Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1931, Side 34

Læknablaðið - 01.06.1931, Side 34
104 LÆKNABLAÐIÐ Fyrirlestra próf. Fridericia ákvað LæknablaðiS að birta. Framsetning þeirra öll og efnismeðferð var eins og vænta mátti af hálfu eins hins besta fyrirlesara við Kaupmannahafnarháskóla og þekts vísindamanns. Vér væntum þess, að þessir fyrirlestrar verði til að glæða löngun til vis- indastarfsemi meðal hinna yngri lækna, og þess verður að krefjast, nú þeg- ar vér höfum eignast hinn ágæta Landsspítala, með allmörgum yngri lækn- um sem föstum starfsmönnum, að þar myndist vísir til vísindalegrar starf- semi undir handleiðslu yfirlæknanna og kennara Læknadeildar Háskólans. Fullnaðarprófi í læknisfræði luku í júnimánuði þau: Bjarni Sigurðsson .......... I. eink. 160 stig Bergsveinn Ólafsson ....... II. — 146Yz — Guðm. Karl Pétursson .... I. ág. - 218% — Högni Björnsson ............ I. eink. 176^3 — Jóhann Sæmundsson ......... I. — 1792/t, — Július Sigurjónsson ....... I. — 193J4 — Karl Guðmundsson ......... II. — 147^ — Maria Hallgrimsdóttir ..... II. — 107 — Hvað verður um yngri læknana? Bergsvcinn Ólafsson gegnir Beru- f jarðarhéraði í fjarveru héraðsl. Bjarni Sigurðsson er settur héraðsl. i Naut- eyrarhéraði. Guðm. K. Pétursson kandidat á Landsspítalanum. Högni Björns- son farinn utan. Jóliann Sœmunclsson gegnir Blönduóshér. i fjarveru hér- aðsl. Karl Guðmundsson ráðinn vikar í Borgarneshér. Utan fara á næstunni þau Júlíus Sigurjónsson og María Hallgrímsdóttir. Heilbrigðisskýrslurnar. Eitt af afreksverkum heilbrigöisstjórnarinnar, þessum sem hæst tala, er það að hafa vanrækt útgáfu heilbrigðisskýrslnanna síðustu ár. Henni hefir ekki þóknast að leita til G. H. með samningu þeirra, heldur gerði hún þá ráðstöfun, að sagt er, að Grétar Fells, lögfræðingur og ritari landlæknis, semdi töflurnar, en Ólafur Thorlacius factotum stjórn- arinnar, textann. Eftir þessu aS dæma er það sennilega lán í óláni, aö engar skýrslur hafa komið út. Samsæti var haldið að Hótel Borg að fundinum loknum. Sátu það ná- lega allir fundarmenn og konur þeirra. Fjöldi ræða voru haldnar undir borð- um og síðan stiginn dans fram á nótt. Fór samsætið hið besta fram. Hjónaband. Gefin voru satnan á ísafirði 26. júlí s.l. þau Sigriður Auð- uns, alþrn. Jóns Auðuns, og Torfi Bjarnason læknir. Utanfarir. Nýlega eru farin utan Dr. Gunnl. Claessen og frú, Kristján Arinbjarnar, frú og börn, Karl Jónsson læknir og frú, Bragi Ólafs- son læknir, Hafnarfirði, og Högni Björnsson læknir. Gísli Pálsson læknir er nýlega kominn suður, og sestur að i Hafnarfirði, sem praktiserandi læknir. Ritstjórnin vill vekja athygli á, að samkvæmt samþykt siðasta Lækna- þings verður árgjald blaðsins framvegis innheimt sér, en ekki innifalið í árstillagi L. í. Allir, sem skulda blaðinu, eru vinsamlega beðnir um að greiða skuld sína hið fyrsta eða semja við afgreiðslumann blaðsins um greiðslu á henni. Innheimtu- og afgreiðslumaður Lbl. er hr. Þorvaldur Jónsson, Grettisgötu 37, Rvík. Félagsprentsmiðjan.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.