Læknablaðið - 01.05.1940, Page 9
LÆKNABLAÐIÐ
6 7
Mg. pr. líter
Ógerilsneydd mjólk
í geymslukeri ......... 25,0
Gerilsneydd mjólk
í geymslukeri ......... 23,5
Þessi rannsókn benti til, aÖ C-
fjörviÖ rýrnaÖi sáralítið (6%) við
gerilsneyÖinguna.
Samanburður á gerilsneyddri og
ógerilsneyddri flöskumjólk sýndi
sáralítinn mismun:
Meðaltal
pr. líter
4 flöskur ógerilsn. mjólk 20,5 mg.
4 — gerilsn. mjólk 21,2 —
Auðvitað má ekki búast við, að
það sé sama mjólkin, sem hér er
rannsökuð, gerilsneydd og ógeril-
sneydd, en þetta bendir samt til
þess, að gerilsneyðingin hafi ekki
verulega spillandi áhrif á C-fjörvis-
magn mjólkurinnar.
Alirif árstíða. Mjög er áberandi,
hve mikill munur er á C-fjörvis-
magni mjólkurinnar eftir árstiðum.
Línuritið sýnir meðalmagn C-
fjörvis eftir mánuðum.
Eftirtektarvert er, hvernig C-
fjörvismagnið snarhækkar í júní,
sem vafalaust stafar af þvi, að
kýrnar eru þá nýkomnar á beit, en
mest verður þó hækkunin í septem-
ber, meðalmagnið kemst upp i 30
mg. pr. líter*). Þá má mjólkin kall-
ast sæmilega góður C-fjörvisgjafi,
samanborið við vetrarmánuðina,
])egar meðalmagnið kemst niður i
6 mg. pr. líter.
Áhfif flutnings. í apríl 1939 var
mjólkað úr sömu kúnni í tvær smá-
flöskur. Var önnur fylt, svo að litil
hreyfing gat orðið á innihaldinu,
en hin var aðeins fylt til hálfs og
*) Gæti verið að þessi hækkuri
stafaði af því, að kýrnar komast
á hána.
síðan var flöskunum ekið í sama
bílnum til Reykjavikur og C-fjörv-
ismagn rannsakað strax og þang-
að kom:
Full flaska .... 14,6 mg. pr. líter
Háff flaska .... 4,8 — — —
Ascorbinsýran oxyderast auðveld-
lega, og er skiljanlegt, að það eigi
sér frekar stað, þegar mjólkin gutl-
ast mikið og loft blandast saman
við hana. Þessi litla tilraun sýnir,
að / ascorbinsýrunnar hafa oxyd-
erast í hálffullu flöskunni, saman-
borið við fullu flöskuna, þar sem
mjólkin gat ekki gutlast til. Þetta
er atriði, sem tillit þarf að taka
til við mjólkurflutninga, nl. að gæta
þess, að ílátin séu vel fylt, svo að
sem allra minnst loft getí gutlast
saman við mjólkina.