Læknablaðið - 01.07.1916, Síða 14
LKKNABLAÐIÐ
ii 6
Á bls. 21 er minst á h r á k a d a 11 a, en helzt til stutt. HefSi veriö t. d.
ástæöa til þess að vara menn viö að hafa ekki vatn í döllunum, sem slettist
langar leiöir, er hrækt er í þaö.
Á bls. 24 er varað við s ó p u n. Vist er hún skaðleg, en meö öllu verður
ekki hjá henni komist. Heföi því þurft að minnast á hversu skárst væri
aö sópa.
Gluggatjöld vill höf. engin hafa, ef þau eru, þá hengja þau til
hliðar við gluggann. Til þess mun fólk ekki fást, en tjöldin ættu ekki a;ð
ná að mun inn á gluggann.
Á bls. 30 er talað um hreinlæti við meðferð barna. Á börnum skal ekki
taka nema með hreinum höndum og i hreinum klæöum og alt skal vera
hreint, sem kemur í munn barnsins. Já, gott væri það ef framkvæmanlegt
væri, en svo er a 1 d r e i á heimilum manna.
Á bls. 68 er það ráð gefið við fótakulda aö taka volga og khlda
fótlaug. Þetta mun gott ráö, en fótakuldi er oft hveimleiður ágalli, sem
hindrar svefn og veldur oft höfuðverki.
Ekki eru allir sammála um það, að berklagerlar geti ekki kornist gegn-
um heilt hörund, t. d. á börnum. Eg hygg að þeir geti það, að minsta kosti
þó hörundið virðist alheilt.
Höf. mælir mjög með því, að stofnað verði heilsuhæli eða heilsuhælis-
deild fyrir börn. Barnahælin eru eflaust þau hælin, sem mest gagnið gera
og væri þetta að visu nauðsynjamál.
Einu þýöingarmiklu atriði vildi eg bæta við bók þessa: Enginn berkla-
veikur sjúklingur má liggja í heimahúsum er hann er orðinn ófær til starfa
og líkindi til að hann komist ekki á fætur. Banaleguna á h a n n a S
1 i g g j a á s p í t a 1 a n u m, annars er heimilið í voða, sérstaklega ef börn
eru þar. g. H.
Kurzes Lehrbuch d. Gynækologi eftir dr. Ernst Bumm, próf. í Berlín,
dr. Albert Doederlein próf. í Múnchen, dr. Bernhard Kroenig próf. í Frei-
burg, dr. Karl Menge próf. í Heidelberg og útgefandann, dr. Otto Kústner
próf. í Breslau. Gustav Fischer. Jena. Stærö 620 bls. (8). 384 myndir. —
Verð 12 Mk.
Þeir læknar, sem vilja fá sér bók um kvensjúkdóma, ættu að fá sér
þessa. Nöfn höfundanna, sem kunnir eru um víða veröld að listfengi
í þessum efnum, eru næg trygging fyrir gæðum hentlar. Bókin er skemti-
leg aflestrar og myndirnar ágætar. ÖL ó laruSSON.
Lehrbuch der Kinderheilkunde eftir próf. E. Feer í Zúrich, próf. Finkel-
stein í Berlín, privatdocent Ibrahim i Múnchen, dr. L. F. Meyer i Berlín,
próf. Moro í Heidelberg, próf. Pirquet í Wien, próf. Pfanudler í Múnchen,
próf. Thiemich í Magdeburg, próf. Tobler í Breslau. Stærð 750 bls. —
Verð 13 Mk.
Þessi bók er hentug fyrir þá, sem vilja kynna sér barnasjúkdóma. Bókin
er prýdd 176 myndum og 2 littöflum og yfirleitt skemtileg aflestrar, þó
kaflarnir séu misjafnlega vel ritaðir. ^L. ó. LARUSSON.