Aðventfréttir - 01.08.2009, Page 18
¥ Heilsuhornið ¥
Skadscmi áfcngis
Notkun alkóhóls hefur fylgt manninum
í árþúsundir. I dag er það eina löglega
vímuefiiið í okkar heimshluta og neysla
þess hluti af eðlilegu lífi margra. Því
hefur verið haldið fram að hófleg
neysla áfengis sé ekki skaðleg
líkamanum og geti jafnvel reynst gagn-
leg í forvömum gegn hjarta- og æða-
sjúkdómum. Heilbrigðisstarfsfólk er þó
fæst tilbúið til að hvetja til áfengis-
neyslu þar sem alkóhól er ávanabind-
andi og misnotkun þess algeng og
skaðleg.
Notkun alkóhóls veldur bæði andlegum
og líkamlegum breytingum hjá þeim
sem þess neyta. Alkóhól verkar slæv-
andi á taugakerfið og hægir á og truflar
starfsemi heila. Ekki em þó allir hlutar
heilans jafiinæmir fyrir áhrifum þess.
Litlir alkóhólskammtar duga til að
slæva þann heilahluta sem stjórnar
hömlum. Þess vegna losnar um hömlur
og gerir þessi eiginleiki það að verkum
að sumir álíta alkóhól vera örvandi
efni. Eftir því sem meira er innbyrt af
áfengi slævast fleiri heilastöðvar og þar
á meðal þær sem stjóma grundvallar
líkamsstarfsemi. Eftir neyslu mjög
stórra skammta verður öndunarstöðin
fyrir áhrifum og hætta er á öndunar-
stöðvun og þar með dauða.
Stöðug ofdrykkja getur valdið veru-
legum skemmdum á taugakerfinu og þá
sérstaklega heila. Það getur lýst sér í
breytingum á tilfinningaviðbrögðum
einstaklingsins, persónuleika hans og
viðhorfum, hæfileikinn til að læra nýja
hluti getur minnkað og minni hrakað.
Áfengi hefur ekki einungis áhrif á heil-
ann heldur nánast alla líkamshluta. Hér
verður stuttlega gerð grein fyrir hver
áhrif mikillar drykkju eru á hina ýmsu
líkamshluta.
Áhrif áfengis á líffæri meltingar-
kerfisins eru meðal annars að það ertir
slímhimnur sem getur leitt til magasára,
oft blæðandi. Áfengisdrykkja slakar á
vöðvum við efra magaop og getur lang-
varandi drykkja valdið vélindabakflæði
sem leiðir af sér þrálátar bólgur og
aukna hættu á krabbameini. Einnig er
hætta á briskirtilsbólgu sem getur
stundum verið mjög alvarlegur sjúk-
dómur.
Lifrin er helsta efnavinnslustöð
líkamans. Það ætti því ekki að koma á
óvart að hún er það líffæri sem oftast
verður hvað verst úti af völdum of-
drykkju. Hún sér um að vinna úr allt að
95% af öllu því alkóhóli sem berst út í
blóðið og við niðurbrot áfengis
myndast mörg efhi sem geta ert og
skemmt lifrarvefinn. Við drykkju fer
liffin að nýta alkóhól sem orkuefiii í
stað fitu sem safnast þá upp í lifrar-
vefhum og leiðir til svokallaðrar fitu-
lifrar. Fitulifur er sjúklegt ástand sem
þó gengur til baka ef hætt er að drekka.
Ef drykkju er aftur á móti haldið áfram
getur fitulifur þróast í alkóhóltengda
liffarbólgu og síðan skorpulifur. Skert
liffarstarfsemi sem fylgir skorpulifiir
getur leitt til dauða.
Mikil áfengisdrykkja getur leitt til
hækkunar blóðþrýstings og aukið hættu
á heilablóðföllum. Hjartavöðvinn getur
skemmst og við það dregur úr dælu-
starfsemi hjartans, auk þess sem það
stækkar. Mæði kemur fram við litla
áreynslu og óreglulegur hjartsláttur er
algengur meðal drykkjusjúklinga.
Alkóhól veldur því að æðar við yfir-
borð líkamans víkka út og við það
eykst blóðflæði til húðar og veldur hita-
tilfinningu í fýrstu. En við það að blóð
streymi í húðina lækkar líkamshiti og
hætta á ofkælingu eykst. Menn hafa
orðið úti á hlýjum sumamóttum vegna
þess að alkóhólmagnið í blóðinu var
svo mikið og kælingin sömuleiðis.
Kynkerfi beggja kynja verður fyrir
áhrifum af langvarandi áfengisneyslu.
Konur geta sleppt egglosi eða misst úr
tíðir. I körlum getur mikil drykkja leitt
þess að eistun rýma og framleiða
minna af testósteróni. Á sama tíma
minnkar geta lifrar til að brjóta niður
kvenhormón sem er myndað í svolitlu
magni í nýrnahettum karla. Afleiðing-
amar geta verið stækkuð brjóst, líkams-
hár minnka eða hverfa og kynhvöt og
reisnargeta dvína.
Þessar upplýsingar um skaðsemi
áfengis em að finna á vísindavef Há-
skóla íslands.
,Jíór, vin og vínberjalögur tekur vitið
burt.“ Hósea 4:11
Eggjalaus eggjahræra!
1 pakki extra-firm tofu (setja í pappírsþurrku eða klút til að ná vatninu úr)
2 tsk. olía
1/4 tsk. tumeric (má líka nota karrý)
1 msk. hvítlauksduft
1 tsk. laukduft
1/2 bolli vítamínsbætt ger
Notið gaffal til að merja tofii í smá bita
og steikið í olíunni í nokkrar mínútur.
Bætið síðan kryddinu út í. Gott er að
saxa niður sveppi, lauk og papriku og
setja saman við. Veltið um á pönnunni
þar til tofu er orðið gulbrúnt og græn-
metið tilbúið. Berið fram heitt.
| AÐVENTFRÉTTIR > ÁGÚST 2009