Heimilisritið - 01.01.1954, Blaðsíða 31

Heimilisritið - 01.01.1954, Blaðsíða 31
hendinni. ,,Þér gleymið, að ég er múhameðstrúar. En með leyfi að spyrja, hvað er í grænu flösk- unni, sem þér létuð í vasann ?“ ,,Klóróform.“ „Fyrirgefið. — Spámaðurinn leyfir ekki börnum sínum að nota deyfandi meðöl.“ ,,Hvað segið þér ? Ætlizt þér til, að á konunni yðar verði gjörð- ur kvalafullur skurður án þess að deyfa hana?“ ,,Nei, herra, en svefninn, sem eitrið framleiðir, er svo fastur, að hún verður alls ekki kvalanna vör. En tíminn líður, læknir. Komið.“ Nokkrum augnablikum síðar sátu þeir báðir í vagninum, sem ók á stað móti vindinum og regn- inu. ,,Er það langt?“ spurði Stone. ,,Nei, við búum í litlu, af- skekktu húsi, skammt héðan.“ Læknirinn leit á úrið, er vagn- inn rann fram hjá ljóskersstólpa; hún var kortér yfir níu. Hann gæti áreiðanlega verið kominn til frú Sannox um klukkan tíu, væri leiðin stutt eins og Tyrkinn hafði fullyrt. — Regnið streymdi eins og hellt væri úr fötu niður á vagnþakið. Beint á móti honum sást hið hvítleita höfuðfat Tyrkj- ans í gegnum myrkrið, og ein- hver ónotakvíði greip Stone, ó- ljóst hugboð um hættu. Loks staðnæmdist vagninn í dimmri hliðargötu fyrir framan lítið og skuggalegt hús. Aðeins í einum glugga sást dauf ljós- glæta. Læknirinn stökk fyrr út úr vagninum, og Smyrnakaupmað- urinn strax á eftir. Hann gekk að dyrunum, og við hina daufu ljós- skímu úr glugganum sá Stone, að andlit hans bar ljós merki óþol- inmæðis og kvíða. Tyrkinn sló tvö högg á hurð- ina. Slá var skotið frá að innan, og eldgömul kerling kom með kertisskar freim í dyrnar. „Hvernig líður?“ spurði hann skjálfraddaður. ,,Hún virðist vera eins og þeg- ar þér fóruð.“ ,,Hefur að líkindum ekki tal- að ?“ ,,Nei, sofið fast.“ Þeir fóru inn. Kaupmaðurinn skaut slánni fyrir. Það vakti at- hygli Stones, að hvergi sáust nein merki þess, að fólk héldi til í hús- inu, þykk rykskán var á öllu og skúmvefir í homunum. Þeir gengu inn í herbergi til hægri handar, þar sem dálítill vegg- lampi kastaði daufri birtu frá sér. Á gólfinu var mjúkt teppi, og á veggjunum hengu alls konar vopn og ýmiskonar einkennilegir grip- ir. Húsgögnin voru öll á tyrk- neska vísu. 1 einu horninu stóð JANÚAR, 1954 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.