Læknablaðið - 01.03.1940, Blaðsíða 14
40
LÆKNABLAÐIÐ
Slys af I y f j ad æ I i n g u m
Eftir NÍELS DUNGAL.
Lyfjadælingar undir hörund,
inn í vöÍSva og æöar, eru orönar
svo algengar á seinni árum, aö
fjöldi lækna ber dæluna á sér eins
og sjálfblekung í vestisvasanum,
vanalega fljótandi í vínanda, til aö
liún sé ávalt dauöhreinsuö til taks,
og þánnig er lyfjum dælt í hvern
sjúklinginn eftir annan, oft marga
á sama klukkutímanum.
Ef 'full varkárni er ekki höfö
viö slíkar dælingar, geta afleiöing-
arnar oröið slæmar: veikindi og
dauði fyrir sjúklinginn og ill út-
koma fyrir lækninn. Hastarlegast-
ar veröa afleiðingarnar þó, þegar
dælt ,er í marga í einu lifandi
hættulegum sýklum. Slík slys hafa
einkum komið fyrir viö bólusetn-
ingar fyrir barnaveiki, og skal
eg til varnaöar geta nokkurra
dæma. Annað var i Queensland í
Ástralíu 1928. Eftir barnaveikis-
])ólusetningu dóu 12 börn. Rann-
sókn leiddi í ljós, aö læknirinn
liaföi fariö óvarlega að, svo að in-
fektion komst í bóluefnisblönd-
una og hlaust banvæn se])sis af.
Hitt dæmiö er miklu nýrra og
aö ýmsu leyti mjög lærdómsrikt,
og þess vert, að nánar sé frá því
skýrt.
í árslok 1936 voru börn í nokkr-
um skólum í írska fríríkinu bólu-
sett gegn barnaveiki meö T.A.F.
(toxin-antitoxin-floccules) eftir ti!-
mælum héraðslæknis. Bólsetning
arnar framkvæmdi McCarthy
læknir, flestar um 24. nóvember.
1. janúar fer aö bera á bólgu,
eymslum og verkjum í sumum
börnunum, og þetta ágerist, svo aö
Mc Carthy kallar aðra lækna til
rannsóknar á því, livað þessu
valdi. Kemur þá í ljós, að mörg
böm hafa berklaígerðir á dæling-
arstaö og eitlar bólgnir á mörg-
um. Ekki er getið um hve mörg
börn hafi veikst alls, en einn maö-
ur, sem misti dóttur sína úr mili-
artuberculosis og átti auk þess 3
sonu, sem allir veiktust meö ígerð-
um og eitlabólgu, kæröi lækninn
og lyfjafinnaö fyrir aö hafa látið
úti berklagróður i stað barnaveik-
isbóluefnis.
Út af þessu varð mikiö mál, sem
varö til þess, aö miklar og ná-
kvæmar rannsóknir voru gerðar á
því, hvernig á.öðru eins slysi gæti
staöiö. Þrír mjög færir menn voru
fengnir til að gera tilraunir til að
komast aö þvi sanna i málinu, og
hafa þeir nýlega l)irt árangurinn
af þeim.*) Rannsóknir þessar eru
mjög ítarlegar og yröi alt of langt
mál að rekja þær nákvæmlega. —
Áður en þessar ransóknir voru
gerðar var það einróma skoðun
allra þeirra lækna, sem leiddir
voru sem vottar í málinu, aö inni-
hald glassins, sem notaö hafði ver-
ið 24. nóv. 1936, og sem allir þeir,
sem veiktust, höföu verið ])ólusett-
ir úr, hefði verið emulsion af
])erklasýklum, sem af einhverri
vangæslu hefði lent innan um
])arnaveikisbóluefnið og með ber-
*) Bigger, J. W„ Blacklock, J.
W. S. and Parish, H. J. Investi-
gations and Observations on In-
oculation Technique. Brit. Med.
20/1 1940.