla verða nýtt eins vel og kostur er á komandi mánuðum til útleigu og/eða varðandi viðburði innan safnaðarins. Einnig mun verða séð til þess að búið verði á staðnum að staðaldri þannig að hann verði ekki á nokkrum tíma mannlaus, misyndismönnum auð- veld bráð. Tilgangur bréfs þessa er að gera hverjum safnaðarmanni grein fyrir þróun mála milliliða- laust. Hér er um afar mikilvægt mál að ræða sem varðar alla sem tilheyra söfnuðinum þar eð skólinn fyrir austan tilheyrir okkur öllum og er okkur afar kær. Biðjum öll fyrir framgangi þessa máls þannig að Hlíðardalsskóli megi halda áfram að þjóna málefni Guðs og það á enn veglegri og þarfari máta en nokkurn tíma fyrr. Megi hann þannig verða enn árangurs- ríkara tæki til uppbyggingar ríkis Guðs á þessu landi. Með kærri og ósk um blessun Guðs, f. h. fráfarandi skólanefndar Hlíðar- dalsskóla og stjórnar Samtaka Sjöunda dags aðventista á íslandi Eric Guðmundsson FORSTÖÐUMAÐUR B. STARFSHÓPUR TILAÐ KANNA OG LEGGJA DRÖGAÐ MÖGULEGU FRAMTÍÐAR- HLUTVERKIHLÍÐARDALSSKÓLA Eins og kemur fram hér að ofan ákvað stjórn Samtakanna á fundi sínum 9. ágúst s.l. að kjósa sérstakan starfshóp sem myndi vinna að endurskoðun hlutverks Hlíðardals- skóla. Þennan starfshóp sitja: Magnús Pálsson rekstrarráðgjafi formaður, Björgvin Snorrason, Elías Theodórsson, Guðni Kristjánsson, Jón William Magnússon, Ólafur Kristinsson og undirritaður. Þessi starfshópur hefur unnið eftir bestu getu á liðnu hausti og þegar komið var fram í nóvember þótti hópnum tímabært að efna til almenns safnað- arfundar til þess að kynna þróun mála. Stjórn Samtakanna boðaði því til almenns safnaðarfundar um þetta mál laugardaginn 2. desember s.l. í samkomusal Suðurhlíðarskóla og mættu um 80 manns á fundinn. SAFNAÐARFUNDUR Efni fundarins var eftirfarandi: *Avarp undirritaðs um hlutverk skólans. *Kynning Magnúsar Pálssonar á stefnumótunarhugtakinu og störf- um starfshópsins. *Að lokum skiptu fundarmenn skiptu sér í hópa og ræddu mismunandi möguleika á áfram- haldandi rekstri Hlíðardalsskóla. I upphafsávarpi sínu undirstrikaði undirritaður hve afar mikilvægu hlutverki Hlíðardalsskóli hefur gegnt í gegnum árin í uppbyggingu og árangri safnaðarins hér á landi. Og ef vel ætti að vera yrði möguleg framtíðarstarfsemi skólans einnig/að tengjast hlutverki safnaðarins og stuðla að árangri í starfi safnaðarins með framlagi sínu. VINNA STARFSHÓPSINS I kynningu sinni á störfum starfs- hópsins ræddi Magnús Pálsson þá valkosti og hugmyndir sem fram hafa komið í starfshópnum undan- farið sem eru eftirfarandi: 1) Áframhaldandi rekstur stað- arins af hálfu safnaðarins, 2) Leiga eigna til annarra aðila, 3) Leiga að hluta - eigin rekstur að hluta, 4) Sala eigna eða hluta Þeirra, 5) Eignir lánaðar til ótiltekins tíma. Fljótlega kom í ljós að hugur nefndarmanna stefndi í tvær áttir varðandi áframhaldandi starf stofnunarinnar: áframhaldandi skólarekstur í einhverri mynd og þá helst áframhaldandi grunnskóla- rekstur eða heilsurekstur í einhverri mynd. En hvort sem um skólarekstur eða heilsurekstur er að ræða á Hlíðar- dalsskóla er ljóst að húseignir og annar búnaður á skólanum þarfnast viðhalds og lagfæringar og þörf er á að nokkuð nákvæm áætlun á lag- færingarkostnaði á næstu 3-6 árum liggi fyrir. SKÓLASTARF Starfshópurinn hefur rætt mögu- legt áframhaldandi skólastarf á Hlíðardalsskóla í stórt séð þremur liðum: 1) Að óbreytt ástand verði á skólanum og hann hefjist haustið 1996. 2) Að hluti eigna staðarins verði leigðar út Þannig að rekinn verði lítill grunnskóli í hluta húsakostsins en að hluti húsanna verði nýtt fyrir skáta og ungmennastarf af hálfu annarra aðila. 3) Að lýðskólarekstur verði settur á stofn á skólanum í samvinnu við aðra aðila t.d. Lýðskóla- félagið. I tengslum við þessar vangaveltur bar nokkur atriði á góma svo sem það óöryggi sem áformaður flutningur grunnskóla frá mennta- málaráðuneyti til sveitarfélaga felur í sér. Ekki er útséð með hvernig einkaskóli á borð við Hlíðardalsskóla verði meðhöndlaður eftir þennan flutning. Þá þótti afar brýnt að missa ekki sjónar á því leyfi sem söfnuðurinn hefur enn til grunn- skólareksturs að Hlíðardalsskóla og þeim 6 milljónum króna sem hafa fengist úr Ríkissjóði til reksturs skólans á undanförnum árum. Varnaðarorð komu einnig fram varðandi mögulegt samstarf í lýð- skólarekstri sérlega hvað snertir áherslu á guðfræði/kristinfræði kennslu. I umræðunni kom einnig fram sá ávinningur sem fengist við stofnun hollvinafélags Hlíðardals- skóla, (samanber hollvinafélag Há- skóla Islands), sem myndi laða að mikinn stuðning við stofnunina og draga úr einangrun. Einnig þótti mönnum mikilvægt að hafa í huga að mannvirki á staðnum voru upp- haflega byggð með skólastarf í huga og hentar vel við þess konar rekstur. Einnig ríkir hefð og töluverð þekking á rekstri skóla innan safnað- arins. HEILSUREKSTUR Varðandi mögulegan heilsu- rekstur á Hlíðardalsskóla beindu menn sérstaklega sjónum sínum til Heilsustofnunarinnar í Hveragerði en forstjóri þeirrar stofnunar, Arni Gunnarsson, hefur sýnt mikinn vel- vilja í garð Hlíðardalsskóla og bauð meðlimum starfshópsins til Hveragerðis þar sem rekstri Heilsu- AðventFréttir 5,1995 17

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.