Aðventfréttir - 01.01.2004, Page 12
AÐVENTFRETTIR
Skátavígsla
Laugardaginn fyrsta maí var skátavígsla hjá
Aðventskátum og Ævintýraklúbbinum.
Vígslan var í kirkjunni í Hafnarfirði. Mœting
var góð hjá skátum, foreldrum og
aðstandendum.
Krakkarnir tóku virkan þátt í vígslunni með
söng, upplestri, tóku upp gjafir og voru með
bœnir. Einnig rifjuðum við upp með myndum
og frásögnum það helsta sem við gerðum í
vetur.
Við afhentum nálar, dugnaðarmerki,
mœtingarverðlaun og vinarverðlaun.
Þökkum fyrir skemmtilegan vetur og hlökkum
til að hitta ykkur aftur í sumar og nœsta
haust.
Foringjar
Skátamót í Bo
Laugardaginn 29.
maí lagði fríður 33
manna hópur af
stað á skátamót.
Ferðinni var heitið
að Klambrakoti 1 í
Borgarfirði en það
er sumarbústaður í
eigu
tengdafjölskyldu
Rutar Jónsdóttur.
Komið var á staðinn
um kl. 17.00 í 20°C
hita og var veðrið
þannig alia helgina.
Veðurblíðan kom
svo sem ekkert á
óvart því mikið
hafði verið beðið
fyrir þessari ferð. Farið var í gönguferðir, fjársjóðsleit, sígið í klettum með aðstoð
Birgis, spilað blak fram eftir kvöldi, farið í sveitasund í Reykjadal í Dölunum, gengið á
Grábrók og farið að Glanna. Varðeldur var á hverju kvöldi en þar var sungið, lesið í
Biblíunni, spjallað, beðið og bakað. Eric og Laila komu í heimsókn með andlegan
boðskap og þökkum við þeim kœrlega fyrir. Krakkarnir stóðu sig sem best var á kosið
og vináttan styrktist með hverjum deginum. Allir komu vel þreyttir og útiteknir til baka.
Við foringjarnir viljum þakka fyrir frábœrt mót.
Það sem er framundan:
Við viljum minna á að Aðventskátarnir verða með sölutjald á 17. júní og vonumst við til
að sem flestir sjái sér fœrt að heimsœkja okkur þar. Góður hópur fer á skátamót til
Irlands í lok júlí. Skátafundir hefjast aftur þann 1 9. september.
rgarfiroi um hvítasunnuna
Þökkum kœrlega góðan stuðning.
Blaðsíða 1 2