Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.1937, Blaðsíða 23

Læknablaðið - 01.02.1937, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ „Háfjallasór4 Pýðing háfjallasólar í lækningastarfi lyflækna: I daglegu starfi (praxis) læknanna liefur geislun Iíkamans með ultra- fjólubláum geislum náð mikilli útbreiðslu. Á þessu svæði var það, að hin tilbúna háfjallasól — Original Hanau — ruddi sér til vegs í allra fremstu röð íyrir öryggi í starfrækslu og ágæta tækni. Síðan 1906 hafa verið seld yiir 200 000 áhöld, sem sannar best álit og endingargildi þeirra við læk- ningastarfið. Mörg þúsund framgjarnra lækna við háskólaklinikur, við sjúkrahús, við heilsuhæli og í lækuingarstofum þeirra sjálfra víðsvegar um heim, hafa síðan 1906 notað hina tilhúnu háfjallasól kvartslampans — Original Hanau. Yfir 2600 skýrslur hafa birzt um þetta mál í vísindalegum ritum, læknis- fræðislegum kennslubókum og tímaritum, fram til þessa tíma. Verkanir háfjallasólarinnar: Geislun alls líkamans með ultra- fjólubláu geislum kvartslampans, “Tilbúinni háfjallasól” — Original Hanau —, veitir oft heilsubót þeg- ar aðrar lækningaaðferðir hafa brugðist, þeir auka áhrif annara læknismeðala og flýta fyrir verltun- um þeirra. Batinn kemur í Ijós í húoinni á þann hátt að hún verður rauð af blóðstreymi og síðan brún (sólbruni, Erythemi. Blóðþrýstingurinn minnlcar, öll efnaskifti líkamans aukast og um leið örfast öll líffærastarfsemin. Sjúklingurinn hressist í útliti, li- kamsþyngdin vex, matarlystin glæð- ist (oft í matargræðgi), svefninn batnar, verður djúpur og eðlilegur. Hinn öri blóðstraumur í húðinni lýsir sér, eins og reyndar hjá heil- brigðu fólki, með hraustlegum, brúnleitum hörundsblæ, liressilegu yfirbragði og þægilegri tilfmningu um þrótt og hreysli, ekki aðeins líkamlega heldur einnig andlega. Hver sem tekur sólböð háfjallasóla- nnnar — Original Hanau -— finnur andlegt fjör færast í sig, kemst í gott skap og verður glaðlyndur. Hjá sjúklingum verða áhrifin sefandi, lífgandi og styrkjandi á líðanina allstaðar í þinum sýkta líkama, sem fær nýtt fjör og elfdan mótstöðukraft gegn sjúkdómsbölinu. Ef þér óskið fáið þér sundurliðaða lýsingu með myndum hjá Raftækjáeinkasölu ríkisins, Revkjavík, Sími: 4526.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.