Læknablaðið - 01.07.1922, Qupperneq 14
io8
LÆKNABLAÐIÐ
góö ráö á heimilum og breyta þeim svo sem góöum hjúkrunarkonum
tækist oft.
G. B jö r n s o n kvaö „ideali'ö" aö hver hreppur heföi sína hjúkrunar-
stúlku. Heföi Jónas Kristjánsson komiö þessu vel á veg í sínu héraöi.
E i r. K j e r ú 1 f taldi nauðsynlegt, að hjúkrunarkonur væru ábyggileg-
ar. Slæmar yfirsetukonur væru verri en alls ólæröar og svo væri líka um
hjúkrunarkonur. Hjúkrunarstúlkur mættu ekki verða „Mööruvellingar".
Þ. S v e i n s s o n tók svari „Möðruvellinga".
Till. Magn. P.: „orðið ,fulllæröar‘ í till. G. H. falli burt,“ samþ. 12: 10.
Till. G. H. var svo samþ. meö áorðinni breytingu með öllum greiddum
atkvæðum.
Þá var haldinn lokaður fundur og stóö hann nokkurn tima. Var rætt
um embættisrekstur landlæknis o. fl.
H a 11 d. Gunnla ugsson bar fram þessa till.: „Fundurinn lýsir
óánægju sinni yfir stefnuleysi í embættaveitingum undanfarið og krefst
þess, aö fylgt sé fösturn reglum, að svo miklu leyti sem unt er, sem
allir læknar þekkja. Verði landlæknisskifti, skal leitaö álits Læknafél. Isl.“
Till. var borin upp í 2 liðum. Fyrri málsliöur var samþ. meö öllum
greiddum atkv. Síðari samþ. meö 19:2 atkv.
Till. frá M. J ú 1. M agnús: „Fundurinn skorar á landlækni að fá augl.
biskupsins í Lögbirtingabl. 15. júní þ. á. aftur tekna og aðra gefna út, þar
sem krafist sé af prestum landsins að heimta læknisvottorð af öllum, sem
einhverntíma hafa haft þá sjúkd., er um getur í 13. gr. laga um stofnun
og slit hjúskapar.“
Færði hann ástæöur fyrir till. og taldi læknisvottorð eitt fullnægjandi,
en yfirlýsing hjónaefna þýðingarlausa.
G. Thoroddsen varaði alvarlega við að samþ. till. M. J. M. Yfir-
lýsing biskups létti byrði af læknum, sem þeir fengju ekki undir risið.
G. H a n n e s s o n sagði frá afskiftum sínum af þessu máli meðan hann
var landlæknir. Væri allsendis ómögulegt að krefjast læknisvottorðs, sem
oft hlyti að kosta langvinna rannsókn, Wassermannspróf o. fl. svo fram-
srlega sem nokkuð mætti á því byggja. Augl. biskups væri því í alla staði
rétt og málið vandlega athugaö af stjórnarráðinu. Varaði við að samþ. till.
M. P é t u r s s o n gerði grein fyrir málinu á þingi. Stjórnarráðinu væri
falið að ákveða hvers krafist yrði.
Till. M. J. M. feld með 13:2 atkv.
Formaður las upp bréf frá héraðslækni S i g. Magnússyni á P a t-
r e k s f i r ð i, er hann hafði sent fundinum.
Fleiri mál komu ekki fyrir. Vrar þá fundi slitið.
Þórður Thoroddsen. Guöm. Hannesson.
Varicellae. Á ítalíu, sumstaðar að minsta kosti, er skylda að tilkynna
undir eins ef vart verður við varicellae. Er það gert vegna hættu þeirrar,
sem stafar af variola.