Læknablaðið - 01.05.1930, Side 38
34
LÆKNABLAÐIÐ
G j ö 1 d:
1. Skuld vi'ö afgreiöslumann frá f. ári................ kr. 1.76
2. Greitt M. Péturssyni .................................. — 450.00
3. — Félagsbókbandinu ................................ — 223.82
4. — Félagsprentsmiöjunni ............................ — 1263.25
5. — fyrir fjölritimarpappír ......................... — 3.00
6. — — myndamót ................................. — 10.00
7. — — bók ...................................... — 12.00
8. — — ýmislegt .................................. — 21.00
9. — — frímerki .................................— — 6.90
10. — — innheimtu ................................. — 260.16
11. Innistæöa í íslandsbanka .................. kr. 8.23
Peningar i sjóöi ............— 34T-45 — 349.6S
kr. 2601.57
Viö undirritaíSir höfum endurskoöað reikninga Lbl. fyrir ári'iS 1929, og
leggjum til aö þeir veröi samþ. meö eftirfarandi aths.: 1) Vantar aiS til-
færa i rekstrarreikningi sem tekjur kr. 5.01, sem eru vextir af fé, sem hef-
ir staöiö inni í íslandsbanka. 2) Innheimtulaun reiknar afgr.maöur1 sér af
kr. 2601.50 meö kr. 260.00 Fn i þeirri upphæö felst sjóður viö ársbvrjun,
sem er kr. 463.22. Innheimtulaunin eru bvi reiknuö kr. 46.32 of hátt og
eiga aö vera kr. 213.84 í staö kr. 260.16.
Afgr.manni teljast ]ivi til ábyrgöar kr. 5.014-46.32= 51.33. sem komi
til greina á næsta ársreikningi.
Rvik, 14. 4. 1930.
Sæm. Bjarnbéöinsson. Þ. T. Thoroddsen.
Smágreinar og“ athugasemdir.
Vaccinations-slysin í Liibeck.
Fins og kunnugt er, hafa Þjóöverjar veriö frekar vantrúaöir á bólu-
setningaraöferö C a 1 m e 11 e’s gegn berklaveiki, og verið tregir til aö
taka hana upp. Viöa um heim hefir hún veriö reynd, sumstaöar í stórum
stíl, og 3'firleitt hafa menn látiö vel yfir árangrinum, aö svo miklu leyti
sem hægt hefir veriö aö dæma um hann á ekki lengri tíma. Mönnum hefir
komiö saman um, aö bólusetningarnar væri hættulausar, enda hefir Cal-
mettte sagst hafa þrautrevnt, aö syklarnir geti ekki orðið virulent. Loks
tóku Þjóðverjar sig til, ákváöu aö bvrja Jiessar bólusetningartilraunir i
Lúbeck. og stóö heilbrigöisráö borgarinnar fyrir þvi aö útvega bóluefniö
frá Pasteurstofnuninni i Paris. Prófessor D e y c k e var faliö aö annast
um bóluefnið, ])egar ])aö kom, ]irófa 1)aö og halda gróðrinum viö. Dýra-
tilraunir, sem gerð.ar voru, áttu aö hafa sýnt, aö gróðurinn væri ósaknæm-
ur, og að þeim loknum var farið aö nota bóluefniö.
Heilbrigöisráöið auglýsti ])essa nýju aöferö fyrir almenningi, og hvatti
fólk til aö láta bólusetja börn sín meö þessu móti, til að verja þau berkl-