Aðventfréttir - 01.08.2009, Qupperneq 3
Samþykktir og bókanir stjórnar Kirkju sjöunda dags aðventista
febr. mars og apríl 2009
Að styrkja boðunarátak á vegum Reykjavíkur-
safiiaðar (samkv. helmingunarreglu) sam-
kvæmt kostnaðaráætlun, að hámarki 200.000
kr., úr útbreiðslusjóði.
Að stjómin veitir Eric Guðmundssyni umboð
til að undirrita samrunaskjal og stofhskjal fyrir
hönd Kirkjunnar vegna makaskipta á hluta af
landi Breiðabólstaðar í Ölfiisi, sem er í eigu
Kirkjunnar, og hluta landi Lambhóls sem er í
eigu Orkuveitu Reykjavikur.
Stjómarmenn skrifuðu undir yfirlýsingu um
hagsmunaárekstur.
Fjárhagsáætlun Kirkjunnar 2009 samþykkt:
• Tíundin er áætluð kr. 35.019.000,00 sem
em 93,12% af tíund samtals árið 2008,
þ.e. kr. 37.604.424,00.
• Tíundaprósentur til SED em 5,0%.
• Tíundarprósentur til SED og Aðalsamtak-
anna em 11%
• „Tithe Reversion from SED”, sem er 30%
af tíundaprósentum til SED, er fært í út-
breiðslusjóð.
• Fjárveitingar frá SED em yfirfærðar og
notað gengið 1£ á kr. 140
• 250.000 kr. yfirfært úr varasjóði vegna
námsstyrks.
• 900.000 kr. yfirfært úr varasjóði vegna
fjárveitingar til Frækomsins
• 540.000 kr. yfirfært úr tölvu- og bókhalds-
sjóði vegna tölvukaupa fyrir presta
• Kirkjan á töluvert lausafé i banka vegna
sölu fasteigna. A sama hátt og undanfarin
ár er stór hluti vaxta notaður i rekstur
Kirkjunnar. Þetta er hugsað sem tíma-
bundin lausn.
• Launakiör starfsmanna:
• Launahækkun milh ára er 11,47%, 100%
laun hækka úr kr. 232.120,00 í kr.
258.744,00 á mánuði.
• Húsnæðisstyrkur er 40% af 100% launum
og hækkar um 11,47%, þ.e. úr kr.
92.848,00 í kr. 103.498,00.
• Tryggingargjald helst óbreytt 5,34%
• Mótframlag lífeyrissjóðs helst óbreytt 8%
• Mánaðargjald símastyrks hækkar úr kr.
1.550 íkr. 1.650.
• Mánaðargjald intemetstyrks helst óbreytt
kr. 3.990.
• Akstursgjald mun miðast við 85% af
akstursgjaldi opinberra starfsmanna. Til
að ná þvi takmarki hækkaði akstursgjald í
tveimur þrepum, árið 2008 úr kr. 40 í kr.
50 pr. km., og nú i kr. 60 pr. km.
• Kirkjan mun greiða fyrir tölvu presta
starfsins á þriggja ára fresti. Tölvumar
verða eign Kirkjunnar og afskrifást á
þremur ámm.
• Bóka- og tækjastyrkur er kr. 40.000,00.
• Hækkun orlofs er hjá VR úr kr. 18.400,00
í kr. 19.000,00 og hjá Eflingu úr kr.
24.300,00 í kr. 25.200,00.
• Hækkun desemberappbótar er hjá VR úr
kr. 50.000,00 f kr. 51.800,00 og hjá Efl-
ingu úr kr. 44.100,00 í kr. 50.000,00.
Fjárhagsáætlun Frækomsins 2009 samþykkt.
Stjóm Kirkjunnar hittist með stjóm Boðunar-
kirkjunnar og ræddu saman og höfðu bæna-
stund.
Að söfhuðir skili lista yfir fúlltrúa síns
safnaðar á 37. aðalfúnd Kirkjunnar fyrir 31.
mars 2009 á skrifstofú Kirkjunnar.
Móttekið bréf frá Aðventsýn, þar sem ný
stjóm biður stjóm Kirkjunnar að velja einn
stjómarmann í stjóm Aðventsýnar, sem er
samkvæmt lögum Aðventsýnar.
Að biðja Elías Theódórsson að vera fúlltrúi
stjómarinnar í Aðventsýn.
