Læknablaðið - 01.07.1920, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ
IOI
kvæmdanna (1918) og' skar það ekki viö neglur sér. Rúmar 4 mill. doll-
ara voru veittar í einu til aö byrja með. Það ýtti mjög undir alla þessa
hreyfingu, að menn óttuðust, að sjúkd. þessir færu í vöxt, er hermenn-
irnir kæmu heim úr ófriðnum.
Heilbrigðisstjórnin sneri sér til allra fylkjastjórna og Officers of Health,
sendi þeim sínar tillögur um varnir gegn morbi vener, og skoraði á þær
að hefjast handa. Skyldi skoöa þessa kvilla algerlega á sama hátt og aðrar
hættulegar farsóttir. Einnar mill. doll. skyldi verja til aö styðja fylkin til
framk-væmda, ef þau uppfyltu ýms ákveðin skilyrði. Bæði fylkjastjórnir
og læknar tóku þessu vel, og fyrir ári síðan höfðu 44 fylki gert flestar
nauðsynlegar ráðstafanir.
Aðalatriðin í fyrirmælum stjórnarinnar eru á þessa leið:
1) Strangt eftirlit skal hafa með öllum sjúklingum. Til þess
að geta-framkvæmt það skulu læknar skyldir að gefa stöðugt skýrslur
um sjúkl., án þess þó að láta nafns þeirra getið, nema þeir hætti að vitja
læknis áður meðferð er lokið. Öll sjúkrahús skulu og senda sams konar
skýrslur, en lyfsalar halda skrá yfir sölu lyfja o. fl„ sem notuð eru til
lækninga á m. v. eða til varnar gegn þeim.
Þungri hegning-u skal varða, ef skýrslur eru vanræktar.
2) Einangrun s j ú k r a. Borgandi sjúkl., sem vitja lækna og fara
að öllu eftir því sem fyrir þá er lagt, skulu ekki einangraöir sérstaklega.
Hvert fylki skal sjá um, að þeir, sem ekki eru borgunarfærir, hafi greið-
an ókeypis aðgang að ótvíræðri diagnosis, læknishjálp og sjúkrahúsvist.
Þeir, sem ekki skeyta varúðarreglum eða lækningu, skulu einangraðir á
sjúkrah. eða í fangelsum.
3) . Lækn'ing sjúkra. Opinberar lækningastofur (venereal clinics)
skulu settar á fót í öllum bæjum og þéttbýlum sveitum, þar sem þörf
kann að vera fyrir þær. Sjúkrahús skal auka svo og endurbæta, að þar
sé enginn skortur á húsnæði eða lækninganauðsynjum fyrir sjúkl. með
m. v. — Lögbjóða skal strangt eftirlit með sjúkl. með m. v. Alla fang-
Hsaða menn og dæmda, skal skoða, og lækna, ef þörf gerist. — I sjúkrah.
skal áhersla lögð á, að innræta sjúkl. betri siði.
4) A 1 m e n 11 i n g s f r æ ð s 1 u í góðum siðum, sérstaklega milli karla
og kvenna, skal hvervetna komiö á fót og samtímis gefa allar nauðsyn-
legar upplýsingar um m. v. í þessu skyni skal stofna til almennra funda
með góðum ræðumönnum, dreifa út fræðiritum, festa upp fræðandi myndir
á almannafæri (t. d. á almennings-salernum), ráða sérstaka menn til
þess að starfa að því að vekja almenning, fræða sýkta og áminna þá.*
Til þess að létta fylkjunum kostnaðinn við einangrun sýktra og grun-
sumra, er varið 1 mill. doll. Er hér um ekkert smáræði að gera, eins og
sjá má á því, að t. d. ekki færri en 30.000 lauslátar stúlkur voru þegar
einangraðar á ýmsan hátt.
Þetta stutta yfirlit gefur þó næsta ófullkomna hugmynd um þessa miklu
herferð. Fjöldi laga og reglugerða hafa komið út. Menn fá t. d. ekki að
íerðast úr einu fylki í annað, nema þeir hafi vottorð um að þeir flytji
* Hver sjúkl., sein leitar læknis með m. v., fær lijá honurn ritling með ýmsri fræðslu
um m. v. Hver sem kaupir lyf á lyfjabúð gegn m. v., fær annað smárit etc.