Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1967, Side 58

Læknablaðið - 01.08.1967, Side 58
156 LÆKNABLAÐIÐ I. tafla Previously Unknown Cases in Percentage of Found Cases in a Population Study. (Brante, G., Óiafsson, Ó. et al. 1965) 2 Diagnosis Men Women Urinary tr.act infections (789.20) (11) 94 Iron deficiency anaemia (291.10) 90 85 Heart disease (420.00—422.00) 45 67 Hypertensio (440.99—447.99) 42 37 tala miklu hærri, sbr. almennar hóprannsóknir, sem gerðar voru í Eskilstuna 2 og Danderyd 1964—1966. Þetta fólk leitaði ekki læknis, heldur var kallað til rannsókn- arinnar. Fleira athyglisvert hefur komið í ljós við þessar rannsóknir. Ef stuðzt er við skilmerki W. H. O.10 og kennslubóka á há- þrýstingi (hypertensio arterialis), kemur í ljós, að hundraðstala karlmanna á aldrinum 45—65, sem eru með þennan sjúkdóm, er um 20, en kvenna um 35.11 Framhaldsrannsóknir á þessu fólki benda ekki til þess, að fleiri konur deyi af afleiðingum háþrýst- ings en karlmenn, nema síður sé, enda ei' meðalaldur kvenna hærri en karlmanna. Þessar niðurstöður benda til þess, að skil- merki á þessum sjúkdómi þurfi endurskoðunar við. ST-lækkun í hjartarafriti er margfalt algengari hjá konum en körlum, og hundraðshluti 65 ára kvenna með þessa breytingu er milli 35 og 40. Flestar þessara kvenna kenna sér einskis meins. Blóðsökk er eitt algengasta prófið, sem tekið er, en enn þá er að mestu leyti stuðzt við skilgreiningar Westergrens, sem er reist á niðurstöðum á rannsókn á 25 ungum stúdentum, um „normgildi“ þessa prófs. Af Eskilstuna-rannsókninni og öðrum líkum rannsóknum má sjá, að blóðsökk heilbrigðs fólks fer allmikið hækkandi eftir aldri. Af þessari töflu má lesa, að efri mörk blóðsökks heilbrigðra kvenna við 50 ára aldur er 25 mm/klst. og karla 15 mm/klst. Yfir 50 ára aldur eru efri mörkin um 30 meðal kvenna, en 25 meðal karla. Föstu blóðsykursgildin eru töluvert hærri meðal kvenna en karla á aldrinum 45—65 ára.1

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.