Aðventfréttir - 01.01.2004, Qupperneq 6

Aðventfréttir - 01.01.2004, Qupperneq 6
AÐVENTFRETTIR ÞJÓÐLENDULÖG VEITA EKKI HEIMILD TIL AÐ SVIPTA MENN EIGN SINNI, HVORKI EIGNARLÖNDUM NÉ ÖÐRUM RÉTTINDUM. ...Kröfur ríkissins um þjóðlendur í Ölfusi selnni tíma samningum og þinglýstum gjörningum. Þeir sem kunnugir eru staðháttum taka eftir að þessi texti lýsir ekki landamerkjum lengra en í Sanddali (eftir Lönguhlíð í Sanddali). Þar fyrir norðan er greinilega látið nœgja að nefna nokkur mikilvœg kennileiti svœðisins svo sem Laka (sem er gígaröð fyrir austan Stóra-Meitil og milli hans og Hellisheiðar) og Reykjafell (sem er upp af Skíðaskálanum í Hveradölum). Hér er ekki verið að nefna punkta sem tilgreina má sem landamerki en þó er gefið til kynna að Hjalli eigi kröfu á landi lengra norður en sem nemur Sanddölum. Þess er ekki getið hvar mörkin ganga nákvœmlega. Þau gcetu því rétt eins hafa verið í toppi Lambafells í tilteknum tíma eins og annars staðar. Varakröfulína Kröfuhafar gera sér grein fyrir þessu og segja á bls. 1 4: "Orðalagið vekur furðu, ef með þessu sé verið að lýsa mörkum jarðarinnar til Reykjafells (þ.e. því Reykjafelli, sem er upp af Skíðaskálanum í Hveradölum,) því Laki er nœr Hjalla og vœri varla þörf að nefna hann ef svo hefði verið.” I Ijósi þessa er varakrafa sett fram af hálfu ríkisins svo hljóðandi (sjá bls. 21): Varakröfulínur: Gerð er varakrafa með línu úr Rauðhól í Lambafell og þaðan í Reykjafell. Varakröfulínan Lambafell í Reykjafell er í samrœmi við landamerkjabréf Hjallatorfunnar og er varakröfulínan sett fram, ef lýsing óbyggðamarka Hjalla samkvœmt máldaganum 1400er vikið til hliðar.” Hœpin krafa? Umrœdd aðalkrafa virðist því ekki vel rökstudd. Enn frekar gcetu rökin talist hœpin í Ijósi eftirtalinna atriða: 1. Núverandi landamerki eru byggð á þinglýstu landamerkjabréfi frá 1 889 sem hafa aldrei áður verið véfengd. Þess má geta að þessi landamerki voru endurtilgreind og merkt með GPS punktum fyrir nokkrum árum og samþykkt af öllum aðilum. 2. Landið hefur verið nýtt af eigendum til beitar og malarnáms um áraraðir sem hafa greitt af því skatta og skyldur. 3. Frá fornu fari stunduðu Þorlákshafnarbœndur selbúskap innan landamerkja Breiðabólstaðar á því landsvceði sem Óbyggðanefnd gerir nú kröfu til, í skiptum fyrir skipsuppsátri Breiðabólstaðabóndans í Þorlákshöfn. Af þessu má ráða að eigandi jarðarinnar hefur getað bannað öðrum aðilum afnot af landinu sem er órœk sönnun þess að um eignarland sé að rœða. I Ijósi ofangreindra atriða virðist sem krafa Óbyggðanefndar gangi lengra en þjóðlendulög veita heimild til en á heimasíðu Óbyggðanefndar segir: "Þjóðlendulög veita ekki heimild til að svipta menn eign sinni, hvorki eignarlöndum né öðrum réttindum. Lögin lýsa íslenska ríkið einvörðungu eiganda landsvceða utan eignarlanda og þeirra réttinda á þessum svceðum sem ekki eru háð einkaeignarrétti.” Aðstoð löamanna Þessu máli er nú fylgt eftir fyrir hönd kirkjunnar af lögfróðum aðilum (Lögmenn Suðurlandi) sem bera fram skýra kröfu af hálfu kirkjunnar um að aðalkrafa ríkisins um mörk þjóðlenda á umrceddu svceði verði látin niður Innsent bréf frá Önnu K. Carvalho í Brasilíu Þann 25. október 2003 létu tveir unglingar frá Sweet Home skírast í kirkju Sjöunda dags aðventista í borginni Atibaia í Brasilíu. Þau heita María de Fatima og Wellington Silva Santos. Enn einu sinni vil ég svo láta þakklceti mitt í Ijós til allra á Islandi sem halda uppi þessu starfi okkar með munaðarlausu börnin. Gjafir ykkar eru ómetanlegar. Megi góður Guð blessa ykkur ríkulega. Anna K. Carvalho Blaðsíða 6

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.