Að veita styrk úr útbreiðslusjóði sem jafn-
gildir 15 eintökum af Þrá aldanna, til að gefa
ráðherrum ríkisstjómarinnar.
Að leita til safnaðarfólks um þátttöku í
kaupum á 54 eintökum á bókinni Þrá aldanna
til að gefa núverandi þingmönnum og fyrrver-
andi ráðherram. Að veita styrk úr útbreiðslu-
sjóði fyrfr mismuninum, ef ekki safriast fyrir
öllum bókunum.
Að sækja um styrk til Global Mission sem
samsvarar 50% starfshlutfalli prests, svo að
Kirkjan á íslandi geti tekið þátt í verkefni á
vegum SED varðandi prestsþjónustu á
vefhum.
Að hækka starfsprósentu þriggja nýrra starfs-
manna úr 75% í 100%, enda fái kirkjan styrk
vegna 50% starfs vefþrests úr Heimsboðunar-
sjóði Stór-Evrópudeildarinnar. Með þessu
gerir stjómin sér grein fyrir þvf að hún er að
fara fram úr fjárhagsáætlun, um upphæð sem
samsvarar 25% starfshlutfalli frá byijun árs
2010. Einn stjómarmanna sat hjá við þessa
samþykkt.
Að stefiia að þvi að hafa fúnd með samfélag-
inu á Akureyri 24. apríl 2009.
Að senda þjónustubeiðni vegna eftirfarandi
heimsókna:
Jiri Muskala, 19.-21. júni 2009 og G. Edward
Reid, 18.-19. september 2009.
Að viljayfirlýsingin stendur um að Eden
Consulting ehf fái Lambafellsnámuna til af-
nota meðan rannsóknir á efninu og viðræður
við erlent fyrfrtæki standa yfir. Að veita Eden
Consulting leyfi til að vinna námuna í 2 ár á
meðan ferlið stendur yfir, á sambærilegum
samningi og gerður var um Sandfellsnámuna.
Samþykkt með öllum atkvæðum nema einu.
Að boðað verði til kynningarfúndar sunnudag-
inn 24. maí kl. 16:00, að loknum aðalfúndi,
þar sem þetta mál verði kynnt safhaðarmeð-
limum.
Að veita bömum sem fara á bamamót haldið á
Hlíðardalsskóla (17.-18. maí 2009) styrk, sem
um það sækja, að upphæð kr. 2.000 á mann,
úr bamastarfssjóði.
Samþykkt breytingartillaga frá laganefnd sem
verður send til samþykktar á aðalfúndi
Kirkjunnar.
Að biðja 1. Halldór Engilbertsson og 2. Frode
Jakobsen að sjá um fúndarstjóm á aðalfúndi
Kirkjunnar. Að Björgvin I. Helgason verði til
vara.
Að biðja Jóhönnu A. Jóhannsdóttur að vera
fúndarritara á aðalfúndi Kirkjunnar.
Að dagskrá fúndarins með samfélaginu á
Akureyri (föstudaginn 24. apríl) verði eftirfar-
andi:
1. Velkomin, riming og bæn
2. Framtíðarsýn Samfélagsins á Akureyri
3. Húsnæðismál Samfélagsins
4. Þjónusta við Samfélagið af hálfú
Kirkjunnar
5. Önnur mál
Að setja 13.000.000 kr. af rekstrarafgangi
2008 í eftirfarandi sjóði:
150.000 kr. í Útbreiðslustarfssjóð Akureyri
2.850.000 kr. í Íbúðasjóð/Byggingasjóð
10.000.000 kr. í Lífeyrissjóð (nýr sjóður
stofhaður vegna lífeyrissjóðskuldar
Kirkjunnar)
Að færa þá upphæð sem stendur á Hands
Across the World sjóðnum, kr. 340.483,87, í
Útbreiðslustarfssjóð Akureyri, þar sem sá
sjóður (Hands Across the World) var
hugsaður fyrir útbreiðslustarf á Akureyri.
Að þar sem styrkur sem var veittur félaginu
Betri heilsa, betra líf (BHBL) vegna boðunar-
starfs (biblíustarfsmenn 2006) var ekki nýttur
að fúllu, þá hefúr BHBL endurgreitt það sem
út af stóð, inn í útbreiðslusjóð.
AÐVENTFRÉTTIR • ÁGÚST 2009