Læknablaðið - 01.02.1926, Side 30
LÆKNABLAÐIÐ
H
landssjóöi til siglingar. Var hann þá vetrartíma i Kaupmannahöfn og
lagöi stund á eyrna-, nef- og hálslækningar hjá próf, Schmiegelow. Var
hann hinn fyrsti íslendingur sem stundaöi þá sérfræöigrein, enda haföi
hann mætur á heríni upp frá því.
Ásgeir sál. var læknir meö lifi og sál meöan hann var í blóma lífsins
og heilsan ekki bilaSi. Haföi hann flesta þá kosti til aö bera, er prýða
mega góöan lækni. Hann var sérstaklega vel að sér í læknisfræöi og fylgdi
vel meö öllum framförum, enda átti hann bókakost góöan. Þegar hann
hætti læknisstörfum gaf hann háskólanum allar læknisfræöiljækur sínar
og tímarit. Ilann var ötull og ósérhlífinn viö læknisstörf og á feröalög-
um, hvort sem viö var aö eiga vötnin í Skaftafellssýslu eöa snjóþyngslin
i Þingeyjarsýslu. Hjálpfýsi hans og samviskusemi var viðbrugðið, hann
vildi öllum hjálpa, alt gera sem í hans valdi stóö, hvort sem von var á
endurgjaldi eða ekki. Hann var lika sérstaklega vel liðinn af héraðsl)úum
sinunt og öllum, sem hann þektu.
Á yngri árurn var Ásgeir Élöndal gleðimaður mikill og aflDragös söng-
maður, svo sem hann átti ætt til. En missir fyrri konu hans eftir liðlega
árs sambúð, konu, sem hann hafði unnað hugástum frá liarnæsku, dró
rnikið úr glaðværöinni, og varð hann ekki samur rnaður aftur. Heilsu-
bilunin, berklaveiki í lungum, sem hann varð að leita sér lækningar viö
vetrartima á heilsuhæli í Danmörku, svo og vaxandi heyrnardeyfa meb
höfuðsvima, hjápaði líka til að sýna honum alvöru lífsins; en altaf var
hann þó sami hjálpfúsi maðurinn og samviskusami læknirinn.
Viö opinber mál fékst Ásgeir sál. ekki, læknisstörfin voru honum alt.
Það litla, sem eftir hann liggur á prenti, er og læknisfræðilegs efnis. Eru
það ýmsar greinar í innlendum og útlendum blöðum og tímaritum,* svo
og „Líkams- og heilsufræði" til kenslu í alþýöuskólum, prentuð á Akur-
eyri 1924, vel sarnin bók.
Ásgeir sál. var tvígiftur. Fyrri kona hans var Emilía dóttir Péturs
organista Guðjohnsen. Giftust þau 6. okt. 1884, en hún dó 18. nóv. 1885,
af afleiðingum barnsburðar. — Seinni konan var Kristín dóttir Þóröar
verslunarstjóra Guðjohnsen á Húsavík. Lifir hún mann sinn ásamt einni
kjördóttur. Þ. J. Th.
Nýju maantræöirannsóknirnar í Noregi.
Norðmenn hafa orðiö fyrir því happi, að eignast óvenjulega ötulan
mannfræðing. Það er fyrver. herlæknir dr. H a 1 f d a 11 B r y n, í Þránd-
heimi. Hefir hann sjálfur mælt ógrynni manna, og honum mun ]jað mest
aö þakka, aö Norömenn eru nú vel á veg komnir með að semja nákvæma
mannfræði alls Noregs: Anthropologia Norvegica. Sem
dæmi þess, hve mikilvirkur Bryn er, nefni eg hér bækur þær, sem hann
hefir ritað um mannfræðirannsóknir sínar, og það á fám árum.
* Þar á meðal: Dr. Edv. Elilers Indberetninger om Spedalskheden i Island. —
Hosp.tid. 1895.