Læknablaðið - 01.06.1931, Page 17
LÆKN ABLAÐIÐ
87
sjúkdómseinkenni geta orsakast frá sýktum tonsillum, svo a<5 þeir geti ver-
i'Ö sammála um hvenær ástæÖa er til að extirpera þær. Sérfræðingar í háls-
sjúkdómum berjast allsta'Öar fyrir total exstirpatio og internistar eru orðn-
ir þeim, víÖast hvar, sammála. Vitanlega hefir á þessu sviði víÖa verið
farið út í öfgar, jafnvel i ábataskyni, en það má ekki kasta rýr'ð á aðgerð-
ina, sem er í sjálfu sér, þar sem hún á við, ein þeirra gagnsömustu og
þakklátustu læknishjálpar, sem læknir getur veitt sjúklingi sínum.
Rannsókn á blóðþrýstingi.
(Hypertensio arterialis).
Erindi flutt á aðalfumii Lœknafclags íslands.
Eftir Dr. Helga Tómasson.
Á aðalfundi L. f. 1928 stakk eg upp á því, að rannsókn á blóðþrýst-
ingi yrði gerð að samrannsóknarefni læknafélagsins. — —
Það hafði í ntörg ár virst ýmsum læknum áberandi, hve margir létust
hér á landi úr apoplexia cerel)ri, og sumum virtist, sem þetta lægi mjög
í ættum. Hefir einn kollega tekið sér fyrir hendur, að rannsaka þessar
apoplexi-ættir, svo sem unt mætti verða. — En ekki nema litill hluti þeirra,
sem deyja úr apoplexi, eru úr þessum ættum, svo að ekki virðist siður
æskilegt, að rannsaka málið alment.
Dánarorsakir 1928.
I. Ellihrumleiki 14-4 pr. 10,000 = 14,4
2. Lungnaberklar 13.5 — —
3- Krabbamein 11,8 — —
4- 5- 6. Heilablóðfall Lungnabólga Hjartabilun 8,6 8,1 7,8 — — = 24,5
— — 1 + 4+5+6 = 38,9 pr. 10,000
7- Farsóttir 5,2 — —
8. Heilaberklabólga 4,2 — —
Aðrar orsakir minna
Manndauði alls: 108,0 pr. 10,000
Yfirlit yfir dánarorsakir hér á landi sýnir, að heilablóðfall cr talin 4.—
5. algcnasta dánarorsök í meðalári; ellihrutnleiki er talin nr. 1, lungtta-
berklar nr. 2. og krabbamcin nr. 3. Heilablóðfall, lungnabólga og hjarta-
bilun er síðan nokkurn veginn jafn algengar dánarorsakir. Við höfum
ennþá ekki tekið upp rannsókn á cllihrumleikanum, sem þó er augljóst að
verða ætti eitt af því, sem íslenskir læknar ættu næst a'ð fást við. Gegn lungna-
berklum og krabbamcini hefir verið barist af miklum og lofsverðum og
sívaxandi áhuga seinustu 20—30 árin.