Aðventfréttir - 01.03.2009, Side 16
Minning
Cjyða TfiorocCcCsen
F. 8. september 1920
D. 27. nóvember 2008
Gyða Thoroddsen fæddist í Vancouver,
British Coloumbia 8. sept. 1920. Hún
andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar 27.
nóvember 2008. Foreldrar hennar voru
Þorvaldur Skúlason Thoroddsen og
Hólmfríður Aradóttir. Þau voru bæði
Vestur-íslendingar og kynntust vestan
hafs. Þorvaldur faðir hennar fæddist á
Bessastöðum og var einn margra í
systkinahópi Skúla Thoroddsen og
Theodóru Thoroddsen, en Hólmfríður
var ættuð úr Grímsnesi, en frændi
hennar var Loftur Arason, þekktur lista
og hagleiksmaður.
Gyða var elst þriggja systra. Eftir-
lifandi systur hennar eru báðar ekkjur
og búsettar í Bandaríkjunum. Þóra býr í
Loma Linda, Kaliforníu og Nanna í
Walla Walla, Washington fylki. Gyða
ólst upp á heimili foreldra sinna í
Powell River í British Coloumbia.
Árið 1937 fór hún til Ontario, Kanada
og var um skeið hjá Sigurði Arasyni
frænda sínum og stundaði píanónám.
Árið 1938 flutti fjölskylda Gyðu til
íslands en var ekki lengi hérlendis
vegna kreppunnar sem þá ríkti og fór
því aftur vestur um haf. Gyða varð þó
eftir og fór í hjúkrunarskólann í
Reykjavík. I Reykjavík kynntist hún
verðandi eiginmanni sínum Torfa
Maronssyni á stríðsárunum. Torfl hafði
komið heim frá námi í sjúkraþjálfun í
Noregi, en hafði hugsað sér að fara
aftur til Noregs. Dvöl hans ílengdist
vegna stríðsástandsins, að sögn, en
sennilegri er sagan sem segir að stúlka
nokkur haft átt hug hans allan. Torfi og
Gyða giftu sig svo árið 1943 og settust
að á Akureyri.
Árið 1952 fékk Gyða berkla og lagðist
ásamt dóttur sinni Ólöfu Regínu á
Kristneshæli. sem þá hét, og dvaldi þar
í um tvö ár.
Árið 1956 flutti svo fjölskyldan fram í
Kristnes og bjó Gyða þar allar götur
síðan og vann á Kristnesspítala, fyrst
sem hjúkrunarfræðingur, en um margra
ára skeið sem hjúkrunarforstjóri. Það
fór mikið og gott orð af forystu- og
stjórnunarhæfileikum hennar. Um leið
var hún þjónustulipur.
Árið 1990 lét Gyða af störfum en bjó
áfram á staðnum. Hún sat aldrei iðju-
laus, né lét sér detta í hug að éta
letinnar brauð. Til marks um það átti
hún stórt gróðurhús, ásamt mat-
jurtagarði, auk trjáplantna sem hún
hafði gróðursett.
Hún bjó yfír miklum listrænum hæfí-
leikum. Séra Bolli heitinn Gústafsson í
Laufási lét þau orð falla er hann sá verk
hennar að hún hefði mikla listræna
hæfíleika. Fjöldi vatnslitamynda liggja
eftir hana. Margar þeirra prýða veggi
heimila, að ógleymdum öllum
postulínsvösunum og diskunum sem
hún málaði. Hún keypti yfírleitt ekki
mörg jólakort heldur sendi mörgum
handmáluð kort.
Gyða tók þátt í félagsstarfí Zonta
klúbbs Akureyrar og síðustu árin tók
hún einnig þátt í félagsstarfí aldraðra í
Eyjafjarðarsveit.
Elst barna Torfa og Gyðu er Þorvaldur,
tannlæknir, búsettur í Kaliforníu. Hann
og kona hans, Lou Ann, læknir, eiga 3
börn: Orlyn Ingva , Önnu Ragnhildi og
Skúla Jón. Næstur er Skúli, einnig
tannlæknir. Kona hans er Ella Kristín
Jack, hjúkrunarfræðingur, og eiga þau
Kristínu Þóru, Gyðu Hlín, Theodóru
Mjöll, Ómar Smára og Róbert Jón.
Næstur í röðinni er Ómar, sjúkra-
þjálfari. Kona hans er Guðrún Sigríður
Kristinsdóttir, sérkennari og leikskóla-
kennari. Dóttir þeirra er Aníta Þöll, en
Ómar á einnig Torfa Pál og Ester Lilju
frá fyrra hjónabandi. Yngst er Ólöf
Regína Torfadóttir, tannlæknir. Maki
hennar er Sigurður Eggert Davíðsson,
kennari. Börn þeirra eru Hólmfríður
Helga og Guðbrandur Torfí. Gyða átti
einnig þrjú langömmubörn.
Postulinn Jóhannes „heyrði rödd af
hirnni, sem sagði: Rita þú: Sælir eru
dánir, þeir sem í Drottni deyja upp frá
þessu. Já, segir Andinn, þeir skulu fá
hvíld frá erfíði sínu, því að verk þeirra
fylgja þeim.“ Ávöxtur huga og handar
Gyðu, munu lofa hana um ókomin ár.
Það segir einnig í Heilagri Ritningu að
”sú kona, sem óttast Drottin, á hrós
skilið.” Guðsótti var andardráttur sálar
Gyðu. Þakklæti hennar fyrir frið-
þægingardauða Jesú Krists var öllum
augljóst sem við hana töluðu. Sjálfs-
hrós var aldrei á hennar vörum. Fyrir-
gefning og réttlæti Krists var hennar
eina vöm og skjöldur í ófullkomnum
heimi. Kraftur og tign réttlætis Jesú
Krists var klæðnaður hennar, og
óhrædd fagnaði hún því komandi degi.
í samtölum opnaði hún munninn með
speki fagnaðarerindisins, ástúðleg
fræðsla var því á tungu hennar. Bjart
bros hennar og hlýtt viðmót bar þess
glöggan vott að hún hafði numið
kærleika í skóla Krists. Blessuð sé
minning hennar um aldur og ævi.
Björgvin Snorrason
Minning
(guðný SígurCeíf StefánscCóttír
F. 14. febrúar 1918
D. 15. janúar2009
Guðný Sigurleif Stefánsdóttir lést á
Landakotsspítala þann 15. janúar. Hún
fæddist 14. febrúar 1918 í Geirlandi í
Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar
voru þau hjónin Stefán Vilhjálmsson,
| AÐVENTFRÉTTIR • MARS 2009