Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1980, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.06.1980, Blaðsíða 45
NOVO DRP&IMO\® AMOXICILLIN f I \i.H \s \s s\ /\ /\ v\ i I Breiðvirkandi penicillin gegn sýkingu í • öndunarfærum • þvagrás Draximox er hálfsamtengt breiðvirkt sýklalyf til inntoku við meðferð á vissum smitsjúkdómum, einkum staðbundið við öndunarfæri og pvag- rás. Hið virka efni, amoxicillin, polir magasýrur og frásogast næstum fullkomlega í pörmum. Meðal hámarks blóðvatnsstyrkleiki er venjulega helmingi hærri en eftir jafn stóran skammt af ampicillini. Ábendingar Bent er á Draximox vegna hins breiða verkunarsviðs lyfsins fyrst og fremst í peim tilfellum par sem sýklafræðileg greining er óviss, við framkomu blöndunarsýkingar af næmum sýklum og í tilfellum par sem Hemophilus inflúensa er tíð eins og t.d. við öndunarfærasýkingar. Vegna hins háa sýkladreps-styrks í pvaginu er einnig bent á Draximox gegn pvagrásarsýkingu og sérstaklega nýrnabólgu (pyelonefritis) sem er afleiðing af næmum bakteríum (E. coli, Proteus mirabilis og Streptococcus faecalis). Einnig er bent á. Draximox gegn vægum tilfellum af lekanda, annaðhvort gefið eitt sér eða með probenecid. Frábendingar Varað er við að gefa Draximox sjúklingum með ofnæmis- viðbrögð fyrir penicillini. Einnig er varað við að gefa Draximox sjúklingum sem eru með mononucleosis-smit ásamt sjúklingum með lymfatisk leukæmi, sjá einnig kafla um: Aukaverkanir. Milliverkanir Hin sýkladrepandi áhrif amoxicillins minnka við samtímis inngjöf sýklalyfja eins og tetracyklini og chloramphenicol, en ekki súlfonamíðum. Probenecid, fenylbutazon og acetyl- salicylsýra draga úr nýrnagangna-útskilnaði af amoxicillini, par sem blóðvatnsstyrkurinn eykst af amoxicillini. Aukaverkanir í rannsóknum med amoxicillin hafa aukaverkanir verið litlar. Hinar algengustu skráðu aukaverkanir eru væg meltingarópægindi svo sem ógleði og niðurgangur, exan- them og urticaria. Eins og með önnur fúkalyf verður að taka tillit til að möguleikar eru á ofnæmi fyrir lyfinu. Sjúklingar með mononucleosissmit og/eða lymfatisk leukæmi fá gjarnan exanthem við meðhöndlun með amoxicillin. Varúðarreglur Gefa skal Draximox með varúð ofnæmissjúklingum og/eða asthmasjúklingum. NB: Draximox ber ekki að gefa sjúkling- um sem hafa ofnæmi fyrir penicillini. Of mikil og langvinn notkun lyfsins getur orsakað hættu á auknu varnarafli örvera, að meðtöldum sveppum. Skammtastærðir og inntaka Draximox er inntökulyf í töfluformi ýmist 250 mg og 500 mg eða sem skammtar med 125 mg og 500 mg. Venjulegur skammtur handa fullorðnum og börnum yfir 20 kg að líkamspyngd við einföldum sýkingum er 250 mg 3svar á dag. Við meðferð á meiriháttar sýkingum eins og t.d. bráða exacerbationer af langvinnu bronchitis og nýrnabólgu (pyelonefritis) er gefið 500 mg 3svar á dag. Við meðferð á lekanda er venjulegur skammtur 1-2 g, og aftur 1 g gefið u.p.b. 5 klukkustundum seinna. Börnum undir 20 kg að líkamspyngd er gefið 20/mg/kg/á sólarhring skipt niður í 3 jafn stóra skammta við minnihátt- ar sýkingu. Við meiriháttar sýkingu eykst skammturinn í u.p.b. 40 mg/kg/á sólarhring skipt niður í 3 jafn stóra skammta. Pökkun Draximox töflur 250 mg Draximox töflur 500 mg 18 stk. 18 stk. 30 stk. 30 stk. 5 x 100 stk. 5 x 100 stk. Draximox skammtar 125 mg Draximox skammtar 500 mg 18 stk. 18 stk. 30 stk. 30 stk. NOVO INDUSTRI A S Hillerödgade 31,2200 Köbenhavn N. Tlf.: (01) 34 21 11, lokal 256 Einkaumboð á íslandi Pharmaco h/f Skipholt 27 Sími: 26377 Í2H B 313 September 1979

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.