Aðventfréttir - 01.01.2004, Page 11

Aðventfréttir - 01.01.2004, Page 11
Spurningakeppnin Jesús iifir 2004 Biblíuspurningakeppnin Jesús lifir 2004 var haldin þann 27. mars s.l. og tókst hún með ógœtum. Suðurhlíðarskóli metur þann stuðning sem kirkjur keppenda sýndu keppninni og einnig góða stjórn Þóru Jónsdóttur, kennara við skólann. Sem fyrr eru meginmarkmið keppninnar aðallega þrjú eftirfarandi atriði: (a) Að hvetja börnin til að kynnast Biblíunni betur og þar með Guði, höfundi hennar. (b) Að auka óst barnanna ó Guði með aukinni þekkingu ó Orði hans. (c) Að koma til leiðar samverustund með kristnum vinum. Lið komu fró Egilsstaðakirkju, Hóteigskirkju, Islensku Kristskirkjunni, Kefas, Maríukirkjunni og Kirkju sjöunda dags aðventista. Það var mikil eftirvœnting þegar lið fró Egilstaðakirkju var skróð í keppnina. Það komu sjö börn fró Egilstöðum, sem öll höfðu undirbúið sig fyrir keppnina, með flugi og fengu að gista í skólanum. Aðeins þrjú þeirra óttu að fó að keppa en hinir voru varamenn. Þótttaka þeirra veitti okkur mikinn innblóstur. Einn af varamönnum þeirra tók að sér að bjarga öðru lið sem vantaði einn mann og keppti þar af leiðandi með Hóteigskirkju. Þetta viðhorf endurspeglar sannan anda keppninnar. Okkur var sagt að öll börnin í barnastarfi Egilstaðakirkju hafi lesið Lúkasarguðspjall og verið tilbúin í keppnina. Sjö þeirra tóku þótt í forkeppni og fengu að koma með suður. Þökk sé leiðtoga þeirra þó var barn til staðar sem var tilbúið til að keppa og hjólpa öðru liði. Liðið sem lenti í fyrsta sœti var fró Maríukirkjunni. Enn og aftur viljum við þakka Garðari Cortes spyrli keppninnar sérstaklega fyrir hans mikla stuðning. Ahugi hans ó Biblíuspurningakeppninni endurspeglar óhuga hans og kcerleika til barnanna og að þau vaxi í Kristi. Við viljum einnig þakka Eric Guðmundssyni fyrir þó miklu vinnu sem hann hefur lagt í að semja spurningar fyrir keppnina. Við þökkum honum einnig fyrir þann óendanlega stuðning og hvatningu sem hann hefur sýnt okkur sem að þessu höfum staðið. Við viljum líka þakka Öddu Steinu Björnsdóttur og Jóni Karlssyni fyrir að taka að sér ó síðustu stundu að vera dómarar keppninnar. Við viljum einnig nota þetta tœkifœri og þakka Maríu Ericsdóttur fyrir hjólpina, hún hannaði fyrir okkur merki keppninnar sem prentað var ó boli. Börnin og leiðtogar þeirra eiga einnig þökk og heiður skilið fyrir sinn þótt. Við biðjum Guð að blessa þau í framtíðinni og leiða þau ó veginum með Honum. Sérstakar þakkir fó leiðtogarnir sem ekki aðeins hvöttu og hjólpuðu krökkunum heldur aðstoðuðu einnig við skipulagningu og við allskyns verkefni. Við þökkum einnig ykkur öllum sem lögðuð hönd ó plógin og kirkjunum og fleirum fyrir fjórhagslegan stuðning. Megi Guð blessa okkur öll er við höldum ófram að þjóna Honum. Steinunn og Judel. Spenntir áhorfendur á spurningarkeppninni. MARKMIÐ KEPPNINNAR ER: AÐ HVETJA BÖRNIN TIL AÐ KYNNAST BIBLÍUNNI BETUR OG ÞAR MEÐ GUÐI, HÖFUNDI HENNAR; AÐ AUKA ÁST BARNANNAÁ GUÐI MEÐ AUKINNI ÞEKKINGU Á ORÐI HANS; AÐ KOMA TIL LEIÐAR SAMVERUSTUND MEÐ KRISTNUM VINUM. Lið Aðventkirkjunnar. Frá vinstri; Elísa Elíasdóttir, Sigrún Ruth Jack Lopez og Katrín Brynjarsdóttir Blaðsíða 1 1

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.