Læknablaðið - 15.06.1980, Blaðsíða 31
LÆKNABLADID
151
14.9. REYKJANESHÉRAÐ
1. Keflavíkurumdæmi
1) Keflavík H 2, starfssvæöi Keflavíkurkaupstaður, Njarðvíkurkaupstaður, Hafna-
hreppur, Grindavíkurkaupstaður, Miðneshreppur og Gerðahreppur.
2) Grindavík H.
3) Sandgerði H.
4) Gerðar H.
2. Hafnarfjarðarumdæmi
1) HafnarfjörðurH2,starfssvæðiVatnsleysustrandarhreppurogHafnarfjarðarkaupstaður.
2) Garðabær H 2, starfssvæði Garðakaupstaður og Bessastaðahreppur.
3. Kópavogsumdæmi
1) Kópavogur H 2, starfssvæði Kópavogskaupstaður.
4. Mosfellsumdæmi
1) Reykjalundur H 2, starfssvæði Pingvallahreppur, Mosfellshreppur, Kjalarneshreppur
og Kjósarhreppur.
5. Seltjarnarnesumdæmi
1) Seltjarnarnes H 2, starfssvæði Seltjarnarneskaupstaður.
14.10. frátt fyrir framangreinda skiptingu og par til öðruvísi verður ákveðið, skal heilsu-
gæslustöð í Stykkishólmi pjóna Flateyjarhreppi, heilsugæslustöð í Búðardal sjá um lækn-
ismóttöku á Reykhólum og heilsugæslustöð á Pórshöfn pjóna Skeggjastaðahreppi.
Ráðherra getur í samráði við hlutaðeigandi sveitarstjórnir ákveðið breytingar á
framkvæmd einstakra málsliða samkv. 2.-9. mgr. pessarar greinar.
14.11. Þar sem tveir læknar eða fleiri eru starfandi á heilsugæslustöð getur ráðherra ákveðið að
fengnum tillögum landlæknis og heilbrigðisráðs að einn peirra skuli hafa tímabundna
búsetu á heilsugæslustöð (H) í sama umdæmi, enda sé starfs- og húsnæðisaðstaða par
viðunandi að mati landlæknis og héraðslæknis, og sérstök staðarleg rök mæli með slíkri
skipan.
15. gr.
15.1. Flokkun stöðva samkv. 14. gr. er ráðherra heimilt að breyta með reglugerð, ef aðstæður
breytast svo, að pess sé talin pörf.
16. gr.
16.1. Prátt fyrir skiptingu landsins milli heilsugæslustöðva, svo sem rakið er í 14. gr., skulu íbúar
einstakra sveitarfélaga og byggðarlaga jafnan eiga rétt á að leita læknishjálpar til peirrar
heilsugæslustöðvar eða læknismóttöku, sem peir eiga auðveldast með að ná til hverju
sinni.
17. gr.
17.1. Ráða skal hjúkrunarfræðinga og ljósmæður til starfa við heilsugæslustöðvar. Þær skulu
skipaðar af ráðherra og taka laun úr ríkissjóði.
17.2. Stefnt skal að pví að hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöðvum hafi sérmenntun í heilsu-
vernd, ljósmóðurfræði eða öðru framhaldsnámi hjúkrunarfræðinga.
17.3. Heimilt er að ráða hjúkrunarforstjóra að peim heilsugæslustöðvum, par sem starfsemin
er svo umfangsmikil, að heilbrigðismálaráð telji pess pörf.
17.4. Ráðherra setur hjúkrunarforstjórum erindisbréf, par sem nánar er kveðið á um réttindi
peirra og skyldur.