Aðventfréttir - 01.08.2009, Page 17

Aðventfréttir - 01.08.2009, Page 17
Skírn Hvíldardaginn 6. júní fylgdi Sólveig Erla Björgvinsdóttir fordæmi frelsara síns og tók skím í Aðventkirkjunni í Reykjavík. Björgvin Snorrason sá um athöfhina. Sólveig Erla tilheyrir söíhuð- inum í Hafnarfirði. „£>• állur lýðurinn lét skírast, var Jesús einnig skírður. Þá bar svo við, er hann gjörði bœn sína, að himininn opnaðist og heilagur andi steig niðuryfir hann i líkamlegri mynd, eins og dúfa, og rödd kom af himni: „Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.““ Lúkas 3:21-22. Aðventfréttir óskar Sólveigu Erlu innilega til hamingju með skírnina og Jónu, Lindu, Manfred og Þóru með prófskírteinin. „Himirrn ogjörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða“ Mt 24:35 Utskrift í vor útskrifuðust 3 íslendingar frá Newbold College á Englandi. Þetta voru þau Jóna Þómdóttir sem út- skrifaðist með BA í bókmenntum og sögu, Manfred Lemke sem útskrifaðist með MA í guðfræði og Linda Sigurðar- dóttir sem útskrifaðist með BS í grein sem er kölluð Behavioural Science þar sem mannleg hegðun er helsta náms- efhið. Einnig lauk Þóra S. Jónsdóttir MA námi í guðfræði, en hún mun útskrifast formlega í júlí 2010. Manfred og Þóra eru hjón og starfa nú sem prestar hjá Aðventkirkjunni. Þau búa í Hafiiarfirði. Jóna Þórudóttir, dóttir Þóm, hefur flutt til íslands með fjölskyldu sinni. Hún leitar nú að atvinnu. Linda Sigurðardóttir býr á Englandi og leitar að atvinnu þar sem reynsla hennar og menntun kemur að góðum notum. Það er mikil blessun að eiga kost á því að læra á Aðventistaháskóla. Undirrituð var á Newbold 1997-1998 og 2001- 2003, og var það mikil og góð lífs- reynsla. Þama er frábært starfsfólk og umhverfið eins og það gerist best á Englandi. Ég vil hvetja sem flesta til að kanna þennan möguleika, annað hvort til framhaldsnáms eða til náms í ensku. Heimasíðan þeirra er: www.newbold.ac.uk Jóhanna A. Jóhannsdóttir AÐVENTFRÉTTIR • ÁGÚST 2009~[

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.