Aðventfréttir - 01.03.2009, Qupperneq 2

Aðventfréttir - 01.03.2009, Qupperneq 2
Efni Aðventfrétta að þessu sinni er hinir síðustu tímar. Ég er oft spurður þessa dagana: Er koma Krists ekki mjög nálæg nú? Er það sem við sjáum gerast í samtímanum ekki augljós tákn endurkomunnar sem við finnum skráð í Orði Guðs? í uppvexti mínum minnist ég þess að meira var talað í kirkjunni um endurkomu Krists þá en nú seinni árin. En þau tákn sem mönnum var starsýnt á þá voru styrjaldirnar og kjarnorkuváin - sem eðlilegt var vegna kalda stríðsins, náttúruhamfarirnar og þær hör- mungar sem koma munu yfir heiminn. En á okkar tímum hafa önnur tákn endalokanna fengið nýtt vægi: Ásig- komulag mannshjartans sem leiðir til siðferðishruns. Við höfum séð hvernig viðhorf sem eru í hrópandi andstöðu við meginreglur Guðs hafa rutt sértil rúms innan okkar litla þjóð- félags og um heim allan. Þegar við sjáum þá spillingu og siðblindu sem gripið hefur um sig fá orð Jesú nýtt vægi þar sem hann segir: „Vegna þess að lögleysi magnast mun kærleikur flestra kólna" (Mt 24.12). Páll tekur undir þetta: „Á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir. Menn verða sérgóðir, fégjarnir, raup- samir, hrokafullir, illmálgir, óhlýðnir foreldrum, vanþakklátir, guðlausir, kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir og andsnúnir öllu góðu, sviksamir, framhleypnir, drambsamir og elska munaðarlífið meira en Guð. Þeir hafa á sér yfir- skin guðhræðslunnar en afneita krafti hennar“ (2Tm 3.1-5). Þetta er rót þess vanda sem leiðir til frekari hnignunar samskipta manna á meðal og á sviði alþjóðlegra sam- skipta: „Þér munuð spyrja hernað og ófriðartíðindi." „Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki“ (Mt 24.6,7). En einnig náttúran talar sínu máli: „Þá verður hungur og landskjálftar á ýmsum stöðum" (Mt 24.7). „Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum.“ „Kraftar himnanna munu riðlast" (Lk 21.25, 26). Og af þessu öllu leiðir að ótti og kvíði mun aukast: „Angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný. Menn munu falla í öngvit af ótta og kvíða“ (Lk 21.25, 26). En þegar allt virðist glatað að mann- legum skilningi er sigur búin þeim sem Guði treysta: „Sá sem staðfastur er allt til enda verður hólpinn" (Mt.24.13). Boðun orðs Guðs mun eflast: „Fagnaðarerindið um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina til þess að allar þjóðir fái að heyra það. Og þá mun endi- rinn koma“ (Mt 24.13, 14). Loks mun lokasigur ríkis Guðs birtast öllum mönnum, sem Daníel talar um: „Á dögum þessara konunga mun Guð himnanna magna upp ríki sem aldrei mun hrynja og ekki verða selt annarri þjóð í hendur. Það mun eyða öllum þessum ríkjum og gera þau að engu en standa sjálft að eilífu. Það er steinninn sem þú sást losna úr fjallinu, án þess að nokkur manns- hönd kæmi nærri, og mölvaði jafnt járn sem eir, leir, silfur og gull“ (Dn 2.44, 45). Því að framtíðarörlög heimsins eru í Guðs hendi en ekki óvinarins: „Réttur verður settur . . . og konungsveldi, vald og tign allra konungsríkja undir himninum verður fengið hinum heilögu Hins æðsta. Konungdæmi þeirra verður eilíft konungdæmi og því munu öll ríki þjóna og hlýða" (Dn 7.26, 27). Já, hin mikla björgun Guðs er fram- undan: „Míkael, leiðtoginn mikli, sem verndar syni þjóðar þinnar, mun þá birtast. . . . Á þeim tíma mun þjóð þín bjargast, allir þeir sem skráðir eru í bókinni. Margir þeirra sem hvíla í dufti jarðar munu upp vakna, sumir til eilífs lífs, aðrir til lasts og ævarandi smánar. Hinir vitru munu skína eins og björt himinhvelfing og þeir sem beina mörgum til réttlætis verða sem stjörnur um aldur og ævi“ (Dn 12.1- 3). Hvernig má takast á við fréttirnar sem við heyrum daglega í fjöl- miðlum? Þessi heimur er haldin sjúkdómi sem mun leiða hann til dauða og einkennin eru sífellt að koma betur í Ijós. En i stað þess að fyllast vonleysi og kvíða segir Jesús að þetta sér í raun tími til að fyllast gleði: „Réttið úr yður og berið höfuðið hátt því að lausn yðar er í nánd“ (Lk 21.28). Allt eru þetta vor- merki sem gera vart við sig kringum okkur: „Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám. Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður að sumarið er í nánd. Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd" (Lk 21.29- 31). Er koma Krists mjög nálæg nú? Er það sem við sjáum gerast í sam- tímanum augljós tákn endurko- munnar? Kristur minnir okkur á að enginn þekki daginn né stundina nema faðirinn einn. En örvænting nútímans örvar svo sannarlega þrá Aðventfréttir 71. ÁRG. - 8. T B L . 2008 Útgefandi KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA A ÍSLANDI Suðurhlið 36 105 R e y k j a v i k Simi: 588- 7800 Fax: 588-7808 sda@adventistar.is Ritstjóri & Ábyrgbarmaður: £ ri c Guðmundsson Sérstakar þakkir til: AÐALBJARGAR ELLERTSDÓTTUR , ÖNNU K JARTANSDÓTTUR, Chao og Fadia Kreuzer, Manfred Lamke, Steinunnar T HEODÓRSDÓTTUR OG RÖSU TEITSDÓTTUR FYRIR EFNI í B L AÐIÐ . Adrian Lopez, Editar VÉMUNDSDÓTTUR, ÍRISI ALBERTSDÓT- TUR, STEINUNNAR T h e o d ó r s d ó t t u r og Tomasi Vaiciulis FYRIR MYNDIR í BLABIÐ AÐVENTFRÉTTIR • MARS 2009

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.