Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.05.1940, Page 21

Læknablaðið - 01.05.1940, Page 21
LÆKNAB LÁÐ 1Ð 79 fektar, en 9 börn dóu áÖur en nokk- uð fór aÖ bera á kölkunum. Ef þessum rannsóknum er treyst- andi, þá er útlit fyrir aÖ 2 af hverj- um 3 primæraffektum geti leyst upp án þess að láta kalkanir eftir sig. Samt sest kalk í marga hilus- eitla og er ekki tilfært í hve mörg- um tilfellum það kom fyrir. Ef þetta reynist rétt, getur það verið skýr- ingin á því, hve mikið hefir borið á milli pathologa og kliniskra lækna í þessum efnum. Þetta breytir samt engan veginn heildarniðurstöðum okkar, nl. 1) að berklasýking á barnsaldri virðist hér á landi vera mjög hættuleg, og því hættulegri sem barnið er yngra. 2) að það virðist ekki gilda hér á landi að flestir sýkist á barns- aldri, heldur virðist flestir sýkj- ast um og eftir tvítugsaldur, en með stígandi aldri fjölgar þeim, sem smitast hafa af berklum. 3) eftir krufningunum að dæma virðist vera um tiltölulega litla mótstöðu að ræða fyrir berkla- veikinni, fyr en farið er að nálg- ast tvítugsaldurinn. 4) tiltölulega lítið virðist vera um reinfektion, nema e. t. v. endo- gent, en hjá flestum heldur berklaveikin stryki sínu i beinu áframhaldi af frumsmituninni. 5) berklaveiki í gömlu fólki er til- tölulega algeng, stundum án þess að nokkur hafi hugmynd um það. 6) svo að segja öll berklasmitun hér á landi leggur leið sína í gegnum öndunarfærin, en garna- og tonsilluinfektion er líka til. 7) að svo miklu leyti sem vitað er, stafar öll berklaveiki hér af typus humanus. Typus bovinus hefir enn aldrei fundist. Eftir þeirri reynslu, sem ég hefi fengið í gegnum krufningarnar, get ég ekki varist því, að mér virðist resistens fyrir berklasýklunum hafa miklu meira að segja heldur en im- munitet. Þeir, sem sýkst hafa fyr- ir löngu og staðið af sér frumsmit- un, geta á skömmum tíma orðið berklaveikinni að bráð, ef þeir sýkj- ast aftur, en mjög mismunandi, hve mikið berklaveikin nær sér niðri hjá jafnöldrum, sem aldrei hafa áð- ur sýkst. Það bendir greinilega til þess, að viðnámið gegn berklaveik- inni sé fyrst og fremst resistens- atriði, en ekki immunitetsspursmál. Og að svo miklu leyti, sem hægt er að bera okkar tölur saman við það, sem fundist hefir í öðrum löndum, er útlit fyrir, að berkla- veikin sé hér skæðari en í meðal- lagi og sennilegt, að það sé vegna resistensvöntunar. Eg ætla ekki að fara út í það atriði nú, en gefst e. t. v. tækifæri til þess síðar. Ritfregn Læknisneminn, 1. tbl. — 23. apríl 1940. — 1. árg. Svo nefnist blað, sem gefið er út af „Félagi læknanema" við Há- skóla Islands. Blaðið er 12 fjöl- ritaSar síður og mun eiga aS koma út eftir því sem efni og ástæSur leyfa; því er ætlaS aS vinna aS fræSslu læknanema, einkum meS þvi aS birta útdrætti úr tímarits- greinum lækna, og ræSa hags- munamál læknanema. — í þessu fyrsta tölublaSi birtist auk ávarps- orSa, útdrættir úr læknatímaritum og bókafregnir eftir nokkra unga lækna og læknanema. MeS útgáfu þessa blaSs er sýnd- ur lofsverSur áhugi fyrir læknis- mentinni og skilningur á nauSsyn timaritalesturs, og væri óskandi, aS því mætti vel vegna. J. St.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.