Læknablaðið - 01.06.1950, Blaðsíða 10
38
LÆKNABLAÐIÐ
er ekki hægt að finna. Auk þess
veldur aflögun á brjósti erfið-
leikum við percussion, koron-
arsclerosis og syfilitiskir
hjartasjúkdómar hafa sín á-
hrif á hjartalögunina.,
í einstaka tilfellum, þar 'sem
áreynsla hægra hjartahelm-
ings er sérlega mikil, er hægt
að finna létt högg í 2. vinstra
rifjabili við það, að pulmonal-
lokurnar lokast'. Stundum
finnst deyfa medialt í 2. vinstra
rifjabili, en því veldur víkkun
á truncus arteriae pulmonalis,
sér í lagi finnst þetta við ane-
urysma arteriae pulmonalis.
Systolisk óhljóð heyrast oft
á þeim sem langt eru leiddir af
sjúkdómnum, og eru þau yfir
pulmonal-staðnum, þ. e. medi-
alt í 2. vinstra rifjabili., Mjög
sjaldan heyrast þar diastolisk
óhljóð, en komi það fyrir, er
það teikn um insufficiens á
pulmonal-lokunum. 2. pulmon
al-tónn er oft aukinn, þ. e. hár
og klingjandi, auk þess stund-
um klofinn, en oft er þetta ekki
heyranlegt vegna lungna-
þembu eða breyttrar stöðu
hjartans í brjóstholinu. Eins
geta þessar breytingar á 2.
pulmonaltóni horfið eftir að
hjarta-insufficiens er kominm
í einstaka tilfellum heyrist svo-
kallaður „galoprythmus“ við
sternum, og þá oftastnær við
hægri hlið.
Röntgen-rannsókn á hjarta
er sú rannsóknaraðferð, sem
sýnir hin fyrstu og öruggustu
einkenni um cor pulmonale
chronicum, að undanteknum
tveimur nýjustu rannsóknar-
aðferðum sem sé: catheterisatio
cordis og angiocardiografi
(Röntgenkontrast-fylling á
hjartahólfunum).
Röntgen-rannsókn á hjarta
hefir fyrst og fremst mikið
gildi séu myndir teknar bæði
í anterior-posterior stöðu og
hægri og vinstri skástöðu. í
hægri skástöðu sjást einmitt
fyrstu röntgen-einkennin um
ofraun hægri ventriculus, þ. e.
a. s. útbungun á pulmonal-bog-
anum, sem er midboginn á
vinstri hliö hjartans. í vinstri
skástöðu sést vel til hægri
ventriculus, sem stækkar aftur
á við, en auk þess sést þar einn-
ig stækkun á vinstri atrium, t.
d. við stenosis mitralis, og er
þetta mkilsvert til aðgreining-
ar, þar eð vinstra atrium er
eðlilegt að stærð við cor puhn-
onale.
Annað röntgen-einkenni um
áreynslu á hægri hjartahelm-
ing er stækkun á hægri ventri-
culus, sem kemur fram síðar í
sjúkdómnum en stækkun pul-
monal-bogans. Cor pulmonale
framkallar eftirtaldar breyt-
ingar á hjartalöguninni í ant-
erior-posterior stöðu: Hœgri
hjartabrúnin verður ávalari, og
hjartað sem heild meira egg-
laga, apex cordis breiðari og
getur lyfzt dálítið, þar eð hyp-