Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.06.2013, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 21.06.2013, Blaðsíða 36
36 golf Helgin 21.-23. júní 2013  Golf unGa fólkið lætur til sín taka Hleyptu tánum út Þú færð vinsælu sandalana í Útilíf Tanza Herrasandalar 16.990 kr. Tirra dömusandalar 15.990 kr. utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND Á R N A S Y N IR f yrra stórmót íslenska golf-sumarsins fer fram á Ham-arsvelli í Borgarnesi um helgina. Þar munu bestu kylfingar landsins keppast um Íslandsmeist- aratitilinn í holukeppni. En það eru ekki bara fullorðnir atvinnukylfing- ar sem berjast til sigurs á mótaröð þeirra bestu. Inn á milli er afrakst- ur ungliðasarfsins hjá golfklúbb- unum og Golfsambandsins þessi síðustu ár. Grjótharðir unglingar sem gefa þeim eldri ekki tommu eftir. Til að kynnast því á eigin skinni hve góðir ungu kylfingarnir okkar eru orðnir var slegið í léttan æfingahring með tveimur af þeim efnilegustu. Ragnhildi Kristins- dóttur og Fannari Inga Stein- grímssyni og svo mér, næstum því fertugum, helgarhakkara með rétt tæplega 17 í forgjöf. Ég er meðalgolfari og veit allt um það. Enda spila ég jafnan með öðr- um meðalgolfurum og þekki ekki annað – nema úr sjónvarpinu nátt- úrulega. En að horfa á Tiger, Rory, Sergio og þessa gúbba hefur ekki mikið með raunveruleika minn hér að gera. Unglingarnir sem spiluðu með mér, Ragnhildur og Fannar Ingi eru á hinn bóginn raunveru- leg og spila hér sitt golf. Eru tvö af þeim fjölmörgu efnilegu kylfingum sem eru að banka á dyrnar á Eim- skipamótaröðinni þetta sumarið og sigur er að sjálfsögðu á stefnu- skránni hjá þeim báðum. Ég skíri þig golf Það sem ég kalla golf og það golf sem þau spila er ekki alveg það sama. Þegar unga fólkið var að setja boltann á ákveðna staði á vell- inum reyndi sá sem þetta skrifar Ungir aldna temja Ragnhildur Kristins- dóttir er 15 ára reykjavíkurmær sem var að klára skólaskylduna. Hún byrjaði að spila golf svona um það bil þegar skólaganga hennar hófst fyrir um 10 árum. Er með 3 í forgjöf og spilaði sinn fyrsta hring undir 80 höggum fyrir þremur árum. Eldri bræður Ragnhildar voru aðal ástæðan fyrir því að hún kaus golfið og eitt af markmiðum hennar var að vinna þann eldri. Sá er Ögmundur Kristinsson, markvörður Fram í fót- bolta. Með í kring um fjóra í forgjöf og er því enginn aukvisi. Þetta mark- mið náðist í fyrra þegar litla systir lagði stóra bróður loksins að velli. Ögmundur var reyndar nýlega valinn í A-landsliðið í fótbolta þannig að það gæti aðeins að linað þjáningar hans. Ja, þangað til að landsliðsfélagarnir lesa þetta. Fannar Ingi Steingrímsson úr Hveragerði er golf- undur. Hann byrjaði að spila eftir að pabbi hans horfði á Opna breska meistaramótið í sjónvarpinu árið 2007 og keypti kylfur handa sér og syninum. Fannar er þó löngu orðinn föðurbetrungur í golfinu enda leiddi hann eftir fyrsta dag á Eimskipamótaröðinni í Vestmannaeyj- um fyrir tveimur vikum. Og við erum ekkert að tala um hans aldursflokk eitthvað. Hann var bara efstur, punktur! Setti líka vallarmet á Hellu helgina áður. Spilaði á 65 völlinn á höggum. Fyrir smá samhengi er Fannar fjórtán ára og spilar með kylfunum sem hann fékk í fermingar- gjöf. Ekki er því of langt seilst með því að bera hann saman við jafnaldra hans, Guan Tianlang hinn kínverska, sem sló í gegn á Masters mótinu í vor. Fannar Ingi og Raghildur kenndu blaða- manni réttu handtökin. FRÓÐASTI FERÐAFÉLAGINN Í Vegahandbókina er komin ítarleg 24 síðna kortabók, með yrlitskortum, 1:500 000, sem gefa skýra yrsýn yr landsvæði Íslands og auðvelda notkun bókarinnar. Vegahandbókin Sundaborg 9 sími 562 2600 www.vegahandbokin.is Allt í einni bók Fullt verð 4.990 kr. 1.000 kr. afsláttur ef þú kemur með gömlu bókina ( einungis hægt að skipta í bókabúðum, ekki bensínstöðvum ) Dermatude Meta-Therapy Ný byltingarkennd meðferð sem vinnur gegn öldrunarmerkjum húðar. Skilvirkasta endurnýjunarferli húðarinnar með Dermatude Meta-Therapy Sjá Dermatude snyrtistofur www.dermatude.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.