Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.06.1931, Qupperneq 14

Læknablaðið - 01.06.1931, Qupperneq 14
84 LÆKNABLAÐIÐ einsýnt þykir, aÖ þær hafi endogen áhrif á vöxtinn. A þa'Ö bendir ótviræð klinisk reynsla, aÖ börn vaxa mjög ört eftir tonsillectomiu og hinsvegar eru tonsillur á fullvöxnum orðnar, ef heillirigðar, skæni litlar. Svo sem kunnugt er, kemur æði oft ofvöxtur í tonsillur á börnum (hyper- plasi) ; slikt þarf ekki að vera pathologiskt, nema ef önnur einkenni benda til að þær séu sýktar. Ef ofvöxturinn er það mikill, að kirtlarnir fylli upp kokið, valdi kyngingarörðugleikum, samfara klýju og lystarleysi, svo og hindrun á máli, þá er nauðsynlegt að skera þá hurtu eða að minsta kosti klippa af þeim. Ef aftur á móti tonsillurnar sýkjast, þá þarf eindregið að taka þær, því hvert svo sem starf þeirra er, þá geta þær þvi aðeins int það af hendi, ef þær eru heilbrigðar. Sýkingin getur skeð á öllum aldri, akut við háls- bólgur af ýmsu tagi, sem læknast ekki til fulls, og latent, jafnvel án þess að sjúklingurinn viti til að sér hafi nokkru sinni orðið verulega ilt í hálsi. Einkenni þessarar chronisku tonsillitis erti margskonar. Fyrst má telja há- rauðan lit á kirtlinum og fremri gómboganum, sem stingur ntjög í stúf við gljáandi slímhúðina í kring. Ef þrýst er laust á kirtilinn, kennir sjúk- lingurinn venjulega sársauka, þar sem normalt finst aðeins snerting. Togi maður fremri gómbogann frá, með sljófum haka, og þrýsti kirtlinum vit í kokið með því að styðja fingri undir kjálkabarðið, þá rennur oft út úr honum graftrarslím eða þunn graftrarvilsa, en nær altaf má kreista út úr íellingunum, sér í lagi við efri pólinn, harða, daunilla, ostlita tappa, sem myndaðir eru úr epithelcellum, lymphocytum og sýklum. Sýklarnir, sem venjulega finnast í þessu graftrarslími, og töppum, eru tíðast strepto- staphylo- og pneumococcar, en ekki ósjaldan t. b. bacillur. Smásjárrann- sókn á kirtlinum, sýnir venjulega örvef í lymphoidsvæði hans og felling- unum, svo að oft helst þar gröftur á bak við; hinsvegar er folliculvefur- inn kompensatorskt hypertrophieraður, auldn lym])hocyta-myndun og epithel- desquamatio. Ekki þarf þó kirtillinn, sem heild, að vera stækkaður, æði oft alveg grafinn inn á milli gómboganna, en einmitt þessum tonsillum hætt- ir hvað frekast við að sýkjast, af því að fellingar þeirra tæmast ver. Þessi chroniska bólga hefir í för með sér bólgna hálseitla undir kjálka- barði og niður með stóru æðunum milli trachea og m. sternocleido, þar sem aftur á móti eitlabólga aftan við sterno-cleido í fossa supraclavicularis er oftast af tuberculose uppruna. — Þá eru þessir sjúklingar flestir með skóf á tungu, óbragð í munni og andremmu. Þeim hættir mjög til að kvef- ast við lítilfjörlegar tækifærisorsakir, svo sem veðrabrigði; þannig er hæsi mjög tíð og þrálátur kitlingshósti, sem stafar af þrota undir barkalokinu. I pharynx er chroniskur katarrh og hypersensibilitet, sem gerir sjúkl. ner- vösan. Rhinitis er algengt einkenni, og hættir concha inf. til að ])rútna öðru hvoru. Þannig er það algengt, að sjúklingurinn getur aðeins andað með þeirri nösinni, sem upp snýr, ef hann liggur á hliðinni, en breytist, ef hann legst á hina hliðina. Þetta stafar í og með af truflaðri lymphu- afrás frá nefi, sennilega af þrýstingi á æðarnar. — Sökum þessarar kvef- sælni verður það skiljanlegt, að sjúklingunum hættir til að fá ])rota í kokhlustina og jafnvel otitis media. Annars er verkur út í eyra algengt einkenni og orsakast af þrýstingi frá bólgnum eitlum í regio retromandi- bularis. Rígur í háls- og jafnvel axlarvöðvum, verkur í hnakka og niður í herðablöð er mjög oft. Þrálátur ennisverkur, stundum samfara svima,

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.