Læknablaðið - 15.08.1980, Side 5
LÆKNABLADID
169
LÖG LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
Samþykkt á aðalfundi 1978
1. gr.
Félagið heitir Læknafélag íslands, skammstafað L.í. Það er samband svæðafélaga lækna, sbr. 4.
grein, svo og félag íslenzkra lækna, sem af eðlilegum ástæðum eru ekki í svæðafélögum (sbr.
sömu grein). Lögheimili pess og varnarping er í Reykjavík. Reikningsár pess er almanaksárið.
2. gr.
Tilgangur félagsins er:
1. Að efla hag og sóma hinnar íslenzku læknastéttar og auka kynni og stéttarproska
félagsmanna.
2. Að stuðla að aukinni menntun lækna og glæða áhuga þeirra á pví, er að starfi peirra lýtur.
3. Að efla samvinnu lækna um allt, sem horfir til framfara í heilbrigðismálum á íslandi.
3. gr.
Félagið hefur sérstakar siðareglur, Codex Ethicus, sem samdar eru með hliðsjón af siðareglum
Alpjóðafélags lækna.
4. gr.
A. L.f. er fyrst og fremst samband eftirtalinna svæðafélaga:
1. Læknafélag Reykjavíkur,
2. Læknafélag Vesturlands,
3. Læknafélag Vestfjarða,
4. Læknafélag Norðvesturlands,
5. Læknafélag Akureyrar,
6. Læknafélag Norðausturlands,
7. Læknafélag Austurlands,
8. Læknafélag Suðurlands.
B. Félög íslenzkra lækna erlendis, sem aðalfundur L.í. sampykkir og hafa minnst 8 félaga, þó
aðeins eitt félag frá hverju landi. Slíkt félag hefur þó aðeins rétt á að hafa einn fulltrúa á
aðalfundi L.í. án tillits til fjölda meðlima þess.
íslenzkir læknar, sem vegna vinnu og búsetu erlendis geta ekki verið meðlimir svæðafélaga og
eru ekki meðlimir félaga íslenzkra lækna erlendis, eiga þess kost að vera meðlimir L.í. sem
einstaklingar. Slíkri aðild að L.í. fylgir ekki kosningaréttur eða kjörgengi sem fulltrúi á aðalfundi
L.í. eða til starfa í stjórn og nefndum félagsins. Læknar þessir eru undanþegnir fullum
félagsgjöldum, en greiða þess í stað árgjald til L.í. sem svari áskriftargjaldi Læknablaðsins, og
séu þeir þar með áskrifendur blaðsins.
5. gr.
Aðalfundur getur kosið sem heiðursfélaga L.í. lækna, vísindamenn eða aðra, sem þess teljast
maklegir. Skal það gert á lögmætum aðalfundi og þarf samþykki 1 2 3 4 5 6 7 8/4 fulltrúa.
6. gr.
Rétt til inngöngu í svæðafélag hafa allir þeir, er lokið hafa kandidatsprófi í læknisfræði og eru
búsettir eða starfandi á félagssvæðinu.