Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.1916, Qupperneq 4

Læknablaðið - 01.07.1916, Qupperneq 4
io6 LÆKNABLAÐIÐ hefir sóttin stundum stafaö af menguöu drykkjarvatni (ísafj., Akranes og v.), en þess eru líka dæmi, aö sóttberar, sem ekki losna viö sótt- kveikjurnar, liafa haldi'ö veikinni viö (Sauöárkr.). En hver ráö eru þá til þess að draga úr taugaveikinni, eöa helzt gera hana landræka? Gömlu og aö mörgu leyti góöu ráöin þekkja allir: aö læknis sé vitjað fljótt, að hann geti snemma þekt sjúkd. með vissu (Vidal, sóttkveikjurann- sókn!), aö sjúkrahjúkrunin sé sem bezt, svo aðrir sýkist ekki, og — last not least, — ströng samgönguvarúö meöan veikin er á bænum og mán- aðartíma eftir aö síðasti sjúkl. komst á fætur. Sótthreinsun post festum. Við þetta má bæta, að ætíö veröur nákvæm þekking á útbreiöslu og háttalagi veikinnar í landinu undirstaöa undir allri viöleitni til aö ráöa bót á henni. Hennar geta héraðslæknar aflaö meö rækilegum, samvisku- sömum skýrslum, og þeir standa bezt allra að vígi meö aö útbrei'öa þekkingu um sjúkd.; meöal almennings. Þaö er meö þetta sem flest annaö, að alt veltur á héraöslæknunum — læknum þjóöar- innar. • En margir steinar eru í vegi á þessari gömlu götu, sem verður þó von- andi smámsaman greiöfærari meö ári hverju. Hvað er ekki oft erfitt aö jiekkja taugaveiki með vissu! Byrjandi berklaveiki, endocarditis acuta, alls konar bólgur og infectionir, sem fara huldu höföi, geta vilt manni sýn. í jiessu myrkri er ekkert skýrt ljós nema sóttkveikjurannsókn. Svo fljótt sem auðiö er, þyrftu héraðslæknar vorir aö fá leiðbeining í henni. Mér flýgur í hug hvort eigi mætti senda Stefán Jónsson lækni á sumrin milli héraöslækna til jæss aö kenna J)eim listina. Hann Jjyrfti J)á að hafa öll nauðsynleg áhöld meö sér. Jafnframt mætti J)á kenna rannsókn á barna- veikissóttkveikjunni. Ekki er heldur hlaupið aö þvi, aö greina hættulega sóttbera frá öðru góöu fólki nema meö sóttkveikjurannsókn. Erlendis gefst læknum kostur á framhaldsnámi viö háskólana í sliku og þviliku, sem hér ræöir um, en hvernig ættu læknar vorir aö geta komist, margir í senn, aö lieiman eins og ástatt er hjá oss? — Og þótt læknar geröu að öllu leyti hreint fyrir sínum dyrum, — hvernig á þá aö sjá fyrir góðri sjúkrahjúkrun, sæmilegum húsakynnum o. s. frv.? Nei, J)ó J)essi sjálfsögðu góðu ráö séu góöra gjalda verð, þá koma þau oft aö litlu haldi er á hólm- inn er komið, — J)ví miöur. En þaö hafa opnast nýir vegir. Nú má telja þaö vist, aö bólusetning gegn taugaveiki er allörugt varnarmeðal og, aö því er mér skilst, mjög einfalt, en reynslu hefi eg J)ó ekki sjálfur í Jæssu efni. Eg fæ ekki betur séð, en aö þaö ætti að vera í lófa lagið, er einn sjúkl. legst á bæ í áreiðan- legri taugaveiki, að vernda alla heimilismenn aö jafnaöi fyrir veikinni meö bólusetningu, og tækist J)aö, er mikiö unniö. Eins og kunnugt er, myndast ekki regluleg gagneitur (antitoxin) í taugaveiki, svo sem er um barnaveiki. Sótteitrið er Ijundiö viö eggja- hvituefnin í sjálfum taugaveikissóttkveikjunum. Þaö er fyrst er þær deyja og leysast upp, að eitrið verkar á líkamann og hann reynir þá til a-ö verjast, aðallega meö því aö búa til efni, sem drepa sóttkveikjurnar, leysa Jjær upp. Þá hefir það og svipuð áhríf á sóttkveikjueitrið og ferment, ]). e. klýfur þaö í óeitruö sambönd og losar þannig líkamann viö eitrið. Blóðvatniö veröur þá smámsaman bráödrepandi fyrir sótt-

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.