Læknablaðið - 15.08.1980, Page 9
LÆKNABLADID
173
Nú bregst félagsmaður þeim skyldum, sem honum ber að inna af hendi, eða brýtur lög
félagsins eða Codex Ethicus, og skal siðanefnd þá veita honum áminningu, hafi málinu verið til
hennar vísað. Sé um ítrekað brot að ræða, má gera honum að greiða sekt, og rennur sektarféð til
Ekknasjóðs. Sama máli gegnir, ef félagsmaður aðhefst eitthvað það, er stjórn L.Í. eða siðanefnd
þykir stéttinni ósamboðið, eða hegðar sér ósæmilega, hvort heldur er í læknisstarfi eða í
sambandi við umsókn, þótt ekki sé um skýlaust brot á lögum félagsins eða Codex Ethicus að
ræða. Siðanefnd kveður upp slíka úrskurði um áminningar og sektir og framfylgir þeim.
Úrskurði siðanefndar má skjóta til gerðardóms skv. Codex Ethicus, enda sé það gert innan
fjögurra vikna frá því, að úrskurður var tilkynntur þeim, sem hann beindist að, en það skal gert
innan fjögurra vikna frá þvi, að úrskurður er kveðinn upp. Sektir mega nema allt að tvöföldum
mánaðarlaunum viðkomandi læknis, og skulu greiðast innan þriggja mánaða frá því, að þær hafa
verið úrskurðaðar af siðanefnd eða gerðardómi, hafi úrskurði verið skotið til hans.
Stjórn L.í. getur vísað félagsmanni úr félaginu fyrir alvarlega vanrækslu skyldustarfa eða
velsæmisbrot, eða fyrir margítrekuð brot, þótt hvert þeirra um sig varði aðeins sektum.
Ennfremur ef hann neitar að greiða sektir. Það varðar brottrekstri, ef félagsmaður sækir um
embætti eða stöðu þrátt fyrir bann stjórnarinnar. Úrskurð stjórnarinnar um brottvísun skal taka
fyrir á næsta aðalfundi L.í. eða fulltrúafundi (kynna á formannafundi) til staðfestingar eða
synjunar. Staðfesti fundurinn ekki úrskurð stjórnarinnar, getur hún skotið málinu til gerðardóms.
Rísi ágreiningur milli lækna innbyrðis, eða milli læknis og svæðafélags hans, eða L.Í., getur
hvor aðilinn sem er, gert siðanefnd grein fyrir þeim ágreiningi. Siðanefndin skal kynna sér málið,
og leita sátta, en takist sættir ekki, kveður hún upp úrskurð í málinu. Skal úrskurðum hagað eins
segir framar í þessari grein. Slíkum úrskurðum má skjóta til gerðardóms skv. Codex Ethicus,
enda sé það gert innan þeirra tímamarka, sem nefnd eru í greininni.
21. gr.
Almennt læknaþing skal haldið eigi sjaldnar en annað hvert ár í sambandi við aðalfund. Gefst þá
öllum læknum, sem sitja þingið, kostur á að bera fram mál frá eigin brjósti og ræða þau mál, sem
eru á dagskrá, áður en fulltrúar greiða atkvæði um þau. Á þingum þessum skal flytja erindi um
læknisfræðileg efni. Til fyrirlestrahalds skulu fengnir vísindamenn og læknar, innlendir og
erlendir, ef þess er kostur. í sambandi við læknaþing skal einnig haldinn aðalfundur lífeyrissjóðs
lækna.
22. gr.
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi L.í. og greiði a.m.k. 3/4 fulltrúa atkvæði.
(Til upplýsinga:
Árið 1978 voru varaformaður, ritari og meðstjórnandi kjörnir til tveggja ára, en kjörtímabili formanns, féhirðis og
varamanna lauk árið 1979.)