Aðventfréttir - 01.01.2004, Page 13

Aðventfréttir - 01.01.2004, Page 13
Æskulýðshelgi með Willy Aronsen Willy Aronsen, œskulýðsleiðtogi Norðmanna, sótti okkur heim helgina 21.-23. maí. Hann prédikaði á hvíldardeginum í Hafnarfirði. A eftir samkomuna og veglegan lukkupott var svo haldið til Þingvalla en þar arkaði unga fólkið um þrótt fyrir nokkra rigningu. Þegar mannskapurinn var um það bil að rigna niður var afróðið að leita skjóls í sumarbústaðnum hjó Boggu og Jóni nœrri Laugarvatni. Þar áttum við góða stund saman. Þrátt fyrir rigninguna gerðu Birgir og Andri sér lítið fyrir og grilluðu ofan í hungraða ferðalangana. Þegar búið var að fóðra magann talaði Willy til okkar um mikilvœgi þess að fylgja frelsara okkar, auk þess sem að hann stjórnaði fjöldasöng. Á sunnudagsmorgninum hitti Willy svo skátaforingja og verðandi skátaforingja að máli í Suðurhlíðarskóla og miðlaði af þeirri miklu reynslu sem hann hefur á því sviði. Freyja, Katrín og Kristján fylgjast vel með hugleiðingu Willy frá svefnloftinu! Skíðaferðalagið 2004 Á skíðum á Siglufirði með Paul Tompkins frá Stór- Evrópudeildinni. Frá vinstri: Birgir, Hlynur, Gyða, Auðbergur, Karl, Laura (dóttir Pauls), Doville, Paul og Gavin. Blaðsíða 1 3

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.