Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.1922, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.01.1922, Blaðsíða 7
i. blað. IIIMIIIIDII 8. árg. Janúar, 1922. Ar amót. Þegar LæknablaÖib byrjar göngu sina á þessu nýja ári, er sú breyting oröin, aö prófessor Guðm. Hannesson hefir vikiö sæti úr ritstjórn blaös- ins. Er mikil eftirsjá aö honum, bæöi fyrir blaöiö og lesendur þess. Pró- iessor GuÖmundur hefir öll undanfarin ár stýrt blaöinu frá byrjun þess, og l)aö á honurn tilveru sína að þakka. Undir stjórn hans hefir blaðiö áunnið sjer miklar vinsældir og er oröiö ómissandi liður í félagsskap íslenkra lækna, Orsakirnar til þess aö Guðmundur lét af ritstjórn aö þessu sinni eru auðsæjar. Bæði er þaö, að hann er nú miklum störfum hlaðinn, þar sem hann, auk kenslunnar við Háskólann, gegnir landlæknisembættinu, en því fylgir feikna mikil vinna við skýrslugerð, en sérstaklega er þó hitt, að eigi fer þaö allskostar vel saman, að hafa í einu á hendi landlæknis- embættið og ritstjórn Læknablaðsins, eina málgagns læknanna. Enginn má skilja þetta sem nokkurskonar eftirmæli. Læknablaðiö og lesendur þess eiga vonandi oft eftir að fá greinar eftir prófessor Guömund. — Blaðinu mun aö engu breytt og ritstjórnin óskar þess að blaðiö megi njóta framvegis sömu vinsælda og skipa sama sess hjá læknastéttinni. eins og þaö hefir haft undanfarin ár. Þaö er gamall og góður siður svona viö áramótin, að staðnæmast ofur- lítið og hugleiöa, hvað hafi gerst á liðna árinu, og hvaða verkefni liggi íyrir höndum á því nýbyrjaða. Merkasti viðburður í íslenska læknaheiminum á liðna árinu. eru áreiö- anlega 1) e r k 1 a v a r n a 1 ö g i n nýju. Margir líta á þau með efasemd- um og halda aö þau veröi í mörgum atriðum að eins pappírslög, sumir efast jafnvel um gildi allra berklavarna nútímans. En eitt eru allir ásáttir um, að lögin kosta mikið fé og allmikla vinnu. En hvaö skal gera? Eiga íslenskir læknar einir allra aö standa auðurn höndum, án þess að gera tilraun til þess aö hindra það mannhrun, sem berklaveikin veldur árlega? Hvaö hafa þeir efasömu að bjóíSa ? Lögin eru samþykkt, og það veröur að gefa þeim „fair trial“. Hvað sem segja má um þetta, þá eru þau vottur um örugga trú á málefninu og fastan vilja til þess aö fylgja ])ví fram. Eitt af aðalverkum læknanna á þessu og næstu árum. verður j)vi aö koma í framkvæmd þeim ákvæðum laganna, sem unt er, eins og til hagar, byrja þaö skipulag á berklavörnum, sem byggja má á framvegis. Virðist eðlilegt, að læknar myndi með sér félagsskap til gagnkvæmrar hjálpar við starfið. Það hefir og verið stungið upp á því, aö mynda alls- herjar berklavarnafélag fyrir alt landið. Kemur ])etta mál sennilega fyrir

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.