Aðventfréttir - 01.08.2009, Síða 12
Nokkrir einstaklingar úr Hafiiarfjarðar-
söfiiuði stóðu fyrir útilegu í byrjun júlí.
Ekkert var ákveðið um áfangastað fyrr
en búið var að lesa veðurspánna. Þar
sem besta veðrið átti að vera á vestur-
landi var haldið upp í Borgarfjörð.
Ferðinni var heitið að Fossatúni í
Lundareykjadal. Þar er prýðisaðstaða
sem innifelur meðal annars, sturtur og
heita potta, mini golf, risa tafl, úti
keiluspil og leyfi til að veiða í ánni.
Allt umhverfið var fagurt á að líta og
fslensk náttúra eins og best verður á
kosið.
Hópurinn átti þama góða daga saman í
yndislegu veðri. Það var farið í göngu-
ferðir, sungið og farið var yfir Biblíu-
lexíuna úti í Guðs grænni náttúrunni.
Þar sem útilegan heppnaðist mjög vel er
mikill áhugi á því að gera þetta að ár-
legum viðburði og þá geta enn fleiri
bæst í hópinn.
Það var mikið á sig lagt til þess að standa á
höndum. Aðalbjörg, Hanna L. og Sigrún
sýna frábæra takta
Mini golfið var vinsælt og mikið um tilþrif
Upprennandi ljósmyndari
| AÐVENTFRÉTTIR • AGÚST 2009