Aðventfréttir - 01.03.2009, Side 4

Aðventfréttir - 01.03.2009, Side 4
Vonarboðskapur Aðventkirkjunnar Frá Manfred Lamke Newbold College, England Aðventkirkjan hefur frá upphafi verið áhugasöm um endalokin. Kirkjan byggir mikió af sínum kenningum á arfleifö William Miller sem stundaði rannsóknir á spádómum um endalokin af einstöku kappi. Þegar ég var kennaranemi í Sviss fyrir allmörgum árum, þurftum við að læra um aðrar mismunandi kirkjur og helstu kenn- ingar þeirra. Tilgangurinn var sá að við sem kennarar værum undirbúin að taka á móti börnum frá mismunandi söfnuðum og gætu þar af leiðandi haft sérstakar þarfir i skóla. A þessum tíma vissi ég ekki neitt um Aðventkirkjuna og tilheyrði „evangelísku- mótmælendakirkjunni". Ég man alveg hvernig mér leið þegar ég las um kirkjurnar sem voru kallaðar „apokalyptiskar“ (þ.e. þær miðuðu við að heimurinn eins og hann er nú myndi enda). Ég skildi ekki hvernig trúað fólk gat verið með endalok heimsins „á heilanum“ og byggt alla sína trú á þeirri staðreynd. Minn Guð talaði um góðmennsku, fegurð og leyndardóma lífsins, en ekki um dóm og endalok. Hins vegar verð ég að viðurkenna að margt sem ég sá þá í heiminum passaði ekki við þessa guðsmynd sem ég hafði og mér þótti það óþægilegt. Síðan eru mörg ár liðin og nú finn ég sjálfan mig í Aðventkirkjunni og í meistaranámi í guðfræði ásamt Þóru, konu minni! Við sitjum hér á bóka- safninu dag efltir dag, njótum hverrar stundar og þökkum Guði fyrir þetta ómetanlega tækifæri sem okkur hefur verið gefíð. Hefur þá guðsmynd mín breyst síðan í gamla daga? Hvað er það sem sann- færði mig um að Aðventkirkjan er mín kirkja? Að sjálfsögðu hef ég lesið og lært um spádómana miklu í Daníel og Opinberunarbókinni og lesið Deihma miklu. Ég geri mér grein fyrir því að minn skilningur á hlutum er tak- markaður og háður því sem Guð ákveður að skammta mér hverju sinni. En samkvæmt því sem ég skil í dag, er ég sannfærður um að boðskapur kirkjunnar okkar um endalokin er réttur og ég trúi því að Ritningin og margt sem við sjáum gerast í heiminum í dag beri skýr vitni um það. Hvað þá með guðsmyndina? Já, ég vona svo sannarlega að guðsmynd mín hafi breyst, og ég vona að hún eigi eftir að vaxa og þroskast svo lengi sem ég lifi. Að vera kristinn er að mínu mati að vera á ferðalagi, en ekki að vera á áfangastað. Að vera kristinn er að leita sannleikans. Samt finn ég með mér að guðsmyndin sem ég hafði var í grunninn ekki röng. Ennþá talar Guð til mín um góðmennsku, fegurð og leyndardóma lífsins. I dag frnnst mér samt að ég skilji betur hvernig allt var fullkomið í upphafi, en fór úrskeiðis vegna þess að maðurinn valdi rangt í Paradís (1. Mó- sebók 3. kafli). Allt í þessum heimi er undir skugga syndarinnar og dauðans. En Guð lætur þetta ekki afskiptalaust. Við lesum í fyrstu Mósebók 15. kafla hvernig hann lofar Abraham að af hans ætt myndi lausn vanda syndarinnar koma. Þetta loforð stendur enn. Koma Jesú Krists ber vott um það. En sögunni er ekki lokið. Ef við lesum bréf Páls postula, þá er undravert hversu oft hann vitnar í Abraham og sáttmálann sem Guð gerði við hann. Þessi sáttmáli, að Guð muni koma heiminum aflur í rétt horf, stendur og við bíðum eftirvænt- ingarfull effir því. Við erum í sömu sporum og Davíð þegar hann skrifaði 89. sálminn. Lesum hann. Við vitum af loforði Guðs, en við vitum að við erum öldungis ekki að lifa samkvæmt vilja Guðs. Þetta kennir okkur auðmýkt, vegna þess að við skiljum að við, ásamt Davíð (Sálmur 51) og Páli (Rómverjabréfið 7.15-25) og öllu mannkyninu, erum ófullkomin og getum ekki lifað samkvæmt vilja Guðs. Að sjálfsögðu reynum við að gera okkar besta. Við erum nú einu sinni börn Guðs og okkar líf hlýtur að endurspegla það, en aldrei fullkomlega. Dag einn munu hlutirnir þó breytast. Dag einn verður ekki til nein synd. Dag einn munu vonir okkar um réttlæti rætast. Paradís á ný. Þessa von las ég út úr boðskap Aðventkirkjunnar. Áður fyrr skildi ég ekki hvernig hið góða sem ég fann koma frá Guði passaði saman við illskuna sem ég sá í heiminum. En loforðið um endalokin, sem Abraham fékk frá Guði, og sem er endurtekið margsinnis í Biblíunni, gaf mér svör. Núna veit ég hver tilgangurinn er með endurkomunni. Hann er ekki að eyðileggja heiminn, eins og ég hélt í fyrstu. Þetta verður ekki dagur reiði, heldur dagur gleði og uppfylltra loforða. Jú, hið illa og hinn illi munu ekki gleðjast, en við sem höfum glímt við syndina, þjáðst af henni, og iðrast, við verðum endurleyst. ísland er öldungis í stórsjó um þessar mundir. Við höfum orðið vör við mikinn samhug hér í Englandi. Ég hef undir höndum óútfyllta ávísun frá góðum vini sem ég má nota hvenær sem er ef fjárhagsástand fjölskyldunnar krefðist þess. Guði sé lof fyrir það að við höfum ekki þurft að nota ávísunina. En traustið og vinskapurinn sem okkur hefur verið sýndur með þessu vekur hjá mér djúpa tilfinningu sem er erfið að lýsa. Ef til vill er grátur það sem kemst næst því að lýsa henni. Fyrir mér er þessi ávísun ekki bara vinargreiði, heldur vitnisburður. Ekki misskilja mig þannig að ég haldi að við ættum nú að ganga um og dreifa óút- fýlltum ávísunum, það eru til fleiri leiðir. Talandi um að dreifa, þá minnir það mig á að nýlega var bæklingi dreift til allra heimila á íslandi með heitinu Baráttan bak við tjöldin. Efhi bæk- lingsins er okkur Aðventistum vel kunnugt, boðskapur englanna þriggja úr fjórtánda kafla Opinberunar- bókarinnar. Venjulega finnum við höfund bóka ásamt fleiri upplýsingum um uppruna og tilurð hennar á fyrstu síðum, en hér koma nöfnin Bente og Abel Struksnes fram sem eins konar kveðja eða undirskrift í lokin. í bæk- lingnum er ekki að finna neinar ábendingar um kirkju eða samtök, því hlýtur undirritað fólk að vera eitt ábyrgt I AÐVENTFRÉTTIR • MARS 2009

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.