Aðventfréttir - 01.03.2009, Qupperneq 15

Aðventfréttir - 01.03.2009, Qupperneq 15
Guðbjörg María á skíðum í í'yrsta sinn Svipmyndir frá barnastarfi kirkjunnar og Suðurhlíðarskóla Kakótími með skólastjóranum Álfheiður og Þura þreyttar eftir skíðaferð Á skíðum skemmti ég mér Skíðaferð Suðurhlíðarskóla í Skólafell Nemendur Suðurhlíðarskóla voru glaðir að fá frí í skólanum og mega skella sér á skíði. Það var nokkuð kalt í fjallinu en þau létu það ekkert á sig fá. Þau vermdu sér bara í sólinni og með heitu kakói. Starfsfólkið í skálanum var sérstaklega ánægt með hópinn því þau gengu svo vel um og voru kurteis, hress og kát. Þrefalt húrra fyrir þeim! Húrra, Húrra, Húrra! Bryndis Mjöll og Aðalbjörg »’ J Leikjakvöld í Loftsalnum í Hafnarfirði Jón Steinar, Emma og Álfheiður í snjónum Glaðbeittir drengir að vinna ritun Líffrœðitími í Suðurhlíðarskóla Grœnilundur Suðurhlíðarskóli er staðsettur við Fossvoginn og er umhverfi skólans mjög fjölbreytt. Stutt er að fara í fjöru, skóg og móa. Kennarar notfæra sér þetta návígi við náttúruna til að gera kennslu í hinum ýmsu greinum meira lifandi. Virðing við náttúruna er höfð að leiðarljósi og nemendum kennt mikil- vægi þess að axla ábyrgð á umhverfisvernd. Fjaran, sem er steinsnar frá skólanum, er gjarnan nýtt sem útikennslustofa þar sem t.d. náttúrufræði verður áþreifanlega raunveruleg. Rétt hjá skólanum er “Grænilundur”, sem er svæði í eigu Reykja- víkurborgar sem Suðurhlíðarskóli hefur tekið í fóstur. I Grænalundi fá nemendur tækifæri til að kynnast trjárækt með eigin höndum og hjörtum. Að nota hendurnar er ekki síður mikilvægt en það að nota hugann og á vorin setja nemendur niður kartöflur í Grænalundi. Þau fá síðan að njóta þeirrar einstöku upplifunar sem felst í því að neyta eigin uppskeru í mötuneyti skólans á haustin. Búið er að smíða bekki í útiskólastofuna þar sem unnin eru ýmis skemmtileg verkefni sem auðga og efla námið. Einnig er stefnt að því að smíða borð. Grænilundur að vetri til Ragga og Marel steikja pönnukökur í Grænalundi AÐVENTFRÉTTIR • MARS 2009~|

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.