Heimilisritið - 01.05.1945, Page 45

Heimilisritið - 01.05.1945, Page 45
þurrkað út allan þýzka flotann. Aðeins ein verulega stórfelld loftárás. Það var fagurt að líta yfir höfnina í Kíl í grárri skímu jóladagskvöldsins. Hæðirnar í kringum flóann voru hvítar af snjó. Við komum að geysimikilli flotkví. Eitt 26.000 smálesta skipið, Gneisenau, var í henni. Leiðsögumaður minn sýndi mér það. Hann flýtti sér að taka það fram, að það væri þarna til venjulegrar lagfæringar, og ég verð að játa það, að á þeirri síð- unni, sem ég sá, voru engin kúlugöt. Við eyddum heilli kl,- stund í að ganga um dreka þenn- an. Fjórir eða fimm af helztu foringjum skipsins fylgdu mér um það, og þegar við komum í vistarverur hinna óbreyttu liðsmanna voru þar engar upp- stöður né hælaskellir, eins og ég hafði vænzt. Skipstjórinn mun hafa tekið eftir undrun okkar. „Það er hinn nýi andi í sjó- hernum okkar“, sagði hann hreykinn. Hann skýirði einnig frá því, að í þessari styrjöld hefðu allir menn á þýzkum her- skipum, æðri sem lægri, sams- konar fæði og jafnmikið. Svo var ekki í heimsstyrjöldinni, og hann _ hafði upp fyrir okkur nokkur orðtæki eða málshætti sjóliðanna þess efnis, að sami viðurgerningur við yfirmenn og óbreytta liðsmenn kæmi í veg fyrir óánægju og styddi að því, að sigur ynnist. Ég minnt- ist þess, og hann eflaust líka, að þýzka byltingin 1918 hófst hér í Kíl meðal óánægðra sjó- liða. Þegar við snerum til lands í ferjunni, reis tunglið fullt og glóbjart yfir hæðirnar og varp silfurbjarma á höfnina, svo að útlínur skuggalegra vígdrek- anna skáru vel af. Þegar við komum til gistihússins, bolla- lögðum við um útvarpið til Ameríku, sem ég átti að sjá um þarna á eftir, í kafbát, nýkomn- um að, og skipshöfnin átti að halda jólafagnað. Þegar ég kom út í kafbátinn síðar um kvöldið undraðist ég hvílíka hugvitssemi þessir harð- skeyttu sjómenn sýndu á því að prýða þetta myrkragreni sitt vegna jólahelginnar, því að svo er það rétt nefnt. 1 einu horn- inu ljómaði jólatré með rafljós- um, og við einn vegginn höfðu þeir komið fyrir ýmiskonar furðulegum jólasýningum. Ein var ofurlítil skautabraut á milli snæviþakinna fjalla, og þar léku brúður skautalistir, segul- mögnuð brellutól voru látin hreyfa skautabrúðurnar. Önnur sýndi strandlínu Englands og ein enn mjög álitlega sjóorustu. HEIMILISRITIÐ ' 43

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.