Læknablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ
45
t
SKARPHÉÐIM ÞORKGLSSON
HÉRAÐSLÆKNIR.
15. f»L 1912 — 19. apJ 1950.
Dauðinn hefir höggvið mörg
og stór skörð í í|Slenzka lækna-
stétt á undanförnum árum og
ekki ævinlega þyrmt þeim, er
ætla hefði mátt, að lengst líf
ættu fyrir höndum. Af okkar
fámenna hópi, kandidatanna
frá vorinu 1940, var þriðjung-
ur hniginn í valinn áður en
full tíu ár voru liðin frá prófi
-— Sigrún Briem sokkin 1 sæ
og Skarphéðinn Þorkelsson til
moldar genginn. Hann andað-
ist að heimili sínu, Höfn í
Hornafirði, á síðasta vetrar-
dag.
Skarphéðinn var fæddur í
Reykjavík, sonur hjónanna
Þorkelþ Guðmundssonar og
Signýjar Guðmundsdóttur. —
Ungur missti hann foreldra
sína og ólst upp hjá Sæmundi
Þórðarsyni trésmið og konu
hans, Bergþóru Björnsdóttur.
Þau gengu honum í föður og
móður stað, og á heimili
þeirra dvaldist hann æ síðan,
unz hann fluttist burt úr höf-
uéjtetaönum til læknisstarfa.
Að loknu embættisprófi og
kandidatsdvöl á Landsspítalan-
um, gerðist hann héraðslæknir
í Hesteyrarhéraði, en tveim ár-
um síðar var honum veitt
Hafnarhérað og því gegndi
hann til dauðadags.
Skarphéðni Þorkelssyni var
margt vel gefið. Hann var
námsmaður ágætur, hagmælt-
ur vel, og tónlist unni hann og
iðkaði af lífi og pál. Ekki flík-
aði hann listahæfileikum sín-
um framan af ævi — það var
af einskærri tilviljun, að ég
komst að því á Menntaskóla-
árum okkar, að hann orti, og
um tónlistargáfu hans munu
fáir aðrir en nánustu vinir