Læknablaðið - 01.06.1931, Side 30
100
LÆKNABLAÐIÐ
dönsku, og skýrði frá rannsóknum um þatS efni á Vifilsstaðahæli. Erindið
þakkað með lófaklappi.
III. mál á dagskrá:
Próf. dr. med. L. S. Fridericia flutti fyrirlcstur ttin zntaminrannsóknir
siðustu ára. Var hann boðinn velkominn af formanni, er þakkaði erindið
einnig á eftir.
Dr. Helgi Tómásson gat um nokkra sjúklinga með nevritis, er hann hafði
gefið ger með góðum árangri.
IV. mál á dagskrá:
Dr. med. & phil. Anita Múhl flutti erindi um ósjálfráða skrift og teikn-
ingar og sýndi ýmsar myndir. Erindið var þakkað með lófaklappi. Hafði
gesturinn verið boðinn velkominn af próf. Guðm. Hannessyni, er skýrði
nokkuð frá rannsóknum fyrirlesarans.
V. mál á dagskrá:
M. Júl. Magnús flutti svohljóðandi tillögu f. h. stjórnarinnar:
„Fundurinn telur það óhæfu, að heilbrigðisskýrslurnar skuli ekki hafa
komið út siðan 1929. Hann telur það sjálfsagt, að heilbrigðisstjórnin
sjái um, að þær kotni út sem allra fyrst, og þær séu samdar af manni,
sem fulla þekkingu hefir á því vandamáli."
Tillagan samþykt í cinu hljóði.
......
VI. mál á dagskrá:
M. Júl. Magnús flutti svohljóðandi tillögu:
„Læknafélag íslands gefi árlega út Árbók fyrir félagið.“
Till. samþykt í einu hljóði.
1 ritnefnd voru endurkosnir með lófataki Gunnl. Einarsson og M. Júl.
Magnús.
VII. mál á dagskrá:
Þórður Edilonsson skilaði áliti milliþinganefndar í taxtamálinu, og lagði
fram tillögur hennar um nýja gjaldskrá fyrir héraðslækna. Bar nefndin
fram svohljóðandi tillögu:
„Fundurinn felur stjórninni að láta fjölrita tillögur nefndarinnar í
gjaldskrár-málinu, með þeini viðaukum og ljreytingum, sem henni virð-
ast nauðsynlegar, og senda þær öllum félagsmönnum til athugunar og
leiðbeiningar.
„Fundurinn telur það nauðsynlegt, að allir héraðslæknar fylgi því sem
næst sömu gjaldskrá."
Samþykt með öllum greiddum atkvæðum.
VIII. mál á dagskrá:
Tillaga frá próf. Guðm. Hannessyni:
„Fundurinn skorar á stjórnina, að gangast fyrir nákvæmri rannsókn
á hæð og þyngd isl. barna.“
Tillagan samþ. í einu hljóði.