Aðventfréttir - 01.08.2009, Page 15
Barnastarfið á sumarmótinu
Bamastarf sumarmótsins í ár bar yfir-
skriftina Regnbogaferðalag. Mark-
miðið var að sýna krökkunum að við
emm öll á lífsins ferðalagi og besta
leiðin til að takast á við þetta ferðalag
er að hafa Jesú að fararstjóra og
Biblíuna að leiðsögubók. Jesús er sá
eini sem getur gefið okkur eilíft líf og
leitt okkur að lokum til himna þar sem
við munum ganga á gullgötum, hoppa á
skýjum og leika okkur á strætum Nýju-
Jerúsalem um alla eilífð í nánu sam-
neyti við Jesú (krakkarnir geta sagt
ykkur frá því að við “gengum á
skýjum" og fóram í "veislu", svona rétt
til að fá forsmekk að gleðinni á
himnum).
Við lærðum að sem ferðafélag (kirkja)
verðum við að vinna saman. Við eram
ólík eins og mismunandi ffurnur
líkamans eru ólíkar (og litir regn-
bogans) en saman getum við unnið sem
einn líkami með Krist sjálfan sem
höfuðið. Þá skoðuðum við þær gjafir
sem Guð gefur okkur: tímann, efnisleg
gæði, hæfileika og líkama okkar. Við
komumst líka að því að til viðbótar
þessum gjöfum vill Guð gefa okkur
frið, kærleika, þolinmæði og fleiri
andlegar gjafir. Við ákváðum sem
ferðafélag að nota það sem Guð hefur
gefið okkur til góðs, en ekki að grafa
það í jörðu eða sólunda því á annan
hátt. I síðasta ferðalagi helgarinnar
sáum við hvemig Jesús notaði þann
tíma sem hann fékk fýrir aðra og
hvemig hann var alltaf tilbúin að hjálpa
öðrum. Við ákváðum að nota tímann
okkar sem ferðafélag í að vinna það
verk sem Jesús bað okkur að gera
þangað til að hann kæmi aftur og
dýfðum okkur í þjónustu! (sumir mjög
bókstaflega). Besta þjónustan sem við
getum veitt er að hjálpa öðram sem
þurfa á aðstoð okkar að halda og bjóða
þeim með í ferðalagið til himna.
Þá verður ekki annað sagt en að við
höfum aldeilis lagt land undir fót þessa
helgina því við ferðuðumst líka til
ýmissa landa til að kynnast fleirum sem
einnig hafa valið að gera Jesú að farar-
stjóra sínum. Þar fengum við líka að sjá
og upplifa ólíka hluti. Þegar við fórum
t.d. til Afríku sáum við risastórt slöngu-
skinn, í Kína lærðum við að borða með
prjónum, í Brasilíu hittum við 9 ára
stelpu sem sér um eigin útvarpsþátt og í
S-Kóreu lærðum við að gera pappírs-
fugla og gerðum armbönd:) Allir vora
auðvitað með ferðatöskur og fengu
stimpla í vegabréfið í hverju nýju landi.
Við viljum að lokum þakka öllum þeim
sem hjálpuðu okkur með einum eða
öðrum hætti til þess að gera þessa dag-
skrá mögulega, öllum krökkunum fýrir
að mæta og standa sig svona vel (ÞIÐ
ERUÐ SKO FLOTTIR FERÐA-
FÉLAGAR!) og að síðustu ber að
þakka Guði sem alltaf sér fýrir öllum
okkar þörfum.
Armann, Guðný Lilja, Hlynur, Sonja og
Þóra Lilja.
Stimplað í vegabréfin
Einn, tveir og allir í röð
^'va ■' -* *f /i " 44 - O -j •Vi jr Yngstu börnin fengu líka eitthvað við sitt hæfi, leiki, litabækur og fullorðið fólk til að leika með. Á hvíldardagseftir- miðdag fengu bömin að gefa hestunum brauð við mikinn fögnuð hestanna! *. Sf-r ^jSBLÆ
AÐVENTFRÉTTIR • ÁGÚST 2009 |