Læknablaðið - 01.03.1940, Page 16
42
LÆK NAB LAÐ I Ð
lifa'ö í vínanda mánirSum saman.
En líka hinar, sem ekki mynda
spora, geta lifaö í vínanda. Coli-
gróSur, sem þorna'ö haföi á silki-
þræöi, liföi i 90 og 99% vínanda í
heilan sólarhring. Aftur á móti
þoldi hann 50—60% vínanda aö-
eins í eina mínútu, 70% i 3 mín.,
80% í 15 mín. Svipaö gilti um
streptokokka og stafylokokka
nema hvaö þeir síöastnefndu
drepast fljótast í 60—70% vín-
anda.
Þessar tilraunir staöfestu þaö,
sem var löngu kunnugt, a'ö hreinn
vinandi er lélegt sótthreinsunar-
lyf, og aö þaö er rnikill misskiln-
ingur, a'ö halda aö vínandinn sótt-
hreinsi því betur, sem hann er
sterkari.
Éf þessar tilraunir eru réttar, og
þafe er engin ástæöa til aö efast
um þaö, hvernig stendur þá á því,
að ekki ber meira á ígerðum og
sepsis eftir allan þann aragrúa af
dælingum, sem læknar fram-
kvæma daglega? Vafalaust fyrst
og fremst vegna þess, að dælurnar
erii næstum eingöngu notaöar til
dælinga á dauöhreinsuöum lyfjum.
í öðru lagi vegna þess, aö þótt lif-
andi sporar, eins og B. Welchii,
jafnvel B. Tetani, sé dælt undir
húö, ná þær ekki að tímgast nema
séfstök skilyröi sé fyrir hendi,
helst aörir sýklar, sem framkall-
að geta bólgu í vefnum.
En til eru líka ýms dæmi þess,
aö illkynjuö phlegmone hafi hlot-
ist af lyfjadælingum. Og þó senni-
lega miklu fleiri þau tilfelli, sem
ekki hafa verið birt á prenti.
Sem dæmi skal eg nefna tilfelli,
sem Jungmichel*) skýröi nýlega
** Jungmichel: Úber die Gas-
brandinfektion nach Injektion.
Múnch. med. W. 85, 125 (1938).
frá. Þaö var 44 ára karlmaður
með lungnabólgu, sem fékk gas-
gangræn í læri, eftir lyfjadælingu.
Alt læriö blés upp af marrandi
liólgu, sem breiddist óöfluga upp
á kvið og sjl. dó samdægurs. Við
krufningu fanst vöövadrep og
sepsis af B. Welchii (b. perfrin-
gens), en tiltölulega lítil lungna-
bólga. í kamfóruolíunni fundust
samskonar sýklar, ennfremur í
vínandanum, sem dælan var
geymd i.
Eftirtektarvert er líka þaö, sem
kom fyrir viö barnaveikisbólusetn-
ingu í Holbæk í Danmörku 1938.
Madsen og Henningsen**) skýra
frá því, aö 2408 börn hafi veriö
bólusett með anatoxini á tveim
dögum. Af þeim veiktust 34 þann-
ig, að 8—12 klt. eftir dælinguna
fékk barnið hita, 38—40°, sum
uppköst og niðurgang og höföu
yfirleitt allmikil intoxicationsein-
kenni. Sama kvöld eða næsta dag
fengu þau útbrot, sem voru mjög
skarlatssóttarleg og útbreidd hjá
flestum. Eftir nokkra daga fóru
börnin aö hreistra. Flest þeirra
fengu ígerð á dælingarstaöinn og
frá 24 var gröfturinn rannsakaður
bakteriologoskt og fanst hjá 22
þeirra hæmolytiskir streptokokk-
ar, af sömu tegund og þeirri, sem
oftast valda sarlatsótt í Danmörku.
Málið var rannsakað rækilega,
og þótti líklegast, aö einhver viö-
staddur heföi hóstaö streptokokk-
um frá sér og þeir síöan meö ein-
hverju móti getaö borist i anatox-
inið. Engir streptokokkar fundust
í hálsi læknisins né nokkurs af
börnunum, en í hálsi hjúkrunar-
konunnar, sem aðstoðaði, fundust
samskonar streptokokkar og þeir,
**) Ugeskr. f. Læger 101, 203
(1939)